Einar Kárason vinnur að verki um Jón Ásgeir

Einar Kárason rithöfundur leggur nú lokahönd á verk um Jón Ásgeir Jóhannesson athafna­mann. Höfundurinn er fáorður um verkefnið en stað­festir að það komi út á næstunni. Einar hefur áður skrifað sögu Jóns Ólafs­sonar fjár­festis en hlið­stæður má finna í sögum þessara tveggja manna.

„Þetta er alla vega í vinnslu og drögum,“ segir Einar Kárason, rithöfundur og vara­þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurður um hvort hann sé að skrifa bók um fjár­festinn Jón Ásgeir Jóhannesson, líkt og heimildir Stundarinnar herma. Jón Ásgeir er einn þekktasti athafna­maður landsins, stofnandi Bónuss ásamt föður sínum heitnum, og var hann leiðandi í íslensku útrásinni á árunum fyrir banka­hrunið 2008. 

Aðspurður um hvort bókin sé ævisaga segir Einar að það liggi ekki alveg fyrir hvers eðlis bókin verður. „Það verður nú eiginlega að koma í ljós. Þetta er allt í vinnslu,“ segir Einar. 

Einar Kárason er aðallega þekktur sem skáld­sagna­höfundur á Íslandi, meðal annars sem höfundur þríleiksins sem kallaður er Djöfla­eyjan, sem samnefnd kvikmynd var gerð eftir á sínum tíma. Einar hefur hlotið Íslensku bókmennta­verðlaunin einu sinni, árið 2008, auk þess sem hann hefur verið tilnefndur fjórum sinnum til Bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs. 

 „Það verður nú eiginlega að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár