123. spurningaþraut: Í hvaða vinsælu kvikmynd var aðalhetjan stóran hluta myndarinnar öðruvísi á litinn?

123. spurningaþraut: Í hvaða vinsælu kvikmynd var aðalhetjan stóran hluta myndarinnar öðruvísi á litinn?

Hér er linkur á þraut­ina frá í gær.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

+++

En hér eru aðal­spurn­ing­arnar tíu af öllu tagi:

1.   Hvað heitir eig­in­kona Karls Breta­prins - eða rétt­ara sagt, hvað hét hún áður en hún gift­ist honum?

2.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Lissabon?

3.   Í ævafornri grískri heim­ild er talað um sigl­ingu land­könn­uð­ar­ins Pýþeasar langt norður í höf, þar sem hann kemur meðal ann­ars að landi sem sumir telja að sé Ísland. Pýþeas hefur sam­kvæmt þessu komið til lands­ins þús­und árum fyrir land­nám. En hvað er þetta dul­ar­fulla land kallað í hinni fornu heim­ild? Það heiti hefur svo stundum verið notað síðan um Ísland.

4.   Hvað heitir hafið milli Norður-Ameríku og Suður-Ameríku, þar sem er að finna fjölda eyja og eyríkja?

5.   Hvaða íslenska hljóm­sveit gaf út plöt­una Kveikur árið 2013?

6.   Hvað hét eina þing­konan sem var við­stödd frægan fund þing­manna á Kaust­ur­bar?

7.   Svarti­foss heitir 20 metra hár foss sem fellur fram af dökku stuðla­bergi á ákveðnum stað á Íslandi, þangað sem fólk sækir mjög til að njóta nátt­úru­feg­urðar. Hvaða staður er það?

8.   Sam Worthington heitir maður. Hann er varla í hópi þekkt­ustu kvik­mynda­stjarna í heimi, en lék þó aðal­hlut­verið í ein­hverri allra vin­sæl­ustu mynd sem gerð hefur verið. Sú mynd var frum­sýnd árið 2009. Kannski ástæðan fyrir því að Worthington er ekki þekkt­ari en hann þó er, sé sú að stóran hluta mynd­ar­innar er per­sóna hans tölvu­gerð, og bæði mun stærri og öðru­vísi á lit­inn en Worthington er í raun og veru. Hvað heitir þessi bíó­mynd?

9.   Jón Gnarr varð borg­ar­stjóri í Reykja­vík árið 2010. Hver var borg­ar­stjóri á undan honum?

10.  Hvaða stór­fljót markar að hluta til landa­mæri Frakk­lands og Þýska­lands?

+++

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

Svör koma hér:

1.   Camilla Parker Bowles.

2.   Portúgal.

3.   Thule. Raunar er landið kallað Ultima Thule, en í þessu til­felli dugar Thule.

4.   Karí­ba­haf.

5.   Sigur Rós.

6.   Anna Kolbrún Árna­dóttir.

7.   Skafta­felli.

8.   Avatar.

9.   Hanna Birna Krist­jáns­dóttir.

10.   Rín­ar­fljót.

+++

Fyrri auka­spurn­ing:

Á efri mynd­inni er önnur af Boeing-þotum flug­ræn­ingj­anna 11. sept­em­ber 2001 að fljúga á annan tví­bura­t­urn­anna í New York.

Sjá hér til hliðar.

Seinni auka­spurn­ing:

Á neðri mynd­inni má sjá Hinrik 8., kon­ung Englands á 16. öld.

+++

Og hér er svo aftur link­ur­inn á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár