106. spurningaþraut: Hvar á Jörðinni leynist 3,5 kílómetra hár foss?

106. spurningaþraut: Hvar á Jörðinni leynist 3,5 kílómetra hár foss?

Hér er 105. þrautin frá í gær.

Auka­spurn­ingar:

Á efri mynd­inni, hver er mað­ur­inn sem ávarpar þarna auðan stól?

Og á neðri mynd­inni: Hver er konan?

En aðal­spurn­ingar koma hér:

1.   Í til­efni af mynd­inni af mann­inum að ávarpa stól, þá ger­ist það í einu leik­riti Shakespe­ares að maður ávarpar stól af því hann telur sig sjá í stólnum draug manns sem hann hafði látið myrða. Í hvaða leik­riti ger­ist þetta?

2.   Hvaða ríki í ver­öld­inni hefur lengstu strand­lengj­una?

3.   Lang­sam­lega hæsti neð­an­sjáv­ar­foss í heimi er um 3,5 kíló­metra hár. Hann mynd­ast þannig að tveir sjáv­ar­straumar, annar hlýr og hinn kaldur, mæt­ast á fremur afmörk­uðu svæði sem veldur því að kaldi sjór­inn sekkur niður á við á mik­illi ferð, rétt eins og vatn fossar niður af hamra­brún á þurru landi. En hvar er þessi gríð­ar­hái foss?

4.   En í hvaða landi er ann­ars hæsti foss­inn á landi, Engla­foss (rétt­ara er þó ein­fald­lega Ang­el­foss), sem er 979 metra á hæð eða ívið hærri en Esjan?

5.   Hver af guð­spjalla­mönn­unum fjórum er tal­inn hafa samið líka Post­ula­sög­una?

6.   Hvar er höfði sá sem kall­ast á íslensku Hvarf en kall­ast Cape Farewell á ensku og eitt­hvað svipað á flestum öðrum málum?

7.   Árið 1975 var kona nokkur veif­andi skamm­byssu hand­tekin þegar hún reyndi að nálg­ast Gerald Ford þáver­andi Banda­ríkja­for­seta. Hún var dæmd í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir morð­til­ræði en látin laus árið 2009. Morð­til­ræðið við Ford gat hún aldrei skýrt að fullu, en hún var félagi í frægum glæpa­flokki í Banda­ríkj­unum. Hvaða hópur var það?

8.   Kaup­manna­höfn er langstærsta borg Dan­merkur eins og allir vita. En hver er sú næst­stærsta?

9.   Masako heitir drottn­ing ein. Hvar situr hún í hásæti?

10.   Hver er fjar­lægðin milli Reykja­víkur og New York? Hér má skeika 300 kíló­metrum til eða frá.

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Makbeð.

2.   Kanada.

3.   Græn­lands­sundi milli Íslands og Græn­lands.

4.   Venes­ú­ela.

5.   Lúkas.

6.   Græn­landi.

7.   „Fjöl­skylda“ Charles Mansons er fræg varð fyrir morð á Sharon Tate og fleirum.

8.   Árósar.

9.   Í Japan.

10.   4.200 kíló­metrar, svo rétt má heita allt frá 3.900 til 4.500 kíló­metrar.

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn sem ávarp­aði stól­inn var Clint Eastwood. Þessi upp­á­koma varð á flokks­þingi Repúblik­ana í Banda­ríkj­unum 2012 þar sem Eastwood þótt­ist með þessum hætti ávarpa Barack Obama for­seta.

Konan á neðri mynd­inni er enska leik­konan Maggie Smith sem kunn­ust er upp á síðkastið fyrir að leika í Downton Abbey.

Og hér er aptur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár