149. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um jafnöldrur tvær frá Frakklandi

149. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um jafnöldrur tvær frá Frakklandi

Góðan dag! Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá stærsta orr­ustu­skip sem smíðað hefur verið, 70.000 tonna tröll, sem var á ferð­inni í síð­ari heims­styrj­öld. Það bar níu 46 senti­metra hlaup­víðar byssur að aðal­vopnum. Hvaða ríki lét smíða þetta skrímsli?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir Seðla­banka­stjóri?

2.   Um mán­aða­mótin maí/júní sept­em­ber 1916 var háð ein mesta sjóorr­usta sög­unnar, þegar tveir risa­stórir orr­ustu­flotar tók­ust á. Úrslit voru ekki afger­andi þar sem annar flot­inn sneri undan, þegar útlitin var fyrir hrak­farir hans. En hvað kall­ast þessi orr­usta? Við hvaða stað er hún sem sé kennd?

3.   Í hvaða landi er Athos-fjall, þar sem munkar hafa lengi haldið til?

4.   Hvers konar fyr­ir­bæri er ban­ani í skiln­ingi grasa­fræð­innar, nokkuð nákvæm­lega til­greint?

5.   Mikhaíl Tal hét Letti einn, sem nú er lát­inn fyrir tæpum 30 árum. Tal þótti mik­ill afreks­maður á til­teknu sviði og var meira að segja heims­meist­ari í þeirri grein um tíma. Hvaða grein var það?

6.   Hvaða fjall gaus árið 79 eftir Krist og færði nokkrar borgir á kaf í ösku?

7.   Frakkar eru aft­ar­lega á mer­inni þegar að því kemur að treysta konum fyrir háum emb­ættum. Engin kona hefur orðið for­seti þar í landi og aðeins einu sinni hefur kona verið for­sæt­is­ráð­herra. Sú gegndi emb­ætt­inu í aðeins um eitt ár 1991-1992. Hvað heitir kona sú?

8.   Önnur kona, einnig frönsk, var fræg kvik­mynda­stjarna og kyn­bomba en lagði leik­list­ina á hill­una og helg­aði sig dýra­vernd. Þessar tvær konur eru reyndar jafn­gamlar, báðar 86 ára í ár. Hvað heitir kvik­mynda­stjarnan fyrr­ver­andi?

9.   „Sárt ert þú leik­inn, Sámur fóstri,“ sagði Gunnar á Hlíð­ar­enda. Hver var Sámur fóstri hans?

10.   Hvað heitir vin­sæl sjálfsævi­saga Michelle Obama, sem hún skrif­aði reyndar með dyggri aðstoð svo­kall­aðs „drauga­höf­undar“? Nefna má hvort heldur íslenskt eða enskt heiti bók­ar­innar?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Ef þessi kona væri enn á lífi héldi hún í dag upp á 505 ára afmælið sitt, því hún fædd­ist 22. sept­em­ber 1515. Hún hét Anna og er ein þeirra kvenna sem eru þekktastar fyrir eig­in­mann sinn. Hver var sá?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ásgeir Jónsson.

2.   Jótland (Skagerak telst einnig rétt).

3.   Grikk­land.

4.   Ber. „Ávöxtur“ er ekki full­nægj­andi svar.

Cresson

5.   Skák.

6.   Vesúvíus.

7.   Edith Cresson.

8.   Brigitte Bardot.

9.   Hund­ur­inn hans.

Bardot

10.   Becoming heitir bókin á ensku, Verðandi í íslenskri þýð­ingu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er orr­ustu­skipið Yamato á fullri ferð. Það var smíðað í Japan.

Og Anna her­toga­dóttir frá Klifum (Kleve) í Þýska­landi var fjórða eig­in­kona Hinriks 8. Eng­lands­kon­ungs.

***

Og aftur er hér hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár