132. spurningaþraut: Hvað hét Gyðingur frá Bæjaralandi sem stofnaði fyrirtæki í San Francisco 1853?

132. spurningaþraut: Hvað hét Gyðingur frá Bæjaralandi sem stofnaði fyrirtæki í San Francisco 1853?

Jæja þá! Hér er þraut gær­dags­ins.

Og fyrri auka­spurn­ingin hljóðar svo:

Af hvaða fræga mál­verki sést hér svo­lít­ill hluti?

***

Aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Banda­ríska þingið skipt­ist í tvær deildir, öld­unga­deild og ...?

2.   Í Laug­ar­dal var steypt fyrsta sund­laug í Reykja­vík 1908. En hvaða almenn­ings­sund­laug í borg­inni kom næst?

3.   Allir vita að Hvanna­dals­hnjúkur í Öræfajökli er hæsti staður á Íslandi. En hvar er sá næst­hæsti?

4.   Og ætli sé þor­andi að spyrja um þann þriðja hæsta líka?

5.   Ein vin­sælasta og lit­rík­asta söng­stjarna nútím­ans gaf út plötu í miðju kóf­inu í vor, Chromatica heitir platan. Hún hefur þegar gefið af sér tvö gíf­ur­lega vin­sæl og hress lög, Stupid Love og Rain on Me, þar sem söng­stjarnan þenur sig alla. Í síð­ara lag­inu hefur hún Ariönu Grande sér til full­tingis. Hvað heitir þessi söng­stjarna, eða hvað kallar hún sig rétt­ara sagt?

6.  Hver urðu örlög Heinrich Himmlers yfir­manns hinna mjög svo ill­ræmdu SS-sveita í síð­ari heims­styrj­öld­inni?

7.   Fyrir hvaða flokk hefur Angela Merkel setið á þýska þing­inu síðan 1990?

8.   Hver er stærsta og fræg­asta áin sem fellur í Svarta­haf?

9.   Hvað heitir banka­stjóri Íslands­banka?

10.   Árið 1853 eða 1854 stofn­aði þýskur inn­flytj­andi í Banda­ríkj­unum kram­búð í San Francisco. Þar voru seldar nýlendu­vörur, fatn­aður, verk­færi, greiður, töskur, beddar og ótal margt fleira smá­legt. Smátt og smátt fór Þjóð­verj­inn (nánar til­tekið Bæjari af Gyð­inga­ættum) að feta sig áfram við fram­leiðslu á til­tek­inni vöru­teg­und. Segja má að frá og með árinu 1873 hafi sú fram­leiðsla tekið yfir aðra starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Hún gekk mjög vel og Þjóð­verj­inn var orð­inn for­ríkur þegar hann and­að­ist árið 1902. Ekki sljákk­aði þó í fyr­ir­tæk­inu, þvert á móti. Fram­leiðslu­varan varð æ vin­sælli og margir aðrir fóru að fram­leiða sams konar vöru. Enn í dag þykir þó allra fín­asta varan af þessu tagi vera sú sem fyr­ir­tæki Þjóð­verj­ans sál­uga fram­leiðir, og ber reyndar nafn hans. Hvað hét hann?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Hvaða dýr er þetta?

Svörin við aðal­spurn­ingum:

1.   Full­trúa­deild.

2.   Sund­höllin.

3.   Á Bárð­ar­bungu.

4.   Í Kverk­fjöllum, þar sem hæsti hnjúk­ur­inn heitir Jörfi.

5.   Lady Gaga.

6.   Hann svipti sig lífi.

7.   Hún er í flokki kristi­legra demókrata.

8.   Dóná.

9.   Birna Ein­ars­dóttir.

10.   Levi Strauss. Fram­leiðslu­varan er að sjálf­sögðu galla­buxur.

***

Auka­spurn­ingar:

Mál­verkið, sem svo­lít­ill hluti sést af á efri mynd­inni, heitir Fæðing Venusar og er eftir Sandro Botticelli.

Hér má sjá það í heild, eða svo gott sem.

Það er nóg að þið vitið að þetta er mynd af Venusi, það er ekki endi­lega nauð­syn­legt að vita að mál­verkið heiti Fæðing Venusar.

Svarið við hinni auka­spurn­ing­unni er hins vegar skúnkur.

Dýr sem þú skal fyrir alla muni koma í veg fyrir að nái að sprauta sínum illa­vefj­andi vökva á þig.

***

Og hér er aftur link­ur­inn á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár