144. spurningaþraut: Hundategund, víkingur, ofviti og er þá fátt eitt talið

144. spurningaþraut: Hundategund, víkingur, ofviti og er þá fátt eitt talið

Þrautin frá í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sá Egil Ólafsson í hlut­verki sínu í 30 ára gam­alli bíó­mynd sem Þráinn Ber­tels­son gerði.

Hvað heitir þessi bíó­mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Fimm sér­stök svæði til­heyra Banda­ríkj­unum, en eru þó ekki eig­in­legir hlutar þeirra. Þetta eru allt heldur fámennar eyjar eða eyja­klasar, en á einu þess­ara svæða búa þó rúmar þrjár millj­ónir manna. Hvað heitir það?

2.   Hver skrif­aði æviminn­inga­bók­ina Ofvitann?

3.   Hver var fyrsti sjón­varps­stjóri Stöðvar 2?

4.   Hvað heitir minnsta hunda­teg­und í heimi?

5.   Ef þið vitið nafnið á hunda­teg­und­inni, þá vit­iði kannski líka að nafnið er komið af hér­aði og borg í ríki einu hér í ver­öld. Hvaða ríki er það?

6.   Hvaða tón­list­ar­maður sendi frá sér hljóm­plöt­una Back to Black árið 2006?

7.    En hvaða söng­kona var í hljóm­sveit­inni Spoon þegar sú hljóm­sveit gaf út sína einu hljóm­plötu árið 1994, þar sem meðal ann­ars mátti finna lög eins og Taboo, sem naut mik­illa vin­sælda það ár?

8.   Hver er uppi­staðan í „steak tart­are“?

9.   Samkvæmt Land­náma­bók varð norskur vík­ingur, sem var á leið milli Noregs og Færeyja, fyrstur allra nor­rænna manna til að líta Ísland augum. Hvað hét hann?

10.   Hversu margir eru gas­risarnir í sól­kerf­inu okkar?

***

Og síð­ari auka­spurn­ingin:

Hvaða dýr er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Púertó Ríkó í Karí­ba­hafi.

2.   Þór­bergur Þórð­ar­son.

3.   Jón Óttar Ragn­ars­son.

4.   Chihuahua.

5.   Mexíkó.

6.   Amy Winehouse.

7.   Emilíana Torrini.

8.   Hrátt nauta­hakk. Nauta­hakk eitt og sér dugar ekki.

9.   Naddoður eða Naddoddur.

10.   Fjórir.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin heitir Magnús eftir per­són­unni sem Egill lék.

***

Síðari auka­spurn­ing:

Já, þetta er kameljón.

***

Og loks aftur hlekkur á þraut­ina frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár