112. spurningaþraut: Hverjir byggðu borgina Cahokia? og fleiri spurningar

112. spurningaþraut: Hverjir byggðu borgina Cahokia? og fleiri spurningar

Hérna eru „10 af öllu tagi“ frá því í gær.

Auka­spurn­ingar eru tvær að venju, sú fyrri snýst um mynd­ina hér að ofan. Hvaða haf­svæði er þetta?

Hin auka­spurn­ingin kemur á eftir aðal­spurn­ing­unum tíu.

Þær eru þessar:

1.   Hver gaf út árið 1969 skáld­sög­una Leigj­and­ann um uppi­vöðslu­saman leigj­anda?

2.   Hver lék Elísa­betu drottn­ingu af Bret­landi í kvik­mynd­inni The Queen frá 2006?

3.   Hvers konar fyr­ir­bæri eru Pikachu, Charmander og Mewtwo?

4.   Hvað hét eig­in­kona Winston Churchills?

5.   Fyrir hvaða flokk situr Oddný Harð­ar­dóttir á þingi?

6.   Hvað þýðir rúss­neska orðið „babúsjka“'

7.   Eftir því sem best er vitað er brodda­fura ein í Banda­ríkj­unum í Kali­forníu elsta núlif­andi tré í heimi. Furan er kölluð Met­úsalem en hve gömul er hún? Hér má skeika 350 árum til eða frá.

8.   Það er ekki til­viljun að furan er kölluð Met­úsalem, því það nafn er gjarnan notað yfir árumprýdda öld­unga. Ástæðan er sú að hinn fyrsti Met­úsalem var ...?

9.   Jóhann Karl fyrrum Spán­ar­kóngur hefur lítt farið í felur með fram­hjál­hald sitt bæði fyrir og eftir að hann sat í hásæti Spánar. Drottn­ing hans hefur að mestu látið sig hafa það. Hvað heitir hún?

10.   Cahokia eru þær kall­aðar, rústir borgar sem var upp á sitt besta á árunum 1000-1300 eftir Krist, en þá bjuggu þar lík­lega um 40.000 manns, sem þýðir að borgin var fjöl­menn­ari en London. Seinna tæmd­ist hún alveg og gleymd­ist, og þegar leifar hennar fund­ust rak menn í rogastans því eng­inn hafði áttað sig á því fyrr að fólk á þessu svæði hefði reist og búið í borgum fyrir svo löngu. Hvar eru þessar borg­ar­rústir?

Seinni auka­spurn­ingin:

Hver er þetta?

 Hér eru svörin:

1.   Svava Jak­obs­dóttir.

2.   Helen Mirren.

3.   Pókemon-fíg­urur.

4.   Clementine.

5.   Sam­fylk­ing­una.

6.   Amma.

7.   Tréð er 4.850 ára gam­alt. Því dæm­ist rétt vera allt frá 4.500 árum til 5.200 ára.

8.   Elsta per­sónan í Bibl­í­unni. Hann varð 969 ára.

9.   Soffía.

10.  Cahokia var þar sem nú er Missouri-ríki í Banda­ríkj­unum. Nóg er að nefna Banda­ríkin.

Þá er það haf­svæðið í fyrri auka­spurn­ing­unni. Þar má sjá Malakka-sund milli Malasíu og indónesísku eyj­ar­innar Súmötru. Ef menn nefna „sundið við Síngapúr“ eða eitt­hvað þvíum­líkt, þá hef ég ákveðið eftir nokk­urt sál­ar­stríð að gefa einnig rétt fyrir það.

Hér má sjá stærri hluta sunds­ins:

Seinni auka­spurn­ingin sýnir aftur á móti Hæle Selassí keis­ara Eþíópíu 1916-1974.

Hér er svo aftur linkur á „10 af öllu tagi“ frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár