145. spurningaþraut: Nýlendur Þjóðverja, nýfædd stjarna, nýfluttur úr sveitinni

145. spurningaþraut: Nýlendur Þjóðverja, nýfædd stjarna, nýfluttur úr sveitinni

Hérna er spurn­inga­þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá mann í réttu hlut­falli við risa­skepn­una Paraceratherium, sem uppi var fyrir um 20 millj­ónum ára og lifði í Evrasíu, allt frá Kína til Balkanskaga. Dýrið er eitt af allra stærstu spen­dýrum sem vitað er um. En hvaða dýr sem nú lifir er nán­asti ætt­ingi Paraceratherium?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Þjóð­verjar voru seinir til að verða sér úti um nýlendur í Afríku en undir alda­mótin 1900 höfðu þeir þó lagt undir sig fjögur svæði sem nú eru (nokkurn veg­inn) sam­svar­andi sjálf­stæðum ríkjum. Hvaða ríki eru það? Hér þarf fólk að nefna að minnsta kosti tvö rétt ríki til að geta gert til­kall til þess að fá rétt.

2.   Sænska leik­konan Ingrid Bergman eign­að­ist dóttur sem fet­aði í fót­spor hennar með góðum árangri. Hvað heitir hún?

3.   Íslenska kvik­myndin Land og synir frá 1980 fjallar um ungan sveita­pilt sem þarf að gera upp við sig hvort hann á að hleypa heim­drag­anum og flytj­ast „á möl­ina“ eða halda áfram að búa í sveit­inni. Hver lék þennan sveita­pilt?

4.   Einn af hinum sjö undrum ver­aldar í fornöld var risa­stór viti. Við hvaða borg lýsti hann skipum?

5.   Hvað heitir frétta­rit­ari og pistla­höf­undur Rík­is­út­varps­ins í London til margra ára?

6.   Hvað heitir víð­kunnur franskur miðju­maður í karla­fót­bolta, sem leikur með Manchester United?

7.   Þær Judy Garland og Barbra Streisand léku í kvik­myndum sem hétu A Star is Born og voru gerðar 1954 og 1976 og sögðu frá ungum söng­konum sem komust til frægðar og frama. Enn var myndin end­ur­gerð 2018 og hver lék þá ungu söng­kon­una?

8.   Hvað heitir höf­uð­borgin á Kúbu?

9.   Hvaða írski rit­höf­undur skrif­aði bæk­urnar A Portrait of the Artist as a Young Man og Ulysses?

10.   Í hvaða firði eru Svefn­eyjar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni að neðan má sjá breska leik­ar­ann Ian Richardson í hlut­verki sínu í sjón­varps­þátta­röð sem fyrst var sýnd 1990-1995. Seinna voru þessar ser­íur end­ur­gerðar í Banda­ríkj­unum og urðu vin­sælar. Hvaða hétu ser­í­urnar?

***

Svörin við aðal­spurn­ingum:

1.   Tansanía, Namibía, Kamerún og Tógó.

2.   Isabella Rossel­ini.

3.   Sigurður Sig­ur­jóns­son.

4.   Alex­andríu í Egifta­landi.

5.   Sigrún Dav­íðs­dóttir.

6.   Paul Pogba.

7.   Lady Gaga.

8.   Havana.

9.   James Joyce.

10.   Breiða­firði.

***

Paraceratherium, Afr­íku­fíll og maður

Svör við auka­spurn­ingum:

Dýrið Paraceratherium er skyld­ast nas­hyrn­ingum af þeim dýrum sem nú lifa.

Það hafði þó ekk­ert horn á nefi.

Og sjón­varps­s­er­ían sem spurt var um hét og heitir House of Cards.

***

Og hér er aftur hlekkur á gær­dags­ins spurn­inga­þraut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár