119. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um þrjá „blóðuga sunnudaga“

119. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um þrjá „blóðuga sunnudaga“

Hérna má finna þraut­ina síðan í gær, gætið að því.

Hér að ofan má sjá mynd nokkra, og fyrri auka­spurn­ing hljóðar svo:

Hvað er að ger­ast á þess­ari mynd?

En aðal­spurn­ing­arnar tíu eru þessar:

1.   Nú er sunnu­dagur, ef mér skjöplast ekki, og von­andi verður hann í alla staði góður. En sunnu­dag­ur­inn 30. jan­úar 1972 var svo hörmu­legur í borg einni að hann hefur æ síðan verið kall­aður „blóð­ugi sunnu­dag­ur­inn“. Alls voru 14 mann­eskjur drepnar og annar eins fjöldi særð­ist. Í hvaða landi gerð­ist þetta?

2.   Annar „blóð­ugur sunnu­dagur“ átti sér stað 22. jan­úar 1905. Þá stefndi fjöl­menn en í alla staði frið­sam­leg kröfu­ganga að híbýlum stjórn­ar­herr­anna í landi einu og það var meira að segja prestur sem gekk fremst í göngu. Her­flokkur á vegum stjórn­ar­innar stöðv­aði göng­una með skot­hríð. Rúmlega 200 létu lífið, hátt í 1.000 særð­ust og nærri 8.000 voru hand­teknir. Þessi grimmi­lega árás stjórn­vald­anna þennan „blóð­uga sunnu­dag“ varð til þess að miklar óeirðir brut­ust út og í raun alls­herjar upp­reisn er fram í sótti. Stjórn­völdum tókst þó að lokum að brjóta hana á bak aftur. Í hvaða landi gerð­ist þetta?

3.   Þriðji „blóð­ugi sunnu­dag­ur­inn“ teng­ist Íslandi svo­lítið. Það var 13. jan­úar 1991 að stjórn­völd í ríki einu réð­ust með skrið­drekum og her­mönnum á íbúa í borg nokk­urri, sem höfðu komið saman til að krefj­ast sjálf­stæðis fyrir land sitt. Þar féllu 14 óbreyttir borg­arar og rúm­lega 700 særð­ust. Viku síðar var Jón Baldvin Hanni­bals­son þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands kom­inn til borg­ar­innar og lýsti stuðn­ingi Íslend­inga við sjálf­stæð­is­við­leitn­ina. Í hvaða borg varð þessi „blóð­ugi sunnu­dagur“.

4.   Eins og sjá má hér að ofan áttu allir þessir þrír „blóð­ugu sunnu­dagar“ sér stað í jan­úar-mán­uði. Af hverju dregur mán­uð­ur­inn jan­úar nafn sitt - það er að segja að því er flestir telja?

5.   Hver er fjöl­menn­asta borg í Evrópu?

6.   Tónskáld eitt íslenskt sór sig í sumum verkum sínum svo í ætt þjóð­laga að margir laga að verk eftir tón­skáldið séu þjóð­lög. Þar má til dæmis nefna „Kall sat undir klöpp­unum“ og „Það á að gefa börnum brauð“. Tón­skáldið samdi líka „Mamma ætlar að sofna“. Hvaða tón­skáld var þetta?

7.   Hver orti ann­ars ljóðið „Mamma ætlar að sofna“?

8.   Árið 1994 hélt rokktón­list­ar­maður nokkur ókeypis tón­leika í Rio de Janeiro í Brasilíu og urðu þeir hinir fjöl­menn­ustu af því tagi sem nokkru sinni hafa verið haldnir. Hvorki meira né minna en 3,5 milljón manna mætti til að hlýða á tón­list­ar­mann­inn syngja lögin sín frægu. Eins og alltaf er Íslands­teng­ing: Mús­í­k­ant­inn hafði einu sinni verið í hljóm­sveit með Long John Baldry, sem söng eitt lag inn á „Sumar á Sýrlandi“ plötu Stuð­manna. En hver var þessi gríð­ar­legi vin­sæli tón­list­ar­maður?

9.   Höldum oss við tón­list­ina: Hver var söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Gasolin'?

10.   Gisele Bündchen hélt upp á fer­tugs­af­mælið sitt fyrir mán­uði, en hún er eitt vin­sælasta og launa­hæsta súper­módel 21. aldar. Henni hefur meðal ann­ars verið þakkað að hið svo­nefnda „heróín-lúkk“ féll úr tísku um alda­mótin síð­ustu en þá hafði um tíðkast þótt fínt að módel væru grá og guggin eins og þau væru illa haldin af eit­ur­lyfja­neyslu. Gisele Bündchen er aftur á móti geislandi af heil­brigði og hreysti. Hún býr nú í Banda­ríkj­unum en frá hvaða landi kemur hún?

Og hér er myndin sem fylgir seinni auka­spurn­ingu, hvað heitir þessi jurt?

Þá koma svörin:

1.   Norður-Írlandi.

2.   Rúss­landi.

3.   Vilníus í Litháen.

4.   Róm­verska guð­inum Janusi - telja flestir. Sumir halda þó að nátt­úru­gyðjan Júnó hafi gefið mán­uð­inum nafn sitt.

5.   Istanbúl.

6.   Jórunn Viðar.

7.   Davíð Stef­áns­son.

8.   Rod Stewart.

9.   Kim Larsen.

10.   Brasilíu.

Hér er, til glöggv­unar, mynd af Gisele Bündchen, ef ein­hver skyldi ekki vita hvernig hún lítur út.

Bündchen er vissu­lega af þýskum ættum eins og nafn hennar bendir til en fædd í Horizontina í Brasilíu árið 1980.

Það fylgir sög­unni að hún sé löngu búin að týna niður þeirri litlu þýsku sem hún mun hafa lært á æsku­heim­il­inu.

Svör við auka­spurn­ing­unum tveim:

Á mál­verk­inu á efri mynd­inni eru róm­verskir öld­unga­ráðs­menn að taka Julius Caesar af lífi á fundi í ráð­inu 15. mars árið 44 fyrir Krist.

Á neðri mynd­inni er vatna­sóley.

Og svo má smella hér til að birt­ist þrautin frá í gær.

Hérna er svo aftur á móti linkur allar þraut­irnar 119.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár