141. spurningaþraut: Landlukt lönd og ofurhetjur, og margt fleira

141. spurningaþraut: Landlukt lönd og ofurhetjur, og margt fleira

Hlekk­ur­inn á þraut­ina frá í gær, hér er hann.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir hljóm­sveitin sem er að troða upp á mynd­inni hér að ofan? Takið eftir orða­lagi spurn­ing­ar­innar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Gætinn íslenskur stjórn­mála­maður vildi ekki taka of stórt upp í sig þegar ótíð­indi bár­ust. Hann tamdi sér að svara fréttum af því tagi með orð­unum: „Ég lít þetta alvar­legum augum.“ Hver var þessi stjórn­mála­maður?

2.   Árið 2008 var frum­sýnd kvik­mynd á vegum Marvel-fyr­ir­tæk­is­ins amer­íska um ofur­hetjur nokkrar. Þessi mynd mark­aði uphaf ótrú­lega umfangs­mik­illar og arð­væn­legrar fram­leiðslu á Marvel-myndum og nú þegar eru þær orðnar 23. Hvað hét þessi fyrsta mynd í Marvel-ser­í­unni?

3.   Landlukt eru þau ríki sem eiga engan aðgang að sjó. Tvö ríki í heim­inum eru „tvisvar sinnum land­lukt“ ef svo má segja. Það er að segja þau eiga ein­göngu landa­mæri að ríkjum sem einnig eru land­lukt. Annað þess­ara ríkja er að finna í Evrópu. Hvað er það?

4.   Hitt tvisvar sinnum land­lukta ríkið er í Asíu, og er umlukt hvorki fleiri né færri en fimm land­luktum ríkjum. Hvað heitir það?

5.   Hver varð for­sæt­is­ráð­herra Breta vorið 1940?

6.   Hver var hættu­leg­asti keppi­nautur Donalds Trumps um for­seta­emb­ættið í Banda­rík­unum 2016?

7.   Hvað heitir for­seta­frú Íslands?

8.   Hvað heitir bæj­ar­stjór­inn á Akureyri?

9.   Kaffi­bar­inn er senni­lega fræg­asta vín­veit­inga­húsið í Reykja­vík. Við hvaða götu stendur Kaffi­bar­inn?

10.   Hvað heitir Jóakim Aðalönd á ensku?

***

Og seinni auka­spurn­ingin er ein­fald­lega:

Útlínur hvaða lands má sjá hér?

 Og þá koma svörin við aðal­spurn­ing­unum:

1.   Geir Hall­gríms­son.

2.   Iron Man.

3.   Liechtenstein er umkringt hinum land­luktu Sviss og Aust­ur­ríki.

4.   Úsbekistan er umlukt hinum land­luktu Kasakstan, Tajikistan, Kyrgyztan, Tur­k­menistan og Afganistan.

5.   Winston Churchill.

6.   Hillary Clinton.

7.   Eliza Reid.

8.   Ást­hildur Sturlu­dóttir.

9.   Berg­staða­stræti.

10.   Scrooge McDuck.

***

Myndin, er fylgir fyrri auka­spurn­ing­unni, sýnir hljóm­sveit­ina E Street Band.

Það er ekki nóg að segja hljóm­sveit Bruce Springsteens, þar eð skýrt og greini­lega var spurt um nafn hljóm­sveit­ar­innar sjálfrar.

***

Útlín­urnar í seinni spurn­ing­unni eru útlínur Sví­þjóðar.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár