131. spurningaþraut: Hversu miklar líkur eru á að fá Royal Flush?

131. spurningaþraut: Hversu miklar líkur eru á að fá Royal Flush?

Hér er þrautin frá í gær, frá­bærar fugla­myndir Þorfinns Sig­ur­geirs­sonar. Spreytið ykkur á þeim, ef þið eruð ekki búin að því.

En fyrri auka­spurn­ing dags­ins er svona:

Hver er lág­vaxni karl­inn í miðið á mynd­inni, sem Ólafur Thors for­sæt­is­ráð­herra er að tala við?

***

Aðal­spurn­ing­arnar eru tíu:

1.   Til hvaða þjóðar telst sagna­rit­ar­inn Heródótus sem uppi var í fornöld?

2.   Hvað heitir knatt­spyrnu­stjóri karla­liðs Liverpool í fót­bolta?

3.   „Royal Flush“ kall­ast það í póker þegar spil­arar fá á fyrstu hendi ás, kóng, drottn­ingu, gosa og tíu í ein­hverri sort. En hversu miklar líkur eru á að fá „Royal Flush“? Er það einn á móti (tæp­lega) 70, 700, 7.000, 70.000 eða 700.000?

4.   En fyrst við erum að pæla í töl­unni 7, þá má líka spyrja: Hversu mörg vín­ber eru að með­al­tali notuð við fram­leiðslu á einni létt­víns­flösku? Eru þau 70, 700, 7.000 eða 70.000?

5.   Hvað eru pysjur?

6.   Í hvaða landi á bíla­teg­unin Toyota upp­runa sinn?

7.   En í hvaða landi er höf­uð­borgin Ankara?

8.   Til forna var örnefnið Roms­hvala­nes að finna á fleiri en einum stað á Íslandi. En hvað eru rosmhvalir?

9.   Hvaða styrj­öld, sem kost­aði meira en milljón manns­líf, geis­aði frá árinu 1861 og fram á vor 1865?

10.   Hvað heitir sú íslenska söng­kona sem tróð fyrst upp í Eurovision, ein síns liðs (en með bak­raddir þó)?

***

Og seinni auka­spurn­ingin:

Hver er þetta? Það er ekki endi­lega nauð­syn­legt að vita nafnið hans, enda gengur hann undir mis­mun­andi nöfnum í mis­mun­andi löndum. En nauð­syn­legt er að vita hver er helsti hjálp­ar­kokkur þessa lög­reglu­stóra við lög­gæslu­störf.

Þá koma hér svörin við aðal­spurn­ingum:

1.   Hann var grískur.

2.   Jürgen Klopp. Eft­ir­nafnið hans dugar.

3.   Líkurnar á að fá „Royal Flush“ eru einn á móti tæp­lega 700.000. Þú þarft nákvæm­lega talið að reyna 649,740 sinnum áður en töl­fræðin segir nokkuð ljóst að þú hafir fengið „Royal Flush“ einu sinni.

4.   700 vín­ber fara í eina flösku.

5.   Ungar lund­ans.

6.   Japan.

7.   Tyrk­landi.

8.   Rost­ungar.

9.   Borg­ara­stríðið í Banda­ríkj­unum.

10.   Halla Margrét. Hún söng Hægt og hljótt árið 1987.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn, sem er að tala við Ólaf Thors, er David Ben-Gurion for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, sem kom hingað til lands í opin­bera heim­sókn árið 1962.

Konan lengst til vinstri (sem sést kannski ekki í síma­út­gáfu þraut­ar­innar, er Ingi­björg Ind­riða­dóttir Thors, eig­in­kona Ólafs.

Á neðri mynd­inni er lög­reglu­stjór­inn Seamus O'Hara sem svo heitir á ensku, Striks á dönsku og Bjarg­fastur lög­reglu­stóri á íslensku. Hans hjálp­ar­hella við lög­gæslu­störfin er að sjálf­sögðu Mikki mús.

***

Og hér er aftur linkur á fugla­þraut­ina frá í gær.

Svarið við auka­auka­spurn­ing­unni frá í gær er svo þetta:

Þetta eru gar­gendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár