Vissu ekki af aðkomu Kristjáns Vilhemssonar að nýja miðbænum

Blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við Sel­fyss­inga um upp­bygg­ingu, eign­ar­hald og fjár­mögnun nýja mið­bæj­ar­ins. Skiptar skoð­anir voru á mið­bænum sjálfum, en eng­inn við­mæl­end­anna vissi af aðkomu Krist­jáns Vil­helms­sonar í Samherja að verk­efn­inu.

Blaða­maður Stund­ar­innar náði tali af íbúum Selfoss um afstöðu þeirra til fjár­mögn­unar, eign­ar­halds og upp­bygg­ingar nýja mið­bæj­ar­ins. Enginn við­mæl­end­anna vissi hver stæði að baki verk­efn­inu. 

Klíkuskapur og pólitík

Oddný Guð­munds­dóttirOddný er óánægð með upp­bygg­ingu bæj­ar­ins og hefur áhyggjur af því að hann muni fela í sér dul­inn kostnað fyrir bæj­ar­búa.

Oddný Guð­munds­dóttir, 66 að verða 67 ára, er að bíða eftir því að kom­ast á eft­ir­laun. Hún kaus gegn nýja mið­bænum í íbúa­kosn­ing­unni og fór hörðum orðum um upp­bygg­ingu hans. „Eig­in­lega finnst mér þetta dálít­ill hégóma­skapur. Í pen­inga­leysi og aðþreng­ingum hefði ég viljað betri götur fyrst, eða brúna til dæmis, okkur finnst kjána­legt að keyra þessa gömlu brú, yfir­sprengda í umferð og biðrað­irnar svo­leiðis á sumrin. Svo er þarna eitt­hvert millj­arða dæmi,“ sagði hún. 

Oddný vissi ekki af aðkomu Krist­jáns Vil­helms­sonar að verk­efn­inu, en velti því fyrir sér hvort það væri æski­leg þróun. „Ég vissi svo sem að þetta væri, segja þeir, í einka og einka. Þar af leið­andi hljóta þetta að vera pen­inga­menn, en þeir eru ekki að borga göt­urnar og þeir borga ekki und­ir­vinn­una. Þeir eru ekk­ert að leggja í nýja dælu­stöð, ég held að það skoppi enn allur kúkur út í Ölfusá. Það er svo mikið bull í gangi að það hálfa væri nóg. Það var verið að tala um að Ratcliffe væri að kaupa Aust­firði, þarna kemur einn að kaupa Selfoss. Hver er þró­unin, hvert viljum við fara? Það er bara góð spurn­ing.“

Hún sagð­ist telja það klíku­skap og póli­tík að lóð­irnar hafi verið afhentar án end­ur­gjalds eða útboðs. „Það er nátt­úr­lega bara póli­tíkin, skoðum bara hvað þið kjósið næst. Þetta er bara eins og hver annar klíku­skapur og póli­tík. Við sem venju­legir borg­arar erum ekk­ert virt þar nema í atkvæð­inu okkar og fólk hefur kosið svona. Þá verða þeir að kyngja því.“

Gylfi Birgir Sig­ur­jóns­sonGylfi kaus með bygg­ingu mið­bæj­ar­ins, en hefði viljað að upp­lýs­ingar um eign­ar­hald og fjár­mögnun hefðu legið fyrir.

Hefði viljað vita 

Gylfi Birgir Sig­ur­jóns­son, 54 ára kenn­ari, kaus með nýja mið­bænum í íbúa­kosn­ingu og sagði að honum lit­ist vel á fram­kvæmd­irnar. Hann sagð­ist ekki vita hverjir eiga og fjár­magna hann, en þegar hann komst að því að einn rík­asti maður Íslands, Kristján Vil­helms­son í Samherja, væri meðal þeirra, sagði hann að hann hefði viljað að það væri uppi á borðum. Það hefði kannski haft áhrif á afstöðu hans. 

„Ég eig­in­lega vissi það fyrir að þeir hefðu fengið þetta svæði til að byggja upp mið­bæ­inn, en kannski ekki hverjir væru þarna á bak­við,“ sagði hann að lokum um end­ur­gjalds­lausa afhend­ingu lóð­anna. 

Hugrún K. Helga­dóttirHugrúnu leist mjög vel á bygg­ingu mið­bæj­ar­ins, en það runnu á hana tvær grímur þegar hún frétti af aðkomu sam­herj­a­manns­ins Krist­jáns Vil­helms­sonar.

Ósátt með aðkomu Samherjamanns

Hugrún K. Helga­dóttir er 58 ára gömul og vinnur á sjúkra­húsi Selfoss. Hún tók ekki þátt í íbúa­kosn­ing­unni, en sagði að henni lit­ist mjög vel á upp­bygg­ingu nýja mið­bæj­ar­ins. Það runnu hins vegar á hana tvær grímur þegar hún frétti af eign­ar­haldi og fjár­mögnun verk­efn­is­ins. „Ég vissi það ekki,“ sagði hún og bætti við að henni þætti það ekki vera jákvætt. 

„Mér líst ekki vel á það,“ sagði hún um að lóð­irnar hafi verið afhentar þeim án end­ur­gjalds eða útboðs. Hún sagði að sér hugn­að­ist Sam­herj­a­málið illa og hún hefði viljað að þessar upp­lýs­ingar lægju fyrir. 

„Ég hef slæma til­finn­ingu gagn­vart því. Mér finnst ekki allt rétt sem er að ger­ast þarna. Verst finnst mér hvernig þeir hafa komið fram í Namibíu, það kemur upp spurn­ing­ar­merki hjá manni,“ sagði hún að lokum. 


„Bara vesen“

Daníel JensDaníel segir að upp­lýs­ingar um eign­ar­hald hefðu hugs­an­lega breytt afstöðu hans til upp­bygg­ingar mið­bæj­ar­ins.

Daníel Jens, 30 ára, Taekwondo-þjálf­ari. 

Hvernig líst þér á bygg­ingu nýja mið­bæj­ar­ins?

„Bara vel.“

Veistu hverjir fjár­magna og eiga nýja mið­bæ­inn?

„Nei, hann heitir ... Ég man ekki hvað hann heitir.“

Vissir þú að Kristján Vil­helms­son, einn aðal­eig­andi Samherja og einn rík­asti maður lands­ins, á um 90 pró­senta hlut ásamt við­skipta­fé­laga sínum?

„Nei.“

Hvað finnst þér um það?

„Ég veit það ekki, sko.“

Tókstu þátt í íbúa­kosn­ing­unni á sínum tíma, um mið­bæ­inn?

„Nei.“

Heldur þú að það hefði haft áhrif á afstöðu þína ef þessar upp­lýs­ingar hefðu legið fyrir?

„Já, það gæti verið.“

Hver er afstaða þín til þess að lóð­irnar hafi verið afhentar þeim án end­ur­gjalds og útboðs?

„Bara vesen.“


Taldi að bæjarfélagið ætti  miðbæinn 

Örn Ingi­mars­sonÖrn var hissa þegar hann heyrði um eign­ar­hald mið­bæj­ar­ins.

Örn Ingi­mars­son, 19 að verða 20 ára, starfs­maður bíla­sölu. 

Hvernig líst þér á bygg­ingu nýja mið­bæj­ar­ins?

„Mér finnst það alveg frá­bært.“

Kaustu í íbúa­kosn­ing­unni á sínum tíma?

„Nei, ég var ekki með aldur til þess.“

„Ég er bara dálítið hissa á því“

Veistu hverjir fjár­magna og eiga nýja mið­bæ­inn?

„Ég þori ekki alveg að fara með það, mér skilst að það sé bara bæj­ar­fé­lagið sjálft.“

Vissir þú að Kristján Vil­helms­son, einn rík­asti maður lands­ins og eig­andi Samherja, á um 90 pró­senta hlut ásamt við­skipta­fé­laga sínum?

„Nei, ég vissi það ekki.“

Hvað finnst þér um þetta allt saman?

„Ég er bara dálítið hissa á því. Ég hafði ekki hug­mynd um það.“


Upplýsingarnar hefðu örugglega haft áhrif á afstöðuna

Ástrún Sæland, 28 ára, stuðn­ings­full­trúi. 

Ástrún SælandÁstrún sagði að hún hefði hugsað aðeins um bygg­ingu mið­bæj­ar­ins hefði hún vitað hvernig eign­ar­haldi hans var háttað.

Hvernig líst þér á bygg­ingu nýja mið­bæj­ar­ins á Selfossi?

„Mér líst bara mjög vel á þetta. Okkur vantar einmitt ein­hvern svona kjarna til að fá alla til þess að hitt­ast.“

Veistu hverjir fjár­magna og eiga nýja mið­bæ­inn?

„Ég veit það ekki.“

Vissir þú að Kristján Vil­helms­son, einn aðal­eig­andi Samherja og einn rík­asti maður lands­ins, á um 90 pró­senta hlut ásamt við­skipta­fé­laga sínum?

„Nei.“

Hvað finnst þér um það?

„Úff, ég veit eig­in­lega ekki hvað ég á að segja. Ég er bara hissa, eða svo­leiðis.“

Heldur þú að það hefði haft áhrif á afstöðu þína ef upp­lýs­ing­arnar hefðu legið fyrir?

„Já, örugg­lega. Ég hefði örugg­lega hugsað aðeins meira út í þetta og svo­leiðis.“

Hver er afstaða þín til þess að lóð­irnar hafi verið afhentar þeim án end­ur­gjalds og útboðs?

„Ég veit eig­in­lega ekki hvað ég á að segja, ég er bara hissa. Það er skrítið.“ 


Góð viðbót við miðbæinn 

Hugrún Tinna Róberts­dóttirHugrúnu lýst vel á mið­bæ­inn.

Hugrún Tinna Róberts­dóttir, 15 ára, starfs­maður í Pulló.  

Hvernig líst þér á bygg­ingu nýja mið­bæj­ar­ins á Selfossi?

„Bara mjög vel, ég held að þetta verði fínt, að fá ein­hverja við­bót svona við bæinn.“

Veistu hverjir fjár­magna og eiga nýja mið­bæ­inn?

„Ekki hug­mynd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár