133. spurningaþraut:

133. spurningaþraut:

Hérna, já, hérna er þrautin frá í gær.

Og fyrri auka­spurn­ing er þessi:

Hverju er fólkið að fagna?

***

Aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Fyrir tveim vikum blossuðu upp mikil mót­mæli í borg einni í rík­inu Wisconsin í Banda­ríkj­unum eftir að lög­reglu­maður skaut svartan mann sjö sinnum í bakið. Hvað heitir borgin?

2.   Hvað hét helsti keppi­nautur Juliusar Caesars um æðstu völd í Róma­veldi, maður sem end­aði ævina myrtur á ströndum Egifta­lands?

3.   Hvaða tungu­mál var hið algeng­asta í Róma­veldi?

4.   Hvað heitir höf­uð­borg Banda­ríkj­anna?

5.   Hvað er algeng­asta bæj­ar­nafn á Íslandi, sam­kvæmt vef Árna­stofn­unar?

6.   Banda­ríski leik­ar­inn Chadwick Boseman lést fyrir skemmstu úr krabba­meini, aðeins 43ja ára að aldri. Hann lék í ýmsum myndum eins og gengur en sló ræki­lega í gegn sem kon­ungur í ímynd­uðu Afr­íku­ríki, sem reyn­ist sann­kölluð ofur­hetja. Hvað hét kvik­myndin þar sem Boseman lék þessa per­sónu?

7.   Árið 1942 kom til tals í Reykja­vík að reisa stór­hýsi undir Rauða kross­inn á til­teknum stað og ætl­uðu Banda­ríkja­menn að ann­ast fram­kvæmd­ina. Ekkert varð þó úr, enda ekki allir á eitt sáttir um stað­ar­valið. Í grein í Morg­un­blað­inu sagði til dæmis: „Fráleit er sú til­laga, að setja nokk­urt hús [á þennan stað]. Og því verra, sem húsið væri stærra, og nær miðju [stað­ar­ins]. Hyrfi þá meg­in­hluti þess­arar bæj­ar­prýði - sem á að vera - og holl­ustu­svæðis. Hyrfi í bik­aða möl og ofaní­borna vegi umhverfis stór­bygg­ing­una og út frá henni [...] á tvo (minnst) eða fleiri vegu. Kæmi þar svo ein nýmóð­ins kulda­klöpp til­breyt­ing­ar­snauð og feg­urð­ar­laus, væri það hnífstunga og holund­arsár í hjarta bæj­ar­ins.“

Hvar átti þessi bygg­ing að rísa? 

8.   Hild­eg­ard frá Bingen hét stór­merki­leg kona þýsk, sem uppi var á 12. öld. Hún var abba­dís, heim­spek­ingur, dul­spek­ingur, nátt­úru­fræð­ingur og læknir. En þar að auki fékkst hún við list­grein eina, sem sjald­gæft var að konur fengjust við í þann tíma, og skóp fjölda verka sem menn njóta enn í dag. Við hvaða list­grein fékkst Hild­eg­ard frá Bingen?

9.   Hvað heitir lengsta hvala­teg­und heims?

10.   Við hvern er Geirsnef í Reykja­vík kennt?

***

Og er komið að síð­ari auka­spurn­ing­unni:

Hver er sá karl sem skart­aði þess­ari klipp­ingu við ákveðið tæki­færi, klipp­ingu sem hafði aldrei sést áður og mun von­andi aldrei sjást framar?

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kenosha.

2.   Pompeius.

3.   Latína.

4.   Washington.

5.   Hóll.

6.   Black Panther.

7.   Úti í Tjörn­inni.

8.   Tónlist.

9.   Steypireyður.

10.   Geir Hall­gríms­son borg­ar­stjóra og for­sæt­is­ráð­herra.

***

Svörin við auka­spurn­ingum:

Fólkið var að fagna og for­vitn­ast um heim­sókn Winstons Churchills for­sæt­is­ráð­herra Breta til Reykja­víkur síð­sum­ars 1941.

Síðari auka­spurn­ing:

Það var brasil­íski fót­bolta­snill­ing­ur­inn Ronaldo sem mætti svona til leiks á Heims­meist­ara­mót­inu í fót­bolta 2002.

Skýring hans á þess­ari ömur­legu klipp­ingu var sú að hann hafði verið meiddur fyrir mótið, og stóðu þá yfir miklar umræður um hvort hann yrði til­bú­inn til leiks.

Allar þessar umræður stressuðu kapp­ann, svo hann lét klippa sig svona svo allir myndu bara tala um klipp­ing­una en ekki meiðsli hans.

Það tókst!

Ronaldo stóð sig svo frá­bær­lega á mót­inu.

***

Og svo er hér aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár