120. spurningaþraut: Fólk sem heitir eftir fyrirbærum sólkerfisins! Og eitthvað svolítið fleira.

120. spurningaþraut: Fólk sem heitir eftir fyrirbærum sólkerfisins! Og eitthvað svolítið fleira.

Hér er fyrst þrautin frá í gær.

Þar sem númer þess­arar þrautar endar á núlli, þá snú­ast allar spurn­ing­arnar um sama efni.

Nú er það sól­kerfið okkar.

Fyrri auka­spurn­ingin:

Myndin hér að ofan sýnir ferju­mann nokkurn. Eitt af tunglum sól­kerf­is­ins (sem sveimar umhverfis Plútó) heitir eftir honum. Hvað heitir ferju­mað­ur­inn?

Aðal­spurn­ingar:

1.   Minnsta reiki­stjarna sól­kerf­is­ins er jafn­framt næst sólu. Frægur rokksöngv­ari, sem hét í raun­inni Bulsara að eft­ir­nafni, tók sér sem lista­manns­heiti enska útgáfu á nafni þess­arar reiki­stjörnu. Hvað hét hann?

2.   Venus heitir næsta reiki­stjarna frá sólu. Fræg tenn­is­stjarna heitir Venus og reyndar er systir hennar Serena enn fræg­ari tenn­is­stjarna. Hvert er eft­ir­nafn þeirra systra?

3.   Við þriðju reiki­stjörn­una, Jörðina, er, eins og menn vita, aðeins eitt tungl sem við köllum því ein­fald­lega Tunglið. Frægur enskur trommu­leik­ari á hippa­tím­anum hét Moon eins og Tunglið heitir á ensku. Keith Moon hét hann fullu nafni. Hann þótti gríð­ar­lega kröft­ugur og skemmti­legur trommu­leik­ari en átti við ógur­legt drykkju­vanda­mál að stríða og dó alltof ungur af þeim sökum. Í hvaða hljóm­sveit barði hann húð­irnar?

4.   Mars er fjórða reiki­stjarnan. Hún heitir eftir stríðs­guði Rómverja eins og flestir vita, en Mars er róm­verska útgáfan af gríska stríðs­guð­inum, sem heitir ... hvað?

5.   Júpíter er fimmta reiki­stjarnan. Júpíter er ekki algengt manns­nafn en þó fædd­ist á til­teknum stað árið 1711 maður sem nefnd­ist Jupiter Hammon. For­eldrar hans hétu Opium og Rose. Jupiter gerð­ist skáld og rit­höf­undur sem var síður en svo sjálf­sagt um menn af hans sauða­húsi. Um fimm­tugt eða um 1760 gaf Jupiter út ljóð og seinna rit­gerðir þar sem hann fjall­aði um hlut­skipti sitt. Hvaða hlut­skipti var það? Hvað var svona óvenju­legt við að Jupiter Hammon gæfi út rit­smíðar sínar og yfir­leitt að hann kynni að lesa og skrifa?

6.   Ekki er algengt að fólk heiti eftir sjöttu reiki­stjörn­unni, Sat­úrnusi. Þó tók banda­rískur íþrótta­kappi að nafni Perry Satullo sér nafnið Perry Saturn og keppti með góðum árangri undir því nafni á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar. Hann er enn að, þótt kom­inn sé á efri ár íþrótta­manna, og leggur jafn­vel að velli mun yngri and­stæð­inga, sem kannski er ekki að furða því flestir vita satt að setja að þessi íþrótta­grein er tómt blöff. Í hvaða íþrótt keppir Perry Saturn?

7.  Sjöunda reiki­stjarnan heitir Úranus. Um árið 1000 hét frægur her­for­ingi Níkefor Úranus. Hann þjón­aði keis­ar­anum Basil Búlgara­bana í styrj­öldum þessa keis­ara við Búlgara, Araba, Persa og fleiri. Herjum hvaða ríkis stýrði Níkefor Úranus fyrir keis­ara sinn?

8.   Áttunda reiki­stjarnan er Neptúnus. Hann er, eins og hinar reiki­stjörnar, nefndur eftir fyr­ir­bæri úr róm­versku og/eða grísku goða­fræð­inni. Hvaða goð­magn var Neptúnus?

9.   Einn Íslend­ingur heitir Neptúnus. Hann er nú rétt tæp­lega þrí­tugur og ber nafnið með sóma. Það mun hafa verið móðir hans sem valdi honum þetta ágæta nafn, en hún er ljóð­skáld og óhrædd við að fara ótroðnar slóðir. En hún hefur vissu­lega fetað troðnar slóðir líka, meira að segja verið árum saman á Alþingi Íslend­inga. Hvað heitir hún?

10. Gríð­ar­legur fjöldi smá­st­irna og stórra loft­steina hafa hlotið nöfn, ekki síst smá­st­irnin sem leyn­ast milli Júpíters og Mars. Þar af heitir eitt Iceland og tvö heita eftir frægum íslenskum nátt­úru­fyr­ir­bærum. Annað þeirra er hið lang, langstærsta í sínum flokki nátt­úru­fyr­ir­bæra - hér á landi. Hitt er eitt af þeim stærstu í öðrum flokki fyr­ir­bæra, og um leið það lang­fræg­asta. Frægð þess síð­ar­nefnda hafði þegar fyrir mörgum öldum borist langt út fyrir land­stein­ana. Nefnið að minnsta kosti annað.

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða reiki­stjarna er þetta?

Svörin:

1.   Freddie Mercury, söngv­ari Queen.

2.   Þær Serena og Venus bera ætt­ar­nafnið Williams.

3.   Keith Moon tromm­aði í The Who.

4.   Ares.

5.   Hann var svartur á hör­und og alla ævi þræll í New York-nýlendu Breta í Ameríku, síðar Banda­ríkj­unum. Lyk­il­orðin hér eru „þræll“ og „Ameríka“.

6.   Fjöl­bragða­glímu, „Wrestling“.

7.    Býsans-ríki, aust­ur­róm­verska rík­inu eða Mikla­garði. Þetta er allt rétt en „Róma­veldi“ er rangt.

8.   Sjáv­ar­guð.

9.   Birgitta Jóns­dóttir.

10.   Vatna­jök­ull og Hekla.

Fyrri auka­spurn­ing:

Karon.

Seinni auka­spurn­ing:

Mars.

Hér er þrautin frá í gær.

En hér eru allar spurn­inga­þraut­irnar 10 af öllu tagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár