143. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um ýmislegt varðandi górilluapa

143. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um ýmislegt varðandi górilluapa

Hér er gær­dags­þrautin.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða íslensk hljóm­sveit gaf út hljóm­plötu þá sem hér að ofan má sjá skjá­skot af?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi er mest ræktað af maís?

2.   Í vin­sælli bók, sem kom út í Banda­ríkj­unum 2012, segir höf­und­ur­inn Gillian Flynn frá hjón­unum Nick og Amy Dunne sem flytj­ast frá stór­borg og í hálf­gerða sveita­borg, þar sem þau ætla að finna ham­ingj­una. En ham­ingjan finnst ekki, þvert á móti týn­ist bæði hún og annað. Árið 2014 var gerð bíó­mynd þar sem Ben Affleck og Rosamund Pike léku hjónin. Hvað heita sagan og bíó­myndin?

3.   „I scream, you scream, we all scream for ...“ Hvaða orð vantar?

4.   Hvar var bisk­ups­stóll­inn norð­an­lands fyrr á tímum?

5.   Hvað heitir elsta barn Elísa­betar Breta­drottn­ingar?

6.   Hver lék Silvíu Nótt?

7.   Hvaða bær er í austur við þjóð­veg­inn frá Hellu á Rang­ár­völlum?

8.   Hver orti ljóðið Áfanga, sem svo hefst: „Liðið er hátt á aðra öld; / enn mun þó reimt á Kili, / þar sem í snjónum bræðra beið / beisk­legur ald­urtili; / skuggar lyft­ast og líða um hjarn / líkt eins og mynd á þili; / hleypur svo einn með hæru­sekk, /hverfur í dimmu gili.“

9.   Hvað heitir höf­uð­borgin á Indlandi?

10.   Typpi á nútíma­karl­mönnum munu vera um 13 sentí­metra löng að með­al­tali - í fullri reisn. En hversu löng að með­al­tali eru typpi frænda okkar gór­illu­apans, einnig í fullri reisn? Hér má skeika 2 sentí­metrum til að frá.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Banda­ríkj­unum.

2.   Gone Girl - eða Hún er horfin, eins og bókin heitir í íslenskri þýð­ingu.

3.   Icecream.

4.   Að Hólum.

5.   Karl prins.

6.   Ágústa Eva.

7.   Hvols­völlur.

8.   Jón Helgason.

9.   Dehlí, eða Nýja Dehlí.

10.   4 sentí­metrar, svo rétt telst allt frá 2 til 6 sentí­metra.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið af plötu­umslag­inu, sem sést efst, sýnir hluta af umslagi plöt­unnar Kirsuber.

Platan kom út 1991 og var þriðja breið­skífa hljóm­sveit­ar­innar Nýdönsk.

Hér til hliðar má sá umslagið í heild.

***

Síðari auka­spurn­ing:

Á mynd­inni er söng­stjarnan Billie Eilish fyrir nokkrum árum.

***

Og hér er þrautin frá því í gær, aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár