122. spurningaþraut: Atli Húnakóngur, morðatíðni, hin þrjú andlit Evu

122. spurningaþraut: Atli Húnakóngur, morðatíðni, hin þrjú andlit Evu

Hérna, á þessum link, er að finna þraut­ina frá því í gær.

Fyrri auka­spurn­ingin er þessi:

Í hvaða borg er myndin hér að ofan tekin?

En aðal­spurn­ing­arnar 10 af öllu tagi eru þessar:

1.   Hvað heita fastir umsjón­ar­menn þátt­ar­ins Harma­geddon á útvarps­stöð­inni X-inu? Fornöfn þeirra duga í þetta sinn.

2.   Í mars árið 453 gerð­ist það meðal ann­ars að Atli Húna­kon­ungur gekk í hjóna­band með ungri stúlku sem Ildiko hét. Til tíð­inda var talið að á brúð­kaups­nótt­inni gerð­ist nokkuð merki­legur atburður í lífi Atla. Hvað var það?

3.   Í hvaða ríki Jarðar er morða­tíðni hæst, hlut­falls­lega?

4.   Það má koma fram að ríkið, sem átt er við hér að ofan, er ekki í Evrópu. En í hvaða Evr­ópu­ríki er morða­tíðni hæst sam­kvæmt tölum frá 2018?

5.   Hvað hét besta vin­kona Tomma og Önnu?

6.   Árið 1957 var frum­sýnd í Banda­ríkj­unum kvik­myndin The Three Faces of Eve þar sem leik­konan Joanne Woodward lék Evu nokkra sem þjáð­ist af dul­ar­fullum sjúk­dómi, sem þá hafði nýlega upp­götvast. Eða hvað? Er þessi sjúk­dómur kannski ekki til? Af hverju þjáð­ist Eva bíó­mynd­ar­innar?

7.   Hversu löng er stysta leið eftir þjóð­veg­inum frá miðbæ Reykja­víkur til mið­bæjar Akur­eyrar? Hér má skeika 12 kíló­metrum til eða frá.

8.   Með hvaða hand­boltaliði leikur Aron Pálm­ars­son?

9.   Hver var fyrsta konan sem varð ráð­herra á Íslandi?

10.   Hvað hét hljóm­borðs­leik­ari hinnar frægu hljóm­sveitar Syk­ur­mol­anna? Hún var reyndar ekki í hljóm­sveit­inni alveg frá byrjun.

Og seinni auka­spurn­ing:

Hver þessi karl? Þess má geta að hann var ekki orð­inn alveg svona grár þegar hann kom hingað til lands fyrir 44 árum og vann hér ákveðið afrek, já, gott ef hann setti ekki bara heims­met.

Þá koma svör:

1.   Frosti og Máni.

2.   Atli dó.

3.   El Salvador.

4.   Rúss­landi.

5.   Lína langsokkur.

6.   Marg­klofnum per­sónu­leika, að sögn. Athugið að „geð­klofi“ er allt annað fyr­ir­bæri og því EKKI rétt svar.

7.   Leiðin mun vera 388 kíló­metrar, svo rétt telst vera allt frá 376 til 400.

8.   Barcelona.

9.   Auður Auðuns.

10.   Margrét Örn­ólfs­dóttir.

Svar við fyrri auka­spurn­ingu:

Þessi er mynd er tekin í London.

Hér er hún öll til hliðar.

Svar við seinni auka­spurn­ingu.

Þetta er þýski ská­k­jöf­ur­inn Vladimil Hort, sem kom hingað til lands 1977 og tefldi skák­ein­vígi við fyrrum heims­meist­ara Boris Spassky. 

Þá tefdi Hort raunar undir fána Tékkóslóvakíu, enda fæddur í Kladno (nú í Tékk­landi).

Eftir að hafa tapað ein­víg­inu naum­lega tefldi Hort fjöltefli mikið við Íslend­inga, og mun það hafa verið heims­met á sínum tíma hvað snerti fjölda þátt­tak­enda.

Hér er svo að lokum aftur linkur á keppn­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár