Faraldurinn stóreykur hættu á sjálfsvígum

Ljóst er að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn er far­inn að hafa alvar­leg áhrif á geð­heil­brigði þjóð­ar­innar. Tölur lög­reglu benda til að sjálfs­víg séu umtals­vert fleiri nú en vant er. Fagfólk greinir aukn­ingu í inn­lögnum á geð­deild eftir því sem liðið hefur á far­ald­ur­inn og veru­lega mikið fleiri lýsa sjálfs­skaða- og sjálfs­vígs­hugs­unum.

Faraldurinn stóreykur hættu á sjálfsvígum
Depurð eykst Fleiri glíma við kvíða, dep­urð og sjálfs­vígs­hugs­anir en áður sam­kvæmt fag­að­ilum. Mynd: Shutterstock

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu hafa að minnsta kosti 30 mann­eskjur svipt sig lífi það sem af er þessu ári. Sér­fræð­ingar telja að talan sé enn hærri en það fæst ekki stað­fest, og raunar neita bæði lög­regla og Embætti land­læknis einnig að stað­festa umrædda töl­fræði.

Símtöl í Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, hafa tæp­lega tvö­fald­ast milli ára og þar af hefur sím­tölum þar sem fólk lýsir hugs­unum um sjálfs­skaða eða sjálfs­víg fjölgað um tæp 19 pró­sent.

Fjöldi við­tala starfs­fólks Píeta-sam­tak­anna, sem sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða, við skjól­stæð­inga jókst um þriðj­ung á milli apr­íl­mán­aðar og ágúst­mán­aðar á þessu ári.

Ungt fólk sem leitar til Bergsins, stuðn­ings- og ráð­gjaf­ar­set­urs fyrir fólk upp að 25 ára aldri, greinir í auknum mæli frá því að það glími við sjálfs­skaða- og sjálfs­vígs­hugs­anir. Á tíma­bil­inu frá því í sept­em­ber á síð­asta ári og fram í apríl á þessu ári greindu 15 pró­sent þeirra sem sóttu þjón­ustu Bergsins frá því að þau hefðu slíkar hugs­anir. Á tíma­bil­inu maí til ágúst á þessu ári greindu 22 pró­sent þeirra sem þangað komu frá slíkum hugs­unum.  

Þeir sem Stundin hefur rætt við telja aug­ljóst að heims­far­aldur kór­óna­veirunnar, COVID-19, eigi hér stærstan hlut að máli. Grípa þurfi til aðgerða á víðum skala, sam­starf þurfi að verða milli aðila og bregð­ast þurfi við af festu. Allir eru í for­varn­ar­hlut­verki gegn sjálfs­vígum og hægt er að sækja aðstoð víða. Minna þarf á að það er von.

Símtölum í 1717 hefur fjölgað gríðarlega

Sandra Björk Birg­is­dóttirVerk­efna­stjóri Hjálpar­síma Rauða kross­ins.

Sandra Björk Birg­is­dóttir, verk­efna­stjóri Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, segir ljóst að COVID-19 veiru­far­ald­ur­inn legg­ist þungt á marga. Þannig hafi fjöldi sím­tala þar sem fólk lýsir van­líðan og kvíða marg­fald­ast, tekið hafi verið við tæp­lega tvö­falt fleiri sím­tölum í ár en á sama tíma­bili í fyrra og nú þegar hafi verið tekið við ríf­lega 4.000 fleiri sím­tölum en allt síð­asta ár. Þetta rekur Sandra Björk beint til ástands­ins í þjóð­fé­lag­inu og óvissunnar sem fylgi far­aldr­inum.  

„Við höfum fundið fyrir veru­legri aukn­ingu sím­tala til okkar. Mesta aukn­ingin er í sím­tölum er varða almenna van­líðan og kvíða, það virð­ist vera mikil aukn­ing á kvíða hjá fólki. Félags­leg ein­angrun fólks hefur auk­ist sem er orsaka­þáttur í þessu.“

„Við höfum fundið fyrir tals­verðri aukn­ingu í sím­tölum þar sem fólk lýsir sjálfs­vígs­hugs­unum“

Sömu­leiðis hefur sím­tölum þar sem fólk lýsir sjálfs­vígs­hugs­unum fjölgað tölu­vert, um tæp­lega 10 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins borið saman við sama tíma­bil í fyrra. „Við höfum fundið fyrir tals­verðri aukn­ingu í sím­tölum þar sem fólk lýsir sjálfs­vígs­hugs­unum. Þessi sím­töl eru á tals­vert breiðum skala, allt frá því að vera óljósar sjálfs­vígs­hugs­anir og upp í alvar­leg sjálfs­vígs­sam­töl þar sem fólk er á leið­inni með að láta verða af því að svipta sig lífi.“

Hjá Rauða kross­inum starfa sjálf­boðliðar sem hafa fengið þjálfun í að takast á við sím­töl af þessu tagi. Þeir veita sál­rænan stuðn­ing og beina fólki áfram í átt að úrræðum sem í boði eru til að takast á við hugs­anir sem þessar og leita sér hjálpar hjá fag­að­ilum. Í 1717 getur fólk hringt nafn­laust og í trún­aði. „En þegar um alvar­legar sjálfs­vígs­hugs­anir er að ræða, þar sem líf fólks er í hættu, ber okkur skylda til að til­kynna það, rétt eins og öllum öðrum í raun. Við erum í beinu sam­bandi við Neyð­ar­lín­una í slíkum til­vikum.“

Vegna þess hversu mikið aukið álag hefur verið á Hjálp­ar­sím­ann hefur Rauði kross­inn brugð­ist við og aukið þjón­ustu sína. „Við höfum fjölgað á vöktum og það eru fleiri sem svara í sím­ann. Á tíma­bili í fyrstu bylgju vorum við með fimmtán manns við sím­svörun, sem er tölu­vert meira heldur en vant er. Símtöl koma allan sól­ar­hring­inn og það er enn mjög mikið álag hjá okkur, við fáum tölu­vert fleiri sím­töl á viku nú en vana­lega. Við fáum að öllu jöfnu um 15 þús­und sím­töl á ári en erum nú þegar búin að fá hátt í 18 þús­und sím­töl. Það er gríð­ar­leg aukn­ing, það var mest í upp­hafi far­ald­urs­ins en við finnum enn fyrir því að álag er mjög mikið og fer aftur vax­andi.“

„Ég leyfi mér að full­yrða að þetta sé vegna COVID-19“

Sandra Björk segir að starfs­menn 1717 greini mjög skýr merki þess að COVID-far­ald­ur­inn sé orsök auk­ins fjölda sím­tala sem ber­ast Hjálp­ar­sím­anum. „Ég leyfi mér að full­yrða að þetta sé vegna COVID-19. Við höfum til dæmis ekki áður séð svona stórt stökk upp á við í fjölda sím­tala vegna kvíða, það er mjög stórt stökk upp á við milli ára. Fólk er í óvissu um það hvernig allt muni fara vegna veirunnar. Þá eru margir sem hafa misst vinn­una og hafa áhyggjur af pen­ingum og hvernig fólk muni hafa það af næstu mán­uði. Það er líka mikil félags­leg ein­angrun, það eru dæmi um fólk sem hefur nán­ast alveg verið ein­angrað svo mán­uðum skiptir og það tekur mjög á fólk. Vanlíðan sem orsakast af þessum þáttum kemur líka gjarnan fram síðar, svo við búumst við að áfram verði aukn­ing á sím­tölum.“

Hjálp­ar­sím­inn 1717 hefur ýtt úr vör nýju verk­efni þar sem boðið er upp á sam­töl við fólk á pólsku. Enn sem komið er er aðeins boðið upp á slík sam­töl einu sinni í viku, á fimmtu­dögum, og í gær var fjórða skiptið sem sú þjón­usta var á boðstólum. Sandra segir að þrátt fyrir að lítil reynsla sé komin á þjón­ust­una sýni fjöldi sam­tala fram til þessa að þörfin sé til staðar. „Það er búið að vera draumur hjá okkur lengi að geta boðið upp á þessa þjón­ustu en vegna COVID-ástands­ins ýttum við þessu nú úr vör. Pól­verjar eru langstærsti hóp­ur­inn hér á landi sem talar annað móð­ur­mál en íslensku og mjög mik­il­vægt að geta komið til móts við þau.“

Margar sögur fá góðan endi

Neyð­ar­línan 112 tekur við um 570 sím­tölum á dag af ýmsu tagi, þar á meðal frá fólki sem er í sjálfs­vígs­hættu. Hins vegar eru þau sím­töl ekki flokkuð sér­stak­lega í töl­fræði 112, að sögn Tómasar Gísla­sonar, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Neyð­ar­lín­unnar. Neyð­ar­línan fái fjölda hring­inga frá fólki sem líði illa and­lega og því fólki sé reynt að hjálpa til að hafa sam­band á rétta staði, þar sem það fái fag­lega aðstoð.

„Við skráum ekki sím­töl inn til okkar með þessum hætti, fyrst og fremst erum við að reyna að átta okkur á hvort mögu­leiki sé á því að bjarga fólki. Við veltum okkur því lítið upp úr orsökum þess að fólk þarfn­ast okkar aðstoðar. Okkar for­gangs­vinna er sú að meta hvaða bíla eigi að ræsa og hversu hratt þeir eigi að keyra. Ég hef þó heyrt af því frá mínu fólki að því finn­ist þessum sím­tölum hafa fjölgað, en það er bara til­finn­ing og við höfum því miður ekki tölur til að bakka það upp.“

Neyð­ar­línan á í góðu sam­starfi við Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins og starfs­menn 112 beina fólki í van­líðan þangað. „Það er tals­vert algengt að fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir hringi í Neyð­ar­lín­una og í okkar bókum endar það yfir­leitt með skrán­ing­unni „afgreitt án aðgerða“. Það er ekki nema fólk hringi og seg­ist bein­línis vera að enda líf sitt, þá höfum við sam­band við lög­reglu og reynt er að finna út hvar við­kom­andi er staddur, til að reyna að koma honum til hjálpar. Það sama á við um aðstand­endur, það er ekki óal­gengt að til okkar hringi fólk sem seg­ist visst um að vinur þess eða fjöl­skyldu­með­limur sé að fremja sjálfs­morð. Eins fáum við upp­lýs­ingar um það frá Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins ef þangað hringir fólk sem starfs­menn Hjálp­ar­sím­ans telja að sé að því komið að fremja sjálfs­morð. Þá sendum við lög­reglu á stað­inn ef hægt er að finna út hvar við­kom­andi er.“

„Það tókst að koma mann­eskj­unni undir lækn­is­hendur áður en það var um seinan“

Tómas segir að til séu margar sögur af því að tek­ist hafi að koma fólki sem var við það að grípa til örþrifa­ráða til bjargar, með sam­starfi Neyð­ar­lín­unnar og lög­reglu, auk ann­arra. „Ég man eftir einni slíkri sögu sem kom inn á borð til okkar. Þá hringdi til okkar maður, sem sagð­ist hafa séð vin sinn greina frá því á Snapchat að hann væri búinn að koma sér fyrir með pillur og hygð­ist fremja sjálfs­morð. Það mál var unnið þannig að það var reynt að stað­setja vin­inn og það tókst með því að sá sem hringdi inn gat notað Snapmap til að stað­setja hann. Þá gátum við ræst út lög­reglu, og vin­ur­inn mætti raunar sjálfur einnig á stað­inn, og það tókst að koma mann­eskj­unni undir lækn­is­hendur áður en það var um seinan. Við gátum fylgst með þessu, og þó við vitum auð­vitað ekki hver eft­ir­leik­ur­inn var þá er alltaf ánægju­legt að vita að okkur hafi tek­ist að koma mann­eskju til bjargar. Svona sögur með góðum endi eru því margar til.“

Tómas segir að hann hafi lagst yfir það hvort breyt­ing sé á töl­fræði inn­hring­inga til Neyð­ar­lín­unnar á þeim tíma sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur geisað í sam­an­burði við fyrri tíma­bil. Hann segir að um grófan sam­an­burð sé að ræða en hann sjái ekki mark­verðar breyt­ingar. „Ef eitt­hvað er hefur sím­tölum heldur fækkað, en það má draga þá ályktun að það sé vegna þess að það eru fáir á ferð­inni. Ef það er eng­inn á göt­unum þá verða engin umferð­ar­slys til að mynda. Sú fjölgun sem gæti verið á inn­hring­ingum vegna þess að það eru mögu­lega fleiri þung­lyndir og fleiri í sjálfs­morðs­hug­leið­ingum, hún týn­ist þá í þess­ari fækkun á heild­ar­fjölda inn­hring­inga.“

Þriðjungsfjölgun í viðtölum frá því COVID reið yfir

Píeta-sam­tökin sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða, bjóða ein­stak­lingum sem til þeirra leita, sem og aðstand­endum þeirra sem glíma við slíkar hugs­anir eða þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi, stuðn­ings- og með­ferð­ar­úr­ræði. Samtökin eru ríf­lega tveggja ára gömul og halda úti sím­svörun allan sól­ar­hring­inn í Píeta-sím­anum, 552-2218,  til að sinna hópi sem er í sjálfs­vígs­hættu og í hættu á sjálfs­skaða. Sól­ar­hrings­sím­svörun var tekin upp þar til að létta á Hjálp­ar­sím­anum 1717.

Kristín Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Píeta-sam­tak­anna, segir að aukn­ing sé í fjölda þeirra sem sæki sér þjón­ustu sam­tak­anna frá mán­uði til mán­aðar. Að hluta til telur hún að megi skýra það með því hversu ung starf­semin er og sam­tökin hafi fengið meiri kynn­ingu eftir því sem á hefur liðið. En aðrir þættir spili inn í. „Það eru vissar vís­bend­ingar um það í sam­fé­lag­inu að okkur sé að líða verr og það er áhuga­vert að skoða hvers vegna. Nú er COVID kennt um og ég skil það og það er eðli­legt. En það eru fleiri vísar, sem voru komnir fram áður, um að fólki líði verr.“

„Við erum mótsvar við þeim galla sem er í opin­bera kerf­inu, þar sem sál­fræði­þjón­usta er lúx­usvara“

Viðtölum hjá Píeta-sam­tök­unum hefur fjölgað um þriðj­ung frá því að fyrsta COVID-bylgjan skall á. Í mars á þessu ári fóru fram 183 við­töl en mán­uð­ina á eftir fór þeim hratt fjölg­andi og í ágúst voru þau 310. Það er þess utan tvö­földun frá sama tíma á fyrra ári en í ágúst­mán­uði 2019 voru við­töl við skjól­stæð­inga Píeta 141. Inni í þessum tölum eru ekki við­töl við aðstand­endur eða syrgj­endur, heldur ein­ungis við­töl við fólk sem hafði sjálfs­vígs­hugs­anir og var í sjálfs­vígs­hættu. Píeta hefur fyrir vikið þurft að fjölga starfs­fólki hjá sér og þannig eru til að mynda tíu fag­að­ilar sem vinna hjá sam­tök­unum, fyrir utan þá sem sinna hjálp­ar­síma sam­tak­anna. Kristín seg­ist fagna því heils hugar að fólk leiti sér aðstoðar og komi til sam­tak­anna. Hún sé hins vegar ugg­andi yfir stöð­unni. „Við erum gat sem varð að fylla upp í vegna þess að þessi þjón­usta var ekki í boði í sam­fé­lag­inu. Það er dýrt að ganga til sál­fræð­ings og við trúum því að allir eigi rétt á aðstoð, óháð efna­hag. Við stöndum fyrir utan kerfið, erum ekki á fjár­lögum. Þrátt fyrir það erum við úrræði sem félags­þjón­ustan, heilsu­gæslur, Land­spít­al­inn og geð­deild vísa á. Við erum mótsvar við þeim galla sem er í opin­bera kerf­inu, þar sem sál­fræði­þjón­usta er lúx­usvara,“ segir Kristín og bendir á að Píeta-sam­tökin hafi útskrifað yfir 200 manns frá sér, fólk sem hafi náð bata. Það sýni öllum að það sé von.

Kristín segir að í hinu opin­bera heil­brigð­is­kerfi fái fólk ekki þá hjálp sem það þurfi á að halda. Þess vegna hafi Píeta-sam­tökin verið stofnuð. En meira þurfi til. „Það er gat í heil­brigð­is­kerf­inu. Mann­eskja sem gerir til­raun til sjálfs­vígs er færð á bráða­mót­töku, þar er gert að sárum hennar en svo er við­kom­andi sendur heim þegar það er búið, með þau skila­boð að hún geti farið upp á geð­deild í fyrra­málið. Mann­eskjan stendur þá bara úti á bílaplani og við fáum oft hring­ingar frá fólki í þess­ari stöðu. Það er engin lausn að bjóða fólki að fara inn á geð­deild dag­inn eftir. Við verðum að breyta þessu, svo fólk sé ekki skilið eftir eitt með sinn and­lega sárs­auka.“

Marktæk aukning á hugsunum um sjálfsvíg og sjálfsskaða

Hjá Berginu getur ungt fólk upp að 25 ára aldri sótt sér stuðn­ing, fræðslu og ráð­gjöf hjá fag­að­ilum, end­ur­gjalds­laust. Sig­ur­þóra Bergs­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Bergsins en hún er jafn­framt stofn­andi úrræð­is­ins. Hvatinn að stofn­un­inni var reynsla Sig­ur­þóru, en sonur hennar, Bergur Snær, glímdi við mikla van­líðan eftir að hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Hann fékk aldrei þá hjálp sem hann þurfti á að halda og svipti sig á end­anum lífi árið 2016, þá nítján ára gam­all.

Sig­ur­þóra segir að mark­tæk aukn­ing hafi orðið á því að ungt fólk sem leitar til Bergsins lýsi því að þau glími við sjálfs­skaða eða sjálfs­vígs­hugs­anir eftir því sem COVID-far­ald­ur­inn hefur undið upp á sig. „Við fundum ekki neina breyt­ingu fyrr en í lok maí og byrjun júní. Það varð raunar veru­leg fækkun á komum til okkar í mars og apríl, krakk­arnir voru bara að hugsa um að vera í ein­angrun og voru ekki mikið að leita sér hjálpar.“

Hins vegar hafi komum aftur fjölgað í maí þegar fyrsta bylgja COVID-far­ald­urs­ins tók að réna. Þá hafi mátt greina þessa aukn­ingu. „Á tíma­bil­inu frá því í sept­em­ber á síð­asta ári og út apríl á þessu ári lýstu 15 pró­sent þeirra ung­menna sem til okkar komu hugs­unum um sjálfs­skaða eða sjálfs­víg. Á tíma­bil­inu maí og út ágúst á þessu ári var þessi tala hins vegar komin upp í 22 pró­sent.“

Eva Rós Ólafs­dóttir, félags­ráð­gjafi hjá Berginu, tekur á móti stórum hluta þeirra ung­menna sem þangað leita. Hún segir að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi aug­ljós áhrif á þau. „Við finnum veru­lega aukna van­líðan tengda COVID-19 far­aldr­inum hjá þessum krökkum. Þau geta ekki verið í skól­anum, þau hitta ekki sam­nem­endur sína, þau ein­angr­ast heima hjá sér í heim­il­is­að­stæðum sem eru ekki alltaf við­un­andi. Þessi mikla ein­vera hefur vond áhrif á þau og það hefur aukin áhrif á van­líðan þeirra. Þessir þættir hanga síðan saman, ef þessir krakkar eiga sögu um þung­lyndi eða sjálfs­skaða, þá hafa þessar aðstæður áhrif í þá átt að auka á eða valda hugs­unum um sjálfs­skaða og sjálfs­víg. Ég get ekki full­yrt um að COVID-far­ald­ur­inn valdi auknum slíkum hugs­unum en eins og ég segi, þetta hangir saman. Þeim líður verr, það er alveg ljóst.“

„Ég held að við séum ekki búin að sjá afleið­ing­arnar af þessum veiru­far­aldri“

Eva Rós og Sig­ur­þóra hafa áhyggjur af því að frek­ari afleið­ingar af ein­angr­un­inni sem fylgir far­aldr­inum eigi eftir að koma fram og hitta krakk­ana fyrir. „Við finnum fyrir þessum afleið­ingum eftir á, eins og gerð­ist eftir að fyrsta bylgjan rén­aði. Nú erum við aftur stödd í við­líka fasa, það hefur verið hert á öllum sam­komu­tak­mörk­unum og þau koma síður til okkar núna. Ég á von á því að þegar aftur fer að slakna á þá munum við finna fyrir eft­ir­köst­unum og það kæmi mér ekki á óvart þó það myndi fjölga í þeim hópi sem kemur til okkar, og þá með þessar hugs­anir líka,“ segir Eva Rós.

Sig­ur­þóra seg­ist hafa áhyggjur af afleið­ingum þeirrar bylgju COVID-19 sem nú stendur yfir, sökum þess að hún hitti ungt fólk fyrir í enn meiri mæli en áður, leggst þannig á fjölda ungs fólks í grunn- og fram­halds­skólum, sem hafi von­ast til að félags­líf þeirra færi aftur af stað nú í haust og þannig yrði ein­angrun þeirra rofin. „Ég held að við séum ekki búin að sjá afleið­ing­arnar af þessum veiru­far­aldri og ég er hrædd við þessa bylgju núna.“

Eva Rós tekur undir það og segir að bregð­ast verði við stöð­unni af miklu meiri krafti en gert hefur verið. „Krakkar sem ekki ná að fylgja fjar­námi munu detta út úr skóla, með auk­inni van­líðan og minni virkni, hugs­an­legu atvinnu­leysi til lengri tíma. Þetta þarf að skoða í heild, eins hvernig atvinnu­leysi og fjár­hags­vand­ræði for­eldra fara með fjöl­skyldur. Afleið­ing­arnar munu koma fram og þetta verður ekki búið þó að finn­ist bólu­efni.“

Flestir þekki fólk sem hefur fallið fyrir eigin hendi

Hugarafl telst stærsti virki not­enda­hópur í geð­heil­brigð­is­málum á Íslandi, en yfir 220 félags­menn sækja þjón­ustu sam­tak­anna í hverjum mán­uði. Fjölgun hefur orðið í hópi félags­manna síð­ustu mán­uði og segir Auður Axels­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Hug­arafls, að rekja megi það til COVID-19 far­ald­urs­ins.

Skjól­stæð­ingar Hug­arafls eru margir hverjir í mjög brot­hættri stöðu, segir Auður, og hætta á sjálfs­vígs­hugs­unum þeirra á meðal. Reglu­lega greini fólk sem þangað leiti frá því að það glími við hugs­anir um sjálfs­skaða og sjálfs­víg. „Við greinum aukna van­líðan, ótta og kvíða, og það höfum við gert allan tím­ann frá því fyrra sam­komu­bannið var sett á. Okkar hópur er hins vegar alltaf við­kvæmur, getur verið í sjálfs­vígs­hættu og það á öllum tímum. Við fórum því af stað strax um miðjan mars með mjög öfl­ugt starf til að halda utan um okkar hóp, með dag­skrá í gegnum Zoom, með sím­tölum og við­tölum. Við lögðum sem sagt mjög hart að okkur. Þess vegna held ég að við höfum ekki séð fjölgun sjálfs­víga í okkar hópi. Ég heyri hins vegar frá okkar fólki að mjög margir, kannski flestir, þekkja fólk sem hefur fallið fyrir eigin hendi síð­ustu mán­uði. Af því hafa þau, og við öll, mjög miklar áhyggjur.“

Komum á geðsvið fjölgaði eftir fyrstu bylgju

Eyrún Thorsten­sen, stað­geng­ill for­stöðu­manns geðsviðs Land­spít­ala og deild­ar­stjóri á sér­hæfðri end­ur­hæf­ing­ar­geð­deild, segir flesta sem legg­ist inn á geð­svið Land­spít­al­ans hafa sjálfs­vígs­hugs­anir, mis­al­var­legar þó. „Í vor, í mars og apríl, dró úr komum á bráða­þjón­ustu geðsviðs. Það var eins og fólk væri að halda að sér höndum, það vildi ekki trufla starf­semi spít­al­ans. Ég fékk það alla vega á til­finn­ing­una. Svo kom hins vegar mjög erfitt tíma­bil í lok júní og byrjun júlí á geðsviði Land­spít­ala. Komum fjölg­aði, það voru fleiri inn­lagnir og fólk sem lagð­ist inn var almennt veik­ara heldur en alla jafna er. Þessi álag­skúfur kom eftir að ákveðin ró hafði færst yfir COVID-far­ald­ur­inn. Við sjáum núna aftur, þegar COVID-19 far­ald­ur­inn hefur færst í auk­ana, að það hefur dregið úr komum á geð­svið.“ Þó ekki sé hægt að full­yrða að COVID-19 far­ald­ur­inn sé orsaka­þátt­ur­inn hvað þetta varðar segir Eyrún þó að hún telji að svo sé.

„Ástandið er alvar­legt og það þarf að bregð­ast við því af festu“

Eyrún lýsir því að dæmi séu um að álag á geð­svið sé það mikið að vegna nauð­synjar á að leggja inn bráð­veikt fólk hafi þurft að útskrifa aðra sem hefðu gott af því að dvelja lengur á spít­al­anum. Það hafi meðal ann­ars gerst í sumar. Nauðsyn sé að auka enn og meira þá þjón­ustu sem fólki standi til boða sem á við geð­rænan vanda að stríða. „Ástandið er alvar­legt og það þarf að bregð­ast við því af festu.“

Unnið hefur verið að breyttum verk­lags­reglum geðsviðs Land­spít­ala frá árinu 2017 eftir að tvö sjálfs­víg áttu sér stað inni á einni deild geðsviðs spít­al­ans. Bæði hefur verið unnið að því að upp­fræða starfs­fólk og þjálfa það í að greina merki um sjálfs­vígs­hættu. Þá hafa umhverf­is­þættir geð­deildar verið teknir til end­ur­skoð­unar. Sömu­leiðis hafa tengsl við fjöl­skyldur sjúk­linga verið aukin.

Tölur um sjálfsvíg liggja ekki fyrir hjá landlækni

Embætti land­læknis kall­aði til fjölda aðila til að ræða for­varn­ar­starf gegn sjálfs­vígum á sam­ráðs­fundi sem hald­inn var 2. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þó það hafi ekki feng­ist stað­fest hjá emb­ætt­inu þá herma heim­ildir Stund­ar­innar að ástæðan hafi ekki síst verið sú að lög­regla hafi í sumar greint fjölgun á sjálfs­vígum. Á fund­inum var rætt að rann­sóknir, hér­lendis og erlendis, sýndu að heims­far­aldur kór­óna­veirunnar og efna­hag­skreppa í kjöl­far far­ald­urs­ins væru farin að hafa alvar­leg áhrif á geð­heil­brigði. Áríðandi væri að gripið yrði til aðgerða þegar í stað. Hinn 10. sept­em­ber, á alþjóð­legum for­varn­ar­degi gegn sjálfs­vígum, veitti heil­brigð­is­ráð­herra Píeta-sam­tök­unum 6 millj­óna króna styrk til að efla for­varn­ar­starf sam­tak­anna gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða. Þá lýsti ráð­herra því að tryggðar yrðu 12 millj­ónir króna til að fjár­magna stöðu verk­efna­stjóra sjálfs­vígs­for­varna hjá Embætti land­læknis út næsta ár.

Embætti land­læknis hefur sett sér það mark­mið að gefa út bráða­birgða­tölur um sjálfs­víg fyrstu 6 mán­uði árs­ins þegar öll gögn þar að lút­andi liggi fyrir. Hins vegar hefur enn ekki orðið af þeirri útgáfu og ekki fást upp­lýs­ingar hjá emb­ætt­inu um neinar tölur þar að lút­andi fyrir þetta ár. „Við erum ekki enn þá komin með þessi gögn en erum að ýta á eftir því að fá krufn­ing­ar­skýrslur frá Land­spít­ala,“ segir Hildur Guðný Ásgeirs­dóttir, verk­efna­stjóri lýð­heilsu hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu.

Engu að síður er það svo að lög­regla kynnti emb­ætt­inu tölur sem hljóða upp á að 30 manns hafi fallið fyrir eigin hendi það sem af er ári, 12 fleiri en á sama tíma á síð­asta ári. Allt síð­asta ár féllu 39 manns fyrir eigin hendi. Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar til Embættis land­læknis kemur meðal ann­ars fram að dán­ar­tíðni, óháð dán­ar­or­sök, sé vöktuð reglu­lega svo hægt sé að grípa til aðgerða ef ástæða þykir til, til dæmis ef dán­ar­tíðni er hærri en vana­lega í til­teknum ald­urs­hópum. Hið sama ætti þá að gilda um sjálfs­víg.

„Við verðum að sjálf­sögðu að taka öllum svona tölum alvar­lega“

Spurð hvort að það sé ekki baga­legt að land­læknir hafi ekki stað­festar tölur til að miða við, og enn fremur hvort að tölur frá lög­reglu gefi ekki til­efni til að grípa til sér­tækra aðgerða, sam­an­ber það sem nefnt er hér að ofan, segir Hildur að svo sé. „Við verðum að sjálf­sögðu að taka öllum svona tölum alvar­lega, þótt við höfum ekki stað­festar tölur. Þess vegna var þessi fundur hald­inn 2. sept­em­ber og í fram­haldi af honum veitti heil­brigð­is­ráð­herra fjár­munum til að auka við starf í for­vörnum gegn sjálfs­vígum. Það er sömu­leiðis sam­ráðs­hópur starf­andi á vegum Embættis land­læknis, Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins og Píeta-sam­tak­anna sem fundar reglu­lega um til hvaða aðgerða sé hægt að grípa í þessum efnum.“

Umræddur starfs­hópur var settur á lagg­irnar sér­stak­lega vegna COVID-ástands­ins. „Hann var settur á lagg­irnar í vor þegar Píeta-sam­tökin og Rauði kross­inn greindu frá því að þau hefðu orðið vör við aukn­ingu á sím­tölum til sín, frá fólki sem greindi frá sjálfs­vígs­hugs­unum. Það er erfitt að segja til um hvort það sé vegna þess að það sé meiri þörf á þjón­ust­unni eða vegna þess að fólk sé orðið betur upp­lýst um þá aðstoð sem þessir aðilar geta veitt. Það var þó upp­lifun fólks sem starfar í þessum geira í sumar að það væri að verða breyt­ing á líðan fólks, til hins verra,“ segir Hildur.

„Það var þó upp­lifun fólks sem starfar í þessum geira í sumar að það væri að verða breyt­ing á líðan fólks, til hins verra“

Vist­un­ar­skrá heil­brigð­is­stofn­ana inni­heldur raun­tíma­gögn um starf­semi heil­brigð­is­stofn­ana, þar á meðal um komur og legur vegna sjálfs­skaða og sjálfs­vígstil­rauna. Greining á gögnum þessa árs gefur ekki vís­bend­ingu um auk­inn fjölda sjálfs­vígstil­rauna og sjálfs­skaða miðað við síð­ast­liðin tvö ár. Það rímar hins vegar ekki við það sem rakið er hér að ofan, tölur lög­reglu, tölur frá Píeta og Rauða kross­inum. Hildur segir erfitt að segja til um hverjar ástæð­urnar fyrir því kunni að vera. „Það er erfitt að segja. Það getur verið að net­spjall og sím­töl, sem hefur fjölgað veru­lega, hafi áhrif í þeim efnum þar sem fólk veigri sér við að fara út úr húsi vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Við höfum því lagt áherslu á aukin raf­ræn sam­skipti á þessum tímum.“

Aðgerð­ar­á­ætlun til að fækka sjálfs­vígum á Íslandi var sam­þykkt í apríl 2018. Í áætl­un­inni eru til­lögur um ýmsar aðgerðir sem mik­il­vægt er að kom­ist í fram­kvæmd, enn þá mik­il­væg­ara nú en áður, segir Hildur. „Sumar aðgerð­anna eru komnar í gang en aðrar eru enn á byrj­un­ar­stigi. Þessari áætlun svipar til sam­bæri­legra áætl­ana erlendis og þar hefur inn­leið­ing­ar­tím­inn verið á bil­inu fimm til tíu ár. Það er hins vegar sér­stak­lega mik­il­vægt að við komum þessum aðgerðum á núna, til að mynda sam­ræmdu mati og við­brögðum við sjálfs­vígs­hættu, þannig að allir heil­brigð­is­starfs­menn, kenn­arar, aðilar innan félags­þjón­ust­unnar og fleiri fái fræðslu til að takast á við og geta rætt um sjálfs­vígs­hugs­anir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár