139. spurningaþraut: Hin ógæfusama drottning sem ríkti bara í níu daga

139. spurningaþraut: Hin ógæfusama drottning sem ríkti bara í níu daga

Hlekkur þessi er á þraut gær­dags­ins.

***

Auka­spurn­ingar:

Sú fyrri:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá teikni­mynda­hetj­una Dodda ásamt ónefndri per­sónu. Hver skrif­aði text­ann í hinum upp­haf­legu sögum um Dodda?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í Bibl­íu­sög­unum segir frá því að Davíð nokkur hafi verið mik­il­feng­leg­asti kóngur Ísra­els­manna til forna. Hann sló í gegn ungur að árum þegar hann sigr­aði ris­ann Golíat. En í þjón­ustu hverra var Golíat?

2.   Eftir langan feril sem kóngur dó Davíð, eins og lög gera ráð fyrir. Þá tók við völdum í Ísra­els­ríki sonur hans og varð frægð hans litlu minni en Davíðs. Hvað hét son­ur­inn?

3.   Árið 1990 sendi banda­ríska geim­ferða­stofn­unin NASA stjörnu­sjónauka út í geim­inn, sem olli bylt­ingu í stjörnu­at­hug­unum. Reglu­lega síð­ustu 30 árin hafa borist frá sjón­auk­anum nýjar og merki­legar myndir sem auka á þekk­ingu okkar á alheim­inum. Búist er við að sjón­auk­inn geti enst í 10-20 ár enn. Hvað kall­ast hann?

4.   Í hvaða borg ger­ast sögur Elenu Ferrante um fram­úr­skar­andi vin­konu?

5.   Hvað hét síð­asta plata Bítlanna, sem út kom eftir að þeir voru í raun hættir störfum?

6.   Gadus mor­hua heitir á lat­ínu fiskur einn, sem heitir á hol­lensku kabeljauw, á kúrdísku cinsek masî, á ung­versku tőkehal og á hindí कॉड. Hvað heitir gadus mor­hua á íslensku?

7. Halldór Helgason er einn af kunn­ustu íþrótta­mönnum á Íslandi og hefur verið síð­ustu árin. Hann er að vísu ótrú­lega lítið þekktur hér á landi en erlendis fylgj­ast margir með honum og hafa gert síðan hann sló ærlega í gegn á alþjóð­legu móti árið 2010. Hver er hans íþrótta­grein?

8. Hvað heitir rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn sem veikt­ist hast­ar­lega fyrir örfáum vikum og sagt er að rúss­nesk stjórn­völd hafi látið eitra fyrir honum? Hér dugar eft­ir­nafn.

9. Forseti banda­rísku full­trúa­deild­ar­innar var um dag­inn stað­inn að grímu­lausum hár­þvotti. Hvað heitir þessi for­seti? Hér dugar líka eft­ir­nafn.

10. Árið 1553 dó á Englandi Ját­varður kóngur 7. sem var aðeins 15 ára, sonur Hinriks 8. Hinn ungi Ját­varður átti tvær eldri systur en leit­að­ist á bana­beð­inu við að úti­loka þær frá hásæt­inu, með því að útnefna sem erf­ingja sinn frænku sína, sem var dótt­ur­dóttir föð­ur­systur hans. Þessi frænka, sem var 16 ára gömul, varð því drottn­ing yfir Englandi. En aðeins níu dögum síðar veltu stuðn­ings­menn Maríu systur Ját­varðar ungu stúlkunni frá völdum og hún var háls­höggvin. Hún er stundum kölluð „níu daga drottn­ingin“. Hvað hét hún?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Úr hvaða bíó­mynd eða bíó­mynda­röð er þetta skjá­skot?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Filistea.

2.   Salómon.

3.   Hubble.

4.   Napólí.

5.   Let It Be.

6.   Þorskur.

7.   Snjó­bretti.

8.   Navalny.

9.   Nancy Pelosi.

10.   Jane, á Englandi oft kölluð Lady Jane.

***

Svar við fyrri auka­spurn­ingu:

Enid Blyton.

Svar við síð­ari auka­spurn­ingu:

Hung­ur­leik­arnir, eða Hunger Games.

Hér má sjá Jennifer Lawrence í hlut­verki sínu í einni mynd­anna.

***

Hér er svo aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár