142. spurningaþraut: Hvar er drekinn þegar allt kemur til alls?

142. spurningaþraut: Hvar er drekinn þegar allt kemur til alls?

Þrautin frá í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast sú ofur­hetja sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar, 10 af öllu tagi:

1.   Örlítil eðl­is­fræði: Eftir því sem best er vitað nú um stundir eru það fjórir kraftar sem sjá um að halda hlutum saman, jafnt smæstu öreindum sem hinum stærstu hlutum alheims­ins. Raf­seg­ul­kraftur heitir einn, veiki kjarna­kraft­ur­inn annar og sá þriðji er sterki kjarna­kraft­ur­inn. En hvað heitir sá fjórði og síð­asti?

2.   Þann 14. apríl 2010 hófst mikið eld­gos í Eyja­fjalla­jökli og stóð alls í 39 daga. Daginn áður en gosið hófst, þá lauk hins vegar mun minna eld­gosi sem hafði haf­ist þann 20. mars. Hvar varð þetta litla gos?

3.   Hvaða rit­höf­undur skrif­aði bæk­urnar Afdala­barn, Hrundar vörður; Sæla sveit­ar­innar, Þar sem brim­aldan brotnar, Römm er sú taug, Ölduföll, Svíður sárt brenndum, Á ókunnum slóðum, Í heima­högum, Stýfðar fjaðrir, Hvikul er konu­ást, Sól­mán­að­ar­dagar í Sellandi, Dregur ský fyrir sól, Nátt­mála­skin, Gulnuð blöð og Utan frá sjó?

4.   Hvað heitir eig­in­maður Breta­drottn­ingar?

5.   Hvaða fljót fellur um Rómaborg?

6.   Í hvaða hluta manns­lík­ams er „drek­inn“ eða „hippocampus“?

7.   Hvar voru vetr­ar­ólymp­íu­leik­arnir haldnir árið 2018?

8.   Margrét Lára Við­ars­dóttir hefur skorað lang­flest mörk (79) fyrir íslenska kvenna­lands­liðið í fót­bolta. Í öðru sæti er öfl­ugur miðju­spil­ari sem leikið hefur víða á all­löngum ferli, bæði hér og erlendis, þar á meðal á Norð­ur­lönd­unum og í Banda­ríkj­unum. Hún er nú hætt með lands­lið­inu svo mörkin hennar 37 verða ekki fleiri. Hvað heitir hún?

9.   Hvað hét fyrsti mað­ur­inn sem fór út í geim­inn?

10.   Teikni­mynda­ser­ían The Simpsons er sú sjón­varps­s­ería vest­an­hafs sem lengst hefur gengið og er raunar enn í gangi. Í næstu sætum eru tvær útgáfur Law and Order, og svo kab­boja­þátt­ur­inn Gunsmoke. Í fimmta sæti er aftur sería sem gekk í 19 og þar var dýr í aðal­hlut­verki. Hvað hét það dýr?

***

Og seinni auka­spurn­ingin:

Hvað heita þessi hjón?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þyngd­ar­kraft­ur­inn, öðru nafni aðdrátt­ar­aflið.

2.   Á Fimm­vörðu­hálsi.

3.   Guðrún frá Lundi.

4.   Filippus.

5.   Tíber.

6.   Í heil­anum.

7.   Pyeongchang eða Pjongj­ang.

8.   Hólm­fríður Magn­ús­dóttir.

9.   Júrí Gagarín.

10.   Lassie, og var hundur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Chadwick Boseman

Myndin efst sýnir ofur­hetj­una Svarta hlé­barð­ann eða Black Panter, sem Chadwick heit­inn Boseman þótti túlka eft­ir­minni­lega.

Neðri myndin sýnir aftur á móti Mikhaíl Gor­bat­sjov, síð­asta leið­toga Sov­ét­ríkj­anna, og Raísu eig­in­konu hans.

Á mynd­inni hér að neðan má sá þau ögn síðar á ævinni og við eitt­hvert alvar­legra til­efni.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár