138. spurningaþraut: Hversu stór hluti alheimsins er „venjulegt efni“?

138. spurningaþraut: Hversu stór hluti alheimsins er „venjulegt efni“?

Hér, já hér, er þrautin frá í gær.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er sá hinn hnar­reisti karl á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Portú­gali einn heitir Salvador Sobral. Hvað hefur hann helst gert sér til frægðar?

2.   Með hvaða fót­boltaliði spilar Robert Lewandowski?

3.   Hvað segir Biblían að Júdas hafi fengið fyrir að svíkja Jesúa frá Nasaret í hendur Rómverja?

4.   Kvik­myndin The Deer Hunter frá árinu 1978 fjallar um nokkra banda­ríska vinnu­fé­laga sem fara í Víetnam-stríðið og lenda þar í miklum lífs­háska og sál­ar­háska. Í hand­riti mynd­ar­innar var gert ráð fyrir að kærasta eins þeirra yrði algjört smá­hlut­verk í mynd­inni, en ung og efni­leg leik­kona sýndi því­lík til­þrif strax við æfingar að leik­stjór­inn Michael Cimino stækk­aði hlut­verkið og leyfði henni að semja sinn eigin texta. Og með svo góðum árangri að hún var til­nefnd til Ósk­arsverð­launa fyrir vikið. Hver var þessi unga leik­kona?

5.   Fyrsta íslenska konan sem fékk bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs fékk þau árið 1992 fyrir bók­ina Meðan nóttin líður. Hvað hét höf­und­ur­inn?

6.   Hvað heitir stærsta eyjan í Færeyja-klas­anum?

7.   Hvaða tvö ríki eiga strand­lengju að Eyja­haf­inu?

8.   Eins og allir vita, þá er hinn sýni­legi alheimur gerður úr efni. En vís­inda­menn hafa líka reiknað út að líka sé til svo­kallað „dökkt efni“ eða „dark matter“, sem eng­inn veit almenni­lega hvað er, og enn­fremur dul­ar­fullt fyr­ir­brigði sem kall­ast „dark energy“. Dökka efn­inu og dökka efn­inu er mjög erfitt að henda reiður á, en hve stór hluti alheims­ins virð­ist vera „venju­legt efni“ af því tagi sem við skiljum? Nefnið svarið í pró­sentum, það má muna 5 til eða frá.

9.   Hvað heitir höf­uð­borg Ítalíu?

10.   Carl Jung hét maður, sviss­neskur, sem lést hálf­ní­ræður árið 1961. Hver var atvinna hans?

***

Og hér er seinni auka­spurn­ingin:

Í hvaða vin­sælu sjón­varps­þáttum lék konan, sem hér sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Vann Eurovision.

2.   Bayern München.

3.   Þrjátíu silf­ur­pen­inga.

4.   Meryl Streep.

5.   Fríða Á. Sig­urð­ar­dóttir.

6.   Straumey.

7.   Grikk­land og Tyrkland.

8.   Fimm pró­sent. Rétt telst því vera allt til og með 10 pró­sentum.

9.   Róm.

10.   Sál­fræð­ingur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá hinn unga Franklin Delano Roosevelt árið 1910.

Hann varð síðar for­seti Banda­ríkj­anna, svo sem alkunna er, og stýrði málum landa sinna í síð­ari heims­styrj­öld­inni.

Hér til hliðar má mynd af honum undir lok ævinnar, en hann lést rétt fyrir stríðs­lok, í apríl 1945.

Þetta mun raunar vera síð­asta ljós­myndin sem tekin var af honum. Þetta er lituð svart­hvít mynd.

Í raun­inni veit eng­inn hvernig bindið hans var á lit­inn. Það gæti hafa verið rautt!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hún Sidse Babett Knudsen lék að sjálf­sögðu í þátta­röð­inni Borgen.

***

Og aftur og að síð­ustu:

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár