118. spurningaþraut: Hurts 2B Human? Svá fullyrðir söngkona ein, sem hér er spurt um

118. spurningaþraut: Hurts 2B Human? Svá fullyrðir söngkona ein, sem hér er spurt um

Hér er þrautin frá í gær.

En hér kemur svo fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er á seyði á mynd­inni hér að ofan?

Og þá koma 10 af öllu tagi:

1.   Á Íslandi er einn þétt­býl­is­staður sem ber sama nafn og höf­uð­stað­ur­inn í nálægu landi. Hvaða þétt­býl­is­staður er það?

2.   Hvar í ver­öld­inni eru Atlas-fjöll?

3.   Hvað hét hestur Óðins í nor­rænu goða­fræð­inni?

4.   Lóns­fjörður, Álfta­fjörður og Ham­ars­fjörður eru þrír ólíkir firðir milli tveggja þétt­býl­is­staða á Íslandi. Hverjir eru þeir?

5.   Den­isovar eru útdauð dýra­teg­und sem eng­inn hafði hug­mynd um fyrr en fyrir einum ára­tug, þegar fyrstu leifar teg­und­ar­innar fund­ust. Hver af núlif­andi dýra­teg­undum heims­ins er skyld­ust den­isovum þessum?

6.   Hvað hét fyrsti bisk­upinn yfir Íslandi?

7.   Söngkona ein banda­rísk er nýorðin fer­tug og hefur aldrei verið vin­sælli, að sögn. Hún sló í gegn rétt upp úr tví­tugu með plöt­urnar Can't Take Me Home og síðan Missundaztood en í fyrra gaf hún átt­undu plötu sína, Hurts 2B Human. Hún heitir Alecia Beth Moore en tók sér snemma nafn einnar per­sónu úr mynd­inni Resevoir Dogs eftir Quentin Tart­antino. Þið munið hvað allar per­són­urnar þar hétu? Hvað kallar Alecia Beth Moore sig núna?

8.   Unter­gang hét rómuð kvik­mynd sem frum­sýnd var 2008 og fjall­aði um síð­ustu sól­ar­hring­ana í lífi Adolfs Hitlers. Atriði þar sem hann skammar und­ir­menn sína hefur verið notað í ótelj­andi grín­at­riðum á net­inu, þar sem nýr texti er settur í stað reiði­lest­urs Hitlers. Hver lék Hitler í þess­ari mynd?

9.   Eftir að reiki­stjarnan Plútó var lækkuð í tign og gerð að „dverg­reiki­stjörnu“, hvaða reiki­stjarna er þá fjærst sól­inni?

10.   Í hvaða borg er heima­völlur fót­boltaliðs­ins Juventus?

Og þá er það seinni auka­spurn­ing.

Hver mál­aði þessa mynd?

Þá koma svörin:

1.   Þórshöfn, sem heitir sama landi og Þórshöfn í Færeyjum.

2.   Í Norður-Afríku - Marokkó, Alsír og Túnis, en Norður-Afríka dugar.

3.   Sleipnir.

4.   Höfn í Horna­firði og Djúpi­vogur í Berufirði.

5.   Maðurinn.

6.   Ísleifur Giss­ur­ar­son.

7.   Pink.

8.   Bruno Ganz.

9.   Neptúnus.

10.   Tórínó.

Á mynd­inni, er fylgir fyrri auka­spurn­ingu, er gamli mað­ur­inn úr mynd­inni Börn nátt­úr­unnar eftir Friðrik Þór Frið­riks­son að draga kistu gömlu kon­unnar sem hafði náð á sínar heima­slóðir rétt áður en hún dó. Nóg er að fólk þekki að þetta séu úr Börnum nátt­úr­unnar.

Á neðri mynd­inni er eitt af fræg­ustu verkum banda­ríska mál­ar­ans Jackson Pollocks. Það ber hið skáld­lega nafn „Númer 1, 1949“.

Og hér er loks aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár