126. spurningaþraut: Sekt getur þýtt ýmislegt, það er ljóst

126. spurningaþraut: Sekt getur þýtt ýmislegt, það er ljóst

Hér er 126. þrautin, er í gær birt­ist.

Fyrri auka­spurn­ing:

Við hvaða tæki­færi er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað hét sá yngri bróðir Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta sem lést um miðjan þennan mánuð?

2.   Hvaða heitir lengsti inn­fjörð­ur­inn úr Húnaflóa?

3.   Hver hefur lengst allra verið for­stjóri álvers­ins í Straums­vík?

4.   Og meðal ann­arra orða, hvað kall­ast málm­grýtið eða set­lögin sem ál er nær ein­göngu unnið úr? (Efna­fræð­ingur hefur bent mér á að „málm­grýti“ sé vart rétt orð frá fræði­legum sjón­ar­hól, en ég hygg þó að flestir kann­ist helst við efnið sem málm­grýti, svo ég leyfi því að halda sér.)

5.   Hvað heitir söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Geir­fugl­anna, maður sem einnig er vin­sæll leik­ari við Borg­ar­leik­húsið?

6.   Hvað heitir höf­uð­borg Kína?

7.   Hvaða heitir langstærsta stöðu­vatn heims? Sumir vilja reyndar ekki kalla það stöðu­vatn, heldur inn­haf, enda er það salt sem sjór­inn.

8.   Hver var for­sæt­is­ráð­herra Íslands þegar sótt var um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu?

9.   Hvers konar vín er kallað „sekt“?

10.   Sé ófært yfir Hell­is­heiði, hvaða veg er þá nær­tækt að reyna að keyra í stað­inn?

***

Og seinni auka­spurn­ingin:

Þessi kona var einu sinni talin ægi­lega hættu­leg, þótt allt muni víst hafa verið orðum aukið. En hún þurfti þó að gjalda fyrir orðróm­inn.

***

Þá koma hér svörin:

1.   Robert Trump.

2.   Hrúta­fjörður.

3.   Rannveig Rist.

4.   Báxít.

5.   Halldór Gylfason.

6.   Bejíng. Mjög rosknu fólki er og heim­ilt að segja Peking.

7.   Kaspíhaf.

8.   Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

9.   Freyð­andi hvítvín frá Þýska­landi.

10.  Þrengslin.

***

Svar við fyrri auka­spurn­ingu:

Þarna má sjá Charles de Gaulle leið­toga Frakka leiða göngu eftir Champs Élysées frá Sig­ur­bog­anum til dóm­kirkj­unnar Notre Dame í París til að fagna við messu frelsun Parísar undan Þjóð­verjum í síð­ari heims­styrj­öld.

Gangan fór fram 25. ágúst 1944.

Nóg er að nefna orðin „frelsun“ og „París“ til að fá rétt!

Hér má sjá aðeins stærri mynd:

***

Svar við seinni auka­spurn­ingu:

Þetta er Mata Hari.

***

Hér er svo loks aftur linkur á þraut­ina frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár