135. spurningaþraut: Dagblað í Danmörku, fjölmenn ríki, spænskur réttur

135. spurningaþraut: Dagblað í Danmörku, fjölmenn ríki, spænskur réttur

Hæ. Hér er þrautin frá því í gær.

En þá er það fyrst fyrri auka­spurn­ing.

Hún vísar til mynd­ar­innar hér að ofan.

Myndin sýnir brot af frægu mál­verki. Hvað heitir það?

***

Hér eru aðal­spurn­ing­arnar í dag:

1.   Íslend­ingar áttu þátt í að stofna dag­blað í Danmörku fyrir 14 árum, Nyhedsa­visen hét það. Því var dreift ókeypis og náði mik­illi útbreiðslu, þótt ekki yrði það lang­líft. Gam­al­reyndur rit­stjóri og fjöl­miðla­maður á Íslandi átti mestan þátt í að hleypa því af stokk­unum, og hafði enda áður gert svip­aða hluti á Íslandi, með góðum árangri. Hver er mað­ur­inn?

2.   Hvað hét franska skop­mynda­blaðið sem birti umdeildar myndir af Múhameð spá­manni múslima?

3.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Canberra?

4.   Meiri landa­fræði: Kína er fjöl­menn­asta ríki heims og Indland kemur skammt á eftir. En hvaða ríki er í þriðja sæti?

5.   En hvaða ríki er svo í fjórða sæti?

6.   Hvaða tón­list­ar­maður hefur gefið út gíf­ur­lega vin­sælar plötur sem heita þeim yfir­læt­is­lausu nöfnum 19, 21 og 25?

7.   Hvað heitir spænskur réttur, upp­runn­inn í Valencia, sem hefur að geyma sjáv­ar­af­urðir eða ýmis­legt kjöt, og svo mikið af hrís­grjónum, auk krydds og ýmissa jurta, sem er eldað saman í einni pönnu, og yfir­leitt borið fram á henni líka? Saffron þykir ómissandi krydd í þennan rétt.

8.   Hver skrif­aði Heimskringlu?

9.   Úr hvaða gígum kom hraunið sem rann í Skaft­ár­eldum?

10.   Ódóaker hét maður maður, uppi í fornöld, nánar til­tekið á fimmtu öld eftir Krist. Hvert er til­kall Ódóakers til frægðar? 

***

Og þá kemur síð­ari auka­spurn­ing.

Hvað heitir hljóm­sveitin, sem hér treður upp:

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Gunnar Smári Egilsson.

2.   Charlie Hebdo.

3.   Ástralíu.

4.   Banda­ríkin.

5.   Indónesía.

6.   Adele.

7.   Paella.

8.   Snorri Sturlu­son.

9.   Laka­gígum.

10.   Hann setti frá völdum síð­asta keis­ara vest­ur­róm­verska rík­is­ins árið 476 og með því mark­aði hann í raun enda­lok hins eig­in­lega Róma­veldis, þótt það lifði áfram í austri lengi enn.

***

Svörin við auka­spurn­ing­unum:

Mál­verkið heitir Guernica og var málað af Pablo Picasso.

Það lítur svona út í heild:

Hljóm­sveitin, sem spurt var um í seinni auka­spurn­ingu, heitir aftur á móti Skrið­jöklar, eða hét, því hún mun vera lítt eða starf­andi um þessar mundir.

***

Og hér er loks aftur linkur á þraut gær­dags­ins.

Missið alls ekki af henni!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár