127. spurningaþraut: Hvaða taflmann má hreyfa í fyrsta leik, fyrir utan peðin?

127. spurningaþraut: Hvaða taflmann má hreyfa í fyrsta leik, fyrir utan peðin?

Hæ, hér er þrautin frá í gær.

Fyrri auka­spurn­ing:

Af aug­lýs­ingaplakati hvaða bíó­myndar er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Elizabeth Debicki varð þrí­tug fyrir nokkrum dögum. Hún er áströlsk leik­kona sem birt­ist mann­kyni um þessar mundir í mynd­inni Tenet, og land­aði svo um dag­inn hlut­verki í mjög vin­sælli sjón­varps­s­eríu sem Netflix hefur verið að sýna und­an­farin og fjallar um fræga fjöl­skyldu. Debicki á að leika stúlku sem gift­ist inn í fjöl­skyld­una. Hvaða hlut­verki land­aði hún?

2.   Reykja­vík er stærsti þétt­býl­is­staður lands­ins og Kópa­vogur kemur næstur. En hvaða bær er í þriðja sæti yfir íbúa­fjölda?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Belgíu?

4.   Í hvaða landi var Tobler­one súkkulaði upp­haf­lega fram­leitt, og er svo sem enn?

5.   Fyrir hvaða flokk situr Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir á þingi?

6.   Guð­spjalla­menn­irnir eru Matteus, Lúkas, Jóhannes og ... hver?

7.   Nigel Lawson er breskur stjórn­mála­maður á eft­ir­launum, hann var einn af helstu mönnum Mar­grétar Thatcher í póli­tík­inni hér fyrir nokkrum ára­tugum. Dóttir hans og nafna, hin glað­lynda Nigella Lawson, hefur haslað sér völl á allt öðru sviði. Hvað fæst hún við í líf­inu?

8.  Sara Björk Gunn­ars­dóttir fót­bolta­kona fór nýlega frá hinu öfl­uga liði Wolfborgar í Þýska­landi og gekk til liðs við franskt lið, sem hefur verið lang­sterkasta félags­lið í heimi í mörg ár. Hvaða lið er það?

9.   Hvaða íslenski höf­undur skrif­aði bæk­urnar Tíma­þjófinn, Hjarta­stað og Jójó, og þar að auki ævi­sög­una Heiðu? - svo fátt eitt sé talið!

10.   Þegar fólk sest að tafli er í fyrsta leik aðeins hægt að hreyfa peðin, þau er fremst standa - og svo reyndar einn tafl­mann annan. Hver er sá?

***

Hér kemur seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Þá koma svörin:

1.   Hún mun leika Díönu prinsessu.

2.   Hafn­ar­fjörður.

3.   Brussel.

4.   Sviss.

5.   Viðreisn.

6.   Markús.

7.   Hún er sjón­varps­kokkur, mat­ar­blaða­maður, það dugar að nefna mat!

8.   Lyon.

9.   Steinunn Sig­urð­ar­dóttir.

10.   Ridd­ar­inn.

***

Á efri mynd­inni er skjá­skot af plakati kvik­mynd­innar Silence of the Lambs.

Svona leit það út í heild:

***

Á neðri mynd­inni má sjá Jacindu Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands.

Og hér er svo aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár