117. spurningaþraut: Jón Magnússon, Björn Kristjánsson og Sigurður Jónsson - hvað tengir þessa karla þrjá?

117. spurningaþraut: Jón Magnússon, Björn Kristjánsson og Sigurður Jónsson - hvað tengir þessa karla þrjá?

Já, meðan ég man: Hérna er þrautin frá í gær.

Myndin hér að ofan á við fyrri auka­spurn­ingu, sem er svona:

Hvað er að ger­ast á þess­ari mynd?

Seinni auka­spurn­ingar er svo hér örlitlu neðar.

En fyrst 10 af öllu tagi:

1.   Jón Magn­ús­son, Björn Krist­jáns­son, Sigurður Jónsson. Hvað tengir þessa þrjá stjórn­mála­karla saman - og bara þá þrjá? Sjálf­sagt má finna sitt­hvað sem mögu­lega tengir saman þessa menn, en ef þið vitið svarið, þá vit­iði það líka! 

2.   Hvað heitir höf­uð­borg Aust­ur­ríkis?

3.   Kleópatra hét drottn­ing Egifta­lands í eina tíð. Hvaðan var hún ættuð? Hér þarf svar að vera nákvæmt.

4.   Hve hátt er Everest-fjall í Himalæja-fjall­garð­inum? Hér eru engin skekkju­mörk gefin, svarið verður að vera hár­ná­kvæmt upp á metra.

5.   Árið 2013 var frum­sýnd fyrsta ópera Gunnars Þórð­ar­sonar. Óperan fjall­aði um og hét eftir konu einni frá fyrri tíð. Hvað hét óperan?

6.   Camilla Läckberg er einn vin­sæl­asti glæpa­sagna­höf­undur Norð­ur­landa og jafn­vel heims­ins. Hún fjallar um dul­ar­full morð­mál í til­teknum bæ í Svíþjóð. Hvað heitir bær­inn?

7.   Árið 2017 var ný far­þega­þota tekin í notkun af Air Malindo í Malasíu. Fjöldi véla af þess­ari gerð var síðan tek­inn í notkun af ótal flug­fé­lögum, en eftir tvö mann­skæð flug­slys í októ­ber 2018 og mars 2019 var vél­unum lagt. Hvað heitir þessi flug­vél­ar­teg­und nákvæm­lega?

8.   Hver var borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­list­ans frá 1994 til 2003?

9.   Hvað kall­ast sundið milli Íslands og Græn­lands?

10.   Hvað er maður að nafni Lee Harvey Oswald tal­inn hafa gert síðla árs 1963?

Þá kemur seinni auka­spurn­ingin:

Hver er þetta?

Svör, svör!

1.   Þetta eru þeir þrír þing­menn sem skip­uðu fyrstu fjöl­skip­uðu rík­is­stjórn Íslands árið 1917, en áður hafði aðeins verið einn ráð­herra. Jón var for­sæt­is­ráð­herra, Björn fjár­mála­ráð­herra og Sigurður atvinnu­mála­ráð­herra.

2.   Vín­ar­borg.

3.   Hún var frá Makedóníu. „Grikk­landi“ er ekki rétt svar.

4.   8.848 metrar.

5.   Ragn­heiður. Hún var um Ragn­heiði Brynj­ólfs­dóttur en for­nafnið dugar sem rétt svar á nafni óper­unnar.

6.   Fjallbäcka.

7.   Boeing 737 MAX.

8.   Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

9.   Græn­lands­sund.

10.   Myrt John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seta.

Auka­spurn­ingar:

Á efri mynd­inni skoða þýskir ein­kenn­is­bún­inga­kallar verksum­merki eftir sprenju­til­ræði við Adolf Hitler sum­arið 1944.

Á neðri mynd­inni er Olga Korbut, 15 ára fim­leika­stjarna Sov­ét­ríkj­anna á ólymp­íu­leik­unum 1972.

Hér er mynd af henni í keppni, en hún vakti mikla athygli fyrir hve brosmild hún var.

Og þá er hér aftur línkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár