109. spurningaþraut: Hvert fór arabíski ferðalangurinn Ahmad bin Fadlan á 10. öld? Þið vitið það, trúi ég

109. spurningaþraut: Hvert fór arabíski ferðalangurinn Ahmad bin Fadlan á 10. öld? Þið vitið það, trúi ég

Þrautin frá í gær? Hún er hér!

Auka­spurn­ingar:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

Neðri myndin sýnir lauf trjáa, sem reyndar hafa ekki vaxið á Íslandi, þótt á seinni árum séu ýmsir að gera til­raunir með að láta þau vaxa hér. Hvaða tré eru það?

Og aðal­spurn­ingar koma þá hér?

1.   Hversu mörg sjálf­stæð ríki eru full­gildir aðilar að Sam­ein­uðu þjóð­unum? Hér má skeika 5 ríkjum til eða frá.

2.   Hvað ætli sé nýjasta ríkið sem tekið var í Sam­ein­uðu þjóð­irnar? Það gerð­ist reyndar árið 2011.

3.   Friedrich August von Hayek hét maður sem lést árið 1992. Hann var mik­ils­virtur í sinni fræði­grein. Hver var hún?

4.   Ahmad ibn Fadlan hét arab­ískur ferða­langur á 10. öld sem skrif­aði lýs­ingu á ferða­lagi sínu til fjar­lægra slóða, þar sem hann varð meðal ann­ars vitni að því þegar skip var brennt við hátíð­lega athöfn. Hvaða þjóð eða öllu heldur þjóð­flokkur var það sem Ibn Fadlan lýsti?

5.   Sicario hét vin­sæl glæpa­mynd um eit­ur­lyfja­hringi í Mexíkó og Banda­ríkj­unum, sem frum­sýnd var 2015. Þar léku stór hlut­verk menn eins og Benicio del Toro og Josh Brolin, en aðal­hlut­verkið - mjög töff FBI-mann - var þó í höndum konu einnar sem fram að því hafði verið einna þekkt­ust fyrir að leika Viktoríu drottn­ingu á yngri árum. Hvað heitir hún?

6.   En svo er annað. Hver samdi tón­list­ina í þess­ari kvik­mynd leik­stjór­ans Dennis Vil­leneuve?

7.   Árið 2008 vildi svo til að tvær íslenskar kvik­myndir voru frum­sýndar þar sem brúð­kaup voru í for­grunni. Önnur hét Brúð­gum­inn og var leik­stýrt af Baltasar Kormáki. Þar léku Hilmir Snær, Margrét Vil­hjálms­dóttir og fleiri stór hlut­verk. En á hvaða til­tölu­lega afskekkta stað gerð­ist þessi mynd?

8.   Hin myndin hét Sveita­brúð­kaup og þar léku Nanna Kristín og Björn Hlynur stærstu hlut­verkin. Leik­stjóri þeirrar myndar er raunar þekkt­ari fyrir að klippa myndir en stjórna. Hver leik­stýrði Sveita­brúð­kaupi?

9.   Hrauni sem flæðir úr eld­gosum er yfir­leitt skipt í tvennt: hellu­hraun og ... hvað?

10.   Ef lagt er upp frá London á Bret­landi og haldið í vestur, hver er þá fyrsta millj­óna­borgin í Norður-Ameríku sem fyrir verður, svona nokkurn veg­inn, þótt ekki séu þær borgir á nákvæm­lega sömu breidd­argráðu, heldur er London ívið norðar?

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna eru 193 - svo rétt hjá telja allt frá 188 til 198.

2.   Suður-Súdan.

3.   Hagfræði.

4.   Víkingar. Þeir voru komnir alla leið til Rúss­lands, svo menn geta gefið sér and­legt stig fyrir að nefna Rússland, en svarið er samt ekki rétt nema vík­ingar séu nefndir.

5.   Emily Blunt.

6.   Jóhann G. Jóhanns­son.

7.   Í Flatey á Breiða­firði.

8.   Valdís Ósk­ars­dóttir.

9.   Apal­hraun.

10.   Calgary í Kanada.

Auka­spurn­ingar:

Myndin sýnir að sjálf­sögðu Evu Braun, sem nokkru eftir að myndin var tekin gekk að eiga Adolf Hitler for­ingja Þýska­lands og gekk þvínæst með honum í dauð­ann.

Má sjá þau bæði hér til hliðar.

Á neðri mynd­inni eru aptur á móti eik­ar­lauf.

Og hér er að lokum aftur linkur á þraut­ina frá í gær, reynið yður við hana!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár