124. spurningaþraut: Hvaða fugli útrýmdu sjómenn á Máritíus?

124. spurningaþraut: Hvaða fugli útrýmdu sjómenn á Máritíus?

Hér er þrautin frá í gær.

Svo er það fyrri auka­spurn­ing:

Hluti af mynd sem prýðir hljóm­plötu­albúm sést hér að ofan. Hvaða hljóm­sveit gaf út þá plötu?

+++

Tíu af öllu tagi:

1.   Kamala Harris heitir vara­for­seta­efni Demókrata í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. For­eldrar hennar eru báðir fæddir utan Banda­ríkj­anna. Í hvaða löndum?

2.   Eyjan Máritíus komst nýlega í fréttir vegna umhverf­isslyss. Þar bjó þangað til á 17. öld ófleygur fugl sem hvergi var til ann­ars staðar. Sjómenn, sem komu til Máritíus, útrýmdu fugl­inum, en hvað kall­að­ist teg­undin?

3.   Hvað af eft­ir­töldum sex leik­ritum er EKKI eftir William Shakespe­are: Allt í mis­gripum; Kátu kon­urnar í Windsor; Períkles; Sjó­leiðin til Bagdad; Skassið tamið; Tveir herra­menn í Veróna.

4.   Hvaða ríki til­heyrir eyjan Tenerife?

5.   Rit­stjóri hvaða blaðs var Matthías Johann­es­sen lengst af?

6.   Árið 1990 kom út á íslensku skáldsagan Heimur feigrar stéttar eftir suður-afríska skáld­konu, sem einmitt það ár fékk Nóbels­verð­launin í bók­menntum, fyrst kvenna síðan 1966! Ári seinna kom út á íslensku skáldsagan Saga sonar míns, og 1993 smá­sagna­safnið Ferð allra ferða og fleiri sögur. Skáld­konan lést 2014. Hvað hét hún?

7.   En hvaða íslenski höf­undur skrif­aði bók­ina Grá­mos­inn glóir sem út kom 1986 og fjallar um gam­alt glæpa­mál. Grá­mos­inn varð met­sölu­bók, flestum á óvart, því þótt höf­und­ur­inn væri virtur vel, þá höfðu bækur hans ekki selst í stórum upp­lögum næstu árin á undan?

8.   Í banda­rísku sjón­varps­s­er­í­unni Breaking Bad segir frá kenn­ara sem tekur til við að fram­leiða eit­ur­lyf út úr fjár­hags­vand­ræðum. Hvað kall­ast per­sóna kenn­ar­ans?

9.  Eig­in­kona aðal­per­són­unnar heitir svo­lítið sér­kenni­legu nafni. Hvaða nafn er það?

10.   Hversu hár er Hall­gríms­kirkju­turn í Reykja­vík? Hér má muna 4 metrum til eða frá.

+++

Þá er það seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða borg er þessi mynd tekin?

Þá vindum við okkur í að vinda okkur í svörin!

1.   Indlandi og Jamaíka.

2.   Dódó-fuglar.

3.   Sjó­leiðin til Bagdad er eftir Jökul Jak­obs­son.

4.   Spáni.

5.   Morg­un­blaðs­ins.

6.   Nadine Gordimer.

7.   Thor Vil­hjálms­son.

8.   Walter White.

9.   Skyler.

10.   Turninn er 74 metrar, svo rétt er allt frá 70 til 78.

+++

Auka­spurn­ingar:

Hljóm­sveitin er Rolling Stones.

Þetta er, eins og sér­hver maður hlýtur að vita, af albúmi plöt­unnar Their Satanic Majesties Request.

Hana má einmitt sjá hér til hliðar.

Borgin, þar sem seinni myndin var tekin, er Barcelona í Kata­lóníu.

Og svo er hér aptur linkur á þraut­ina frá í gær.

Spreytið ykkur endi­lega á henni líka!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár