110. spurningaþraut: Hér er spurt um Nóbelsverðlaun, en óttist eigi, flestar eru spurningar þær fisléttar!

110. spurningaþraut: Hér er spurt um Nóbelsverðlaun, en óttist eigi, flestar eru spurningar þær fisléttar!

Hér er 109. spurn­inga­þraut­ina að finna!!

Að venju eru allar spurn­ingar um sama efni þegar tala þraut­ar­innar endar á heilum tug. Að þessu sinni verða Nóbels­verð­laun fyrir val­inu.

Auka­spurn­ingar:

Á efri mynd­inni má sjá Halldór Laxness taka við Nóbels­verð­laun­unum í bók­menntum úr hendi Svía­kon­ungs. Hvað hét þessi Svía­kóngur? Athugið að ekki er nauð­syn­legt að hafa núm­erið á honum rétt, bara nöfnin hans tvö.

Á neðri mynd­inni má sjá þýskan eðl­is­fræð­ing, sem fékk Nóbels­verð­launin árið 1932 þegar hann var aðeins 31s árs að aldri. Hann fékk verð­launin fyrir upp­götv­anir í skammta­fræði. Núorðið er nafn hans kannski helst tengt svo­nefndu „óvissu­lög­máli“ en það leiddi af upp­götv­unum hans í skammta­fræð­inni. Hvað hét mað­ur­inn?

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða ár fékk Halldór Laxness Nóbels­verð­launin í bók­menntum?

2.   Árið 1903 fékk maður nokkur Nóbels­verð­laun í lækn­is­fræði sem var kom­inn af Íslend­ingum í föð­ur­ætt en fæddur í Færeyjum þar sem faðir hans var þá emb­ætt­is­maður. Hann stund­aði um tíma nám í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, eða Lat­ínu­skól­anum sem þá var kall­aður. Hvað hét maður þessi?

3.   Malala Yousafzai fékk, ásamt öðrum, frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2014. Hún fékk verð­launin fyrir að berj­ast fyrir menntun stúlkna í heima­landi sínu, Pakistan og er enn yngsti Nóbels­verð­launa­hafi sög­unnar. Hve gömul var hún þá hún fékk verð­launin?

4.   Öll Nóbels­verð­launin eru veitt í Stokk­hólmi, nema frið­ar­verð­launin. Hvar eru þau veitt?

5.   Alfred Nobel, sem stofn­setti verð­launin, var sænskur upp­finn­inga­maður og iðn­rek­andi með mörg járn í eld­inum. Auk Nóbels­verð­laun­anna verður nafn hans ævin­lega tengt til­teknu efni, sprengi­efni, sem hann fann upp eða þró­aði alt­ént til fram­leiðslu. Hvaða fyr­ir­bæri er það?

6.   Flestir verð­launa­hafar í bók­menntum hafa fengið pen­ing­inn fyrir skáld­verk, en þó eru nokkrir heim­spek­ingar í hópi verð­launa­haf­anna, einn sagn­fræð­ingur, einn blaða­maður og nokkrir sem erfitt er að skil­greina. Og einn verð­launa­haf­inn í bók­menntum fékk þau, auk verka um sagn­fræði og póli­tík, fyrir „stór­kost­lega ræðu­mennsku til varnar hinum æðstu mann­legu gildum“. Hver var þessi ræðu­maður, svo snjall að hann fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum fyrir?

7.   Fjórir ein­stak­lingar hafa fengið Nóbels­verð­launin tví­vegis, einir eða með öðrum. Aðeins einn af þeim hefur fengið óskiptan Nóbel tvisvar. Vitiði hver hann var?

8.   Fjórir Banda­ríkja­for­setar hafa fengið frið­ar­verð­laun Nóbels. Hver þess­ara fjór­menn­inga fékk þau síð­ast?

9.   Annar Banda­ríkja­for­seti fékk frið­ar­verð­launin árið 2002 en hafði þá reyndar látið af emb­ætti. Hann fékk pen­inga­búntið fyrir að hafa verið „óþreyt­andi við að finna frið­sam­legar lausnir á alþjóð­legum deilu­málum, að halda fram lýð­ræði og mann­rétt­indum og efla efna­hags­lega og félags­lega þróun“. Svona orð eru ekki oft höfð um Banda­ríkja­for­seta. Hver var þetta?

10.   Lengi vel veitt­ist bæði konum og rit­höf­undum frá öðrum svæðum en Evrópu og Ameríkum mjög erfitt að fá Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Til dæmis fékk engin kona verð­launin frá 1945-1966 og svo engin frá 1966-1991. Það var ekki fyrr en 1986 sem fyrsti Afr­íku­mað­ur­inn fékk verð­launin. Síðan hefur Nóbels­nefndin orðið örlítið víð­sýnni. Árið 1993 fékk þeldökk kona bók­mennta­verð­launin í fyrsta sinn. Hún var banda­rísk, kunn­ust fyrir skáld­sög­una Ástkær, og dó fyrir ári síðan. Hvað hét hún?

Hér eru svörin við aðal­spurn­ingum:

1.   1955.

2.   Niels Finsen.

3.   17 ára.

4.   Osló, sem er borg í Noregi.

5.   Dínamít.

6.   Winston Churchill.

7.   Linus Pauling sem fékk verð­laun í efna­fræði 1954 og frið­ar­verð­laun 1962.

8.   Barack Obama.

9.   Jimmy Carter.

10.   Toni Morrison.

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri - sænski kóng­ur­inn hét Gústaf Adolf, reyndar Gústaf 6. Adolf en töl­una þurf­iði sem sagt ekki að vita.

Sú seinni - Werner Heisen­berg er mað­ur­inn á mynd­inni.

Hér eru svo þrautir gær­dags­ins aftur!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár