116. spurningaþraut: Hverjir eiga auðveldara en aðrir með að geispa EKKI þegar einhver í umhverfinu geispar

116. spurningaþraut: Hverjir eiga auðveldara en aðrir með að geispa EKKI þegar einhver í umhverfinu geispar

Hér er, herrar mínir og frúr, þrautin frá í gær.

Auka­spurn­ing 1:

Hver er sá glæsi­legi maður sem sést á mynd­inni hér að ofan?

Hin auka­spurn­ingin kemur svo hér að neðan, fyrst eru það aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Þótt for­setar og þjóð­ar­leið­togar séu mikið á ferð­inni er sjald­gæft að þeir súpi grand af því. En for­seti hvaða ríkis fórst í flug­slysi í apríl 2010 ásamt fjölda æðstu emb­ætt­is­manna í sama ríki?

2.   Lisbeth Salander heitir snjöll kona í glæpa­sagna­röð eftir ... ja, eftir hvern?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Bosníu & Her­segóvínu?

4.   Árið 2015 sá háskól­inn í Baylor í Texas ástæðu til að kanna hvers konar fólk hefði mestu og svo minnstu til­hneig­ing­una til að byrja að geispa ef ein­hver geispar í nágrenn­inu. Í ljós kom að ein teg­und fólks réði miklu betur en aðrir við að bæla niður geispann, sama þótt allir væru geispandi í kringum það. Hvers konar fólk geispar miklu síður en aðrir við þessar aðstæður?

5.   Hvaða nes eða skagi er á milli Þistil­fjarðar og Bakka­fjarðar?

6.   Hver var for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands á undan Boris Johnson?

7.   Lella Lombardi and­að­ist úr krabba­meini fimm­tug að aldri 1992. Hún er fræg fyrir að vera ein aðeins fimm kvenna, sem hafa náð ákveðnum árangri á sviði sem karlar ein­oka að öðru leyti. Og hún er sú þess­ara fimm kvenna sem náði lang­bestum árangri. Það gerð­ist í ákveð­inni keppni á Spáni árið 1975. Þar náði Lombardi sjötta sæti og þótti mikið afrek í keppni við ein­tóma karla. Því miður fyrir Lombardi skyggði mjög á frammi­stöðu hennar að fjórir áhorf­endur létu lífið þar sem þeir horfðu á þá sömu keppni - þótt það kæmi hennar fram­gangi ekk­ert við. Hvaða keppni er hér um að ræða?

8.   Orð, sem í raun­inni á við tungu­mála­flokk, er líka notað um þjóða­hóp sem hefst við í Afríku sunnan Sahara og ekki síst kringum og sunnan mið­baugs. Margir þekkja orðið sva­hílí sem á við eitt af tungu­mál­unum í þessum flokki, en þau eru mun fleiri og eru töluð af miklum fjölda manna. Hvað er orðið sem er notað um þessi tungu­mál og þessar þjóðir í suð­ur­hluta Afríku?

9.   Sarah Palin hét vara­for­seta­efni John McCains í banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum 2008. Hún var þá lítt þekktur rík­is­stjóri í hvaða ríki Banda­ríkj­anna?

10.   Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir fyrrum for­sæt­is­ráð­herra hefur feng­ist við ýmis­legt auk stjórn­mála. Hún vann á skrif­stofu, sinnti verka­lýðs­málum og var ... ja, hvað er þekktasta starf hennar áður út í póli­tík­ina kom?

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi kona?

Og þá ... vindum við okkur í svörin!

1.   Póllands.

2.   Stig Larsson.

3.   Sarajevó.

4.   Sík­ópatar, öðru nafni sið­laust fólk.

5.   Langa­nesi.

6.   Theresa May.

7.    Formúlu 1 kappakst­ur­inn.

8.   Bantú.

9.   Alaska.

10.   Flug­freyja.

Á mynd­inni er fylgir fyrri auka­spurn­ingu má sjá Oscar Wilde hafa það huggu­legt.

Á neðri er Auður Laxness, hér má sjá hana þegar hún fór með eig­in­manni að sækja Nóbels­verð­launin til Sví­þjóðar.

Og hér er svo aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár