140. spurningaþraut snýst um klassíska músík, en spurningarnar eru við allra hæfi

140. spurningaþraut snýst um klassíska músík, en spurningarnar eru við allra hæfi

Athugið að hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Að venju snú­ast spurn­ing­arnar um eitt og sama efnið, þegar tala þrautar endar á núlli.

(Nema ein í þetta sinn, sjá hér að neðan.)

Nú er klass­ísk tón­list það sem allt snýst um, en menn þurfa þó ekki að vera miklir sér­fræð­ingar til að ráða við spurn­ing­arnar flestar.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Hvaða tón­skáld er á mynd­inni hér að ofan?

***

1.   Hver samdi „Hetjus­in­fón­í­una“ svoköll­uðu, eða „Eroica“, eins og hún er kölluð á erlendum málum, en var í raun­inni þriðja sin­fónía hans af níu?

2.   Á 18. öld var uppi tón­list­ar­maður í Þýska­landi sem var lengi kantor eða tón­list­ar­stjóri við mennta­stofnun í Leipzig og org­el­leik­ari við kirkjur þar í borg. Hann samdi gríð­ar­lega mikið af alls­konar kirkju­legri tón­list, sem margir telja allt að því guð­lega að feg­urð. Margir sona hans fet­uðu í fót­spor hans og gerð­ust tón­skáld. Enginn son­anna komst þó í hálf­kvisti við gamla mann­inn. Hvað hét hann?

3.   „Menúett og tríó í g-dúr“ er það kallað, fyrsta verk frægs tón­skálds, sem hann (já, nátt­úr­lega var það hann) samdi á veru­lega ungum aldri. Hvaða tón­skáld var það?

4.   Hver samdi „Óðinn til gleð­innar“?

5.   Johann Strauss yngri var aust­ur­rískt tón­skáld sem samdi víð­frægan vals sem hann nefndi eftir fljóti nokkru sem hann hafði ein­lægt fyrir aug­unum. Hvað heitir þessi vals?

6.   Hver samdi óper­urnar „Sieg­fried“, „Parzifal“, „Ragnarök“, „Val­kyrj­urnar“, „Rín­ar­gull“ og fleiri?

7.   Hver samdi órator­í­una „Messías“ sem frum­flutt var 1742?

8.   Hver samdi smá­verkið „Für Elise“ á píanó?

9.   „Árs­tíð­irnar fjórar“ eru í raun fjórir fiðlu­konsertar eftir ...?

10.   Sárafáar konur komust í fremstu röð klass­ískra tón­skálda, þótt auð­vitað störf­uðu þær að tón­list og tón­sköpun. Ein þýsk kona fædd­ist í byrjun 19. aldar og gerð­ist píanó­leik­ari. Hún vann mjög náið með bróður sínum, sem einnig var píanó­leik­ari og tón­skáld, og þegar hún fór að semja sín eigin verk gaf hún þau gjarnan út undir nafni bróð­ur­ins. Hún lést aðeins rúm­lega fer­tug og það leið á löngu uns raun­veru­leg staða hennar sem prýðis tón­skáld varð ljóst. Hvað hét þessi kona?

***

Síðari auka­spurn­ingin er sú eina, sem ekki snýst um klass­ísk tón­verk eða tón­skáld.

Myndin hér að neðan er birt vegna þess að þessi karl á afmæli í dag, hann er 31s árs frá og með þessum degi. 

Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Beethoven. Hér er þessi til­þrifa­mikla sin­fónía.

2.   Bach. Hér er „aría“ úr Hljóm­sveit­ar­svítu númer 3, gengur oft­ast undir naf­inu „air“.

3.   Mozart. Hann var fimm ára þegar hann samdi þetta verk. Hlýðið á það hér. 

4.   Beethoven. Hér er óður­inn fluttur á fremur óhefð­bund­inn hátt.

5.   „Dóná svo blá.“ Hér er vals­inn góði.

6.   Richard Wagner. Hér má heyra fræga notkun á for­leiknum að Val­kyrj­unum.

7.   Händel. Hér er örstutt brot.

8.   Beethoven. Hér er Elísa.

9.   Vivaldi. Hér má hlýða á Árs­tíð­irnar hans.

10.   Fanny Mendels­sohn. Hér er Páska­sónata hennar.

***

Svarið við fyrri auka­spurn­ingu er ... Mozart.

Svarið við seinni auka­spurn­ingu er Thomas Müller, sókn­ar­maður hjá Bayern München. Hér má sjá nokkur verka hans.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár