129. spurningaþraut: „Eigi skal gráta Björn bónda.“ Hver sagði þetta aftur?

129. spurningaþraut: „Eigi skal gráta Björn bónda.“ Hver sagði þetta aftur?

Hérna er fyrst þrautin frá í gær, gott fólk. Reynið ykkur við hana ef þið eruð ekki búin að því.

En fyrri auka­spurn­ingin er þessi:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá þriggja ára gamlan pilt að nafni Richard Vuu. Hann er þarna að leika í kvik­mynd, þótt hann hafi kannski gert sér litla grein fyrir því sjálfur.

Hvað hét sú kvik­mynd?

***

Aðal­spurn­ing­arnar tíu af öllu tagi:

1.   Níu risa­borgir í Kína hafa stöðu 国家中心城市, en í því felst að þær telj­ast „þjóð­legar mið­stöðv­ar­borgir“ og eiga að vera leið­andi í fram­leiðslu menn­ingu og póli­tík. Nefnið þrjár þess­ara borga.

2.   Hvað heitir stærsta máfa­teg­und í heimi? Hún er vel þekkt við Ísland eins og víða ann­ars staðar?

3.   Ivanka, Donald, Tiffany, Barron og ... hver?

4.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Bern?

5.   Ein allra fræg­asta leik­kona heims­ins tryggði sér rétt á að end­ur­gera í Banda­ríkj­unum kvik­mynd Bene­dikts Erlings­sonar, Kona fer í stríð. Hver er sú?

6.   „Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði.“ Hver sagði þetta? 

7.   Í nor­rænni goða­fræði segir af brú milli mann­heima og goða­heima. Hver er þessi brú?

8.   Hvað heitir leik­stjóri kvik­mynd­ar­innar Tenet?

9.   Hvað er algeng­asta kven­manns­nafn á Íslandi nú?

10.   Baltasar Kormákur er í fyr­ir­svari fyrir kvik­mynda­ver eitt mikið sem opnað var form­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir tveim árum. Hvar nákvæm­lega er það?

***

Og seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi jarð­ar­á­vöxtur?

Þá vindum við bráðan bug að svör­unum:

1.  Borg­irnar níu eru Beijing, Tianjin, Shanghai, Chongqing, Chengdu, Guandzhou, Wuhan, Zhengzhou og Xi'an.

Það er vissu­lega til nokk­urs mælst að ætla fólki að þekkja mikið af kín­verskum borgum en flestir eiga þó að þekkja Beijing og Shangai, og svo upp á síðkastið þá ógæfu­sömu borg Wuhan, þar sem covid-19 kom fyrst upp, að því er virð­ist. Þá má geta þess að Guangzhou er sú borg sem var lengi kunn undir nafn­inu Canton á Vest­ur­löndum, svo það er vel leyfi­legt að segja Canton.

2.   Svart­bakur.

3.   Eric. Þetta eru börn Donalds Trumps.

4.   Sviss.

5.   Jodie Foster.

6.   Ólöf ríka Lofts­dóttir. Ónauð­syn­legt er að muna föð­ur­nafn hennar.

7.   Regn­bog­inn. Athugið að ekki er verið að spyrja um nafn brú­ar­innar.

8.   Christopher Nolan.

9.   Guðrún. Nafnið hefur að vísu dalað að vin­sældum hjá yngri kyn­slóðum for­eldra, svo það er nú aðeins í um 30. sæti yfir nöfn korn­ungra stúlkna, en í heild halda Guðrúnar enn efsta sæt­inu.

10.   Í Gufunesi í Reykja­vík.

***

Svörin við auka­spurn­ing­unum:

Sú fyrri:

Richard Vuu lék keisar­ann í Kína, Pu Yi, í kvik­mynd Bernardo Bertolucci, The Last Emperor, sem frum­sýnd var árið 1987 og fór sann­kall­aða sig­ur­för um heim­inn.

Ekki veit kvik­mynda­síðan Imdb.com til þess að Vuu hafi leikið neitt annað um ævina.

Neðri myndin, sem síð­ari auka­spurn­ingin snýst um, sýnir sætar kart­öflur.

***

Og loks er hér aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár