125. spurningaþraut: Hvað heitir rómverska virkið Vindobona nú á dögum?

125. spurningaþraut: Hvað heitir rómverska virkið Vindobona nú á dögum?

Hér er þraut gær­dags­ins.

Auka­spurn­ing­arnar eru að venju tvær, og hér er sú fyrri:

Hver er þarna að klappa ketti?

***

En aðal­spurn­ing­arnar, tíu af öllu tagi, eru þessar:

1.   Vindo­bona köll­uðu Róm­verjar virki eitt sem þeir reistu fyrir 2.000 árum til að verj­ast óvinum sínum. Þar and­að­ist Markús Árelíus keis­ari Rómar í einni her­ferð sinni gegn bar­börum svo­nefndum. Síðan reis borg í kringum virkið og þar býr nú 1,8 milljón manns. Hvað heitir Vindo­bona á vorum dögum?

2.   Hver hefur oft­ast allra orðið heims­meist­ari í Formúlu 1 kappakstri?

3.   Hver hefur lengst allra verið for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi?

4.   Hvað heitir for­stjóri Land­spít­al­ans?

5.   Kona nokkur vann í byrjun árs Ósk­arsverð­laun fyrir bestan leik í auka­hlut­verki fyrir frammi­stöðu sína í mynd­inni Marriage Story. Hver var kona sú?

6.   Vivienne Westwood heitir önnur kona. Hvað hefur hún helst feng­ist við í líf­inu?

7.   Í hvaða fjöllum er hæsti tindur Jarðar utan Asíu?

8.   Miðað við að Svíar þykja yfir­leitt jafn­rétt­is­sinn­aðir má telja með nokkrum ólík­indum að kona hefur aldrei orðið for­sæt­is­ráð­herra þar í landi. Árið 2003 var hins vegar myrt í fata­verslun kona ein, sem gegndi þá emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra, og telja má næsta víst að hefði orðið for­sæt­is­ráð­herra á end­anum - svo vin­sæl og vel metin var hún. Hvað hét hún?

9.   Hvað heitir besta vin­kona Mikka músar?

10.   Fyrir hvað er Pitcairn-eyja í Kyrra­hafi fræg?

***

Og þá kemur seinni auka­spurn­ingin:

Hver er þetta?

Svörin, þá:

1.   Vín­ar­borg.

2.   Michael Schumacher.

3.   Davíð Oddsson.

4.   Páll Matth­í­as­son.

5.   Laura Dern.

6.   Hún er fata­hönn­uður.

7.   And­es­fjöllum.

8.   Anna Lindh.

9.   Minní mús.

10.   Þangað flúðu upp­reisn­ar­menn af skip­inu Bounty.

***

Og svörin við auka­spurn­ingum eru þessi:

Á mynd­inni að ofan má sjá Winston Churchill þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Breta klappa kett­inum Blackie, skip­sk­etti orr­ustu­skips­ins Prince of Wales, í ágúst 1941.

Raunar segir sagan að Churchill sé ekki síst að reyna að koma í veg fyrir að Blackie fylgdi honum um borð í létta­bát sem átti að flytja for­sæt­is­ráð­herr­ann yfir í banda­rískt beiti­skip, þar sem Franklin Roosevelt Banda­ríkja­for­seti beið eftir Churchill.

Sjá betur hér:

Á neðri mynd­inni má hins vegar Mahatma Gandhi ungan að árum.

Sú ágæta sjálf­stæð­is­hetja Indverja var ekki ævin­lega í hvítum hefð­bundnum kufli.

Og hér er linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár