108. spurningaþraut: Við hvað starfaði hin miðaldra söguhetja í bíómyndinni Líf annarra?

108. spurningaþraut: Við hvað starfaði hin miðaldra söguhetja í bíómyndinni Líf annarra?

Áður en lengra er haldið, þá leyn­ist hér þrautin frá í gær.

Auka­spurn­ingar:

Á mynd­inni hér að ofan er bíó­mynda­per­sóna sem Brie Larson lék í vin­sælli mynd í fyrra. Í sínu dag­lega lífi heitir per­sónan Carol Danvers en hvað nefn­ist þegar hún er komin í þennan skín­andi fína og vel saum­aða bún­ing?

Á neðri mynd­inni er brosmild salamandra. Hvað heitir teg­undin sem hún er af?

Aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Með hvaða fót­boltaliði spilar Portú­gal­inn Cristiano Ronaldo nú um stundir?

2.   Analía, Hannalísa, Míríel, Mar­fríður, Vetr­ar­rós og Vinný eru allt góð og gild kven­mannsnöfn á Íslandi með leyfi manna­nafna­nefndar. Nema eitt. Hverju af þessum nöfnum var hafnað?

3.   Banda­ríkja­for­set­arnir John Quincey Adams, Ruther­ford B. Hayes, Benjamin Harrison, George W. Bush og Donald Trump eiga sjálf­sagt sitt af hverju sam­eig­in­legt. En hvað blasir þó helst við í sam­bandi við kjör þeirra til for­seta?

4.   Eitt af Apollo-tung­förum Banda­ríkj­anna varð að snúa til baka á leið til tungls­ins árið 1970 eftir að spreng­ing varð um borð. Geim­far­arnir þrír sluppu heilu og höldnu frá raun þess­ari. Númer hvað var þetta Apollo-far?

5.   Hver er um þessar mundir lang­vin­sælasta söng­konan í hinum spænsku­mæl­andi heimi og reyndar kölluð „drottn­ing lat­ínó-tón­listar“?

6.   Í hvaða frægri skáld­sögu er fjallað um Búendía-fjöl­skyld­una?

7.   Árið 2006 naut þýska kvik­myndin Líf ann­arra - Das Leben der Anderen - mik­illa vin­sælda. Hún fjall­aði á næman og skiln­ings­ríkan hátt um vanda­mál mið­aldra karls í starfi sínu. Ulrich Mühe lék þennan mann, en við hvað starf­aði mað­ur­inn í bió­mynd­inni?

8.   „Rign­ingin“ heitir Netflix-sería sem sýnd hefur verið frá 2018 og nú verður senn frum­sýnd þriðja og síð­asta ser­ían. Hér er um að ræða æsi­lega „dystópíu“ eða skelf­ing­ar­lýs­ingu úr fram­tíð­inni þar sem sak­laus rign­ing ber með sér bráð­drep­andi veirur. Í hvaða landi er þessi sería gerð?

9.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Taípei?

10.   Carl Linneus eða von Linné var nátt­úru­fræð­ingur á 18. öld sem þró­aði kerfi til að skipta líf­verum í flokka og gaf þeirra lat­nesk nöfn sem síðan hefur við­geng­ist í þessum bransa. Hverrar þjóðar var hann?

Þá eru hér svörin við almennu spurn­ing­unum tíu:

1.   Juventus á Ítalíu.

2.   Hannalísa.

3.   Þeir komust allir til valda þótt þeir hefðu færri atkvæði en keppi­nautar þeirra.

4.   13.

5.   Shakira.

6.   Hundrað ára ein­semd eftir Gabriel García Márquez.

7.   Hann var hler­un­ar­maður fyrir leyni­þjón­ust­una Stasi.

8.   Danmörku.

9.   Taívan.

10.   Sænskur.

Auka­spurn­ingar:

Persónan kall­ast Kafteinn Marvel.

Salamandran er af teg­und­inni axolotl. Já - „axolotl“ og ekk­ert annað! Samkvæmt kerf­inu sem von Linné var upp­hafs­maður að heitir hún reyndar Amby­stoma mexicanum.

Og að lokum er hér aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár