105. spurningaþraut: Hver réði tæplega helmingi af öllu gulli sögunnar á 14. öld?

105. spurningaþraut: Hver réði tæplega helmingi af öllu gulli sögunnar á 14. öld?

Hér er þrautin frá í gær.

Auka­spurn­ingar:

Í hvaða borg er myndin hér að ofan tekin?

En á neðri mynd­inni, hvert þess­ara ung­menna varð heims­frægt?

En hér eru aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Hvaða fót­boltalið hefur oft­ast unnið skoska meist­ara­tit­il­inn í karla­flokki?

2.   Mansa Músa var kon­ungur í ríki einu í byrjun 14. aldar. Hann er tal­inn hafa verið einn rík­asti kóngur sög­unnar og sér­fræð­ingar British Museum hafa reiknað út að hann hafi ráðið tæp­lega helm­ingi af öllu gulli sem grafið hafði verið úr jörð fram að því. Í hvaða ríki var Mansa Músa við völd?

3.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Bamakó?

4.   Tveir rit­stjórar eru við Stundina. Nefnið að minnsta kosti annan rit­stjór­ann fullu nafni.

5.   Hver skrif­aði bók­ina 90 sýni úr minni mínu?

6.   Hver orti ljóðið við íslenska þjóð­söng­inn, Lofsöng, eða Íslands þús­und ár?

7.   Flug­fé­lagið Icelandair hét áður Flug­leiðir, en það var stofnað 1973 þegar saman runnu Flug­fé­lag Íslands og ... hvaða flug­fé­lag?

8.   Kams­olkin hét maður, fæddur 1885. Hann var mynd­list­ar­maður, hönn­uður og ekki síst leik­mynda­teikn­ari. Meðal verka hans er eitt sem er meðal útbreidd­ustu og þekkt­ustu mynd­verka 20. ald­ar­innar - sumir myndu segja alræmd­ustu - en fáir þekkja hann þó sem höf­und þess. Það var raunar ekki að öllu leyti hans hug­mynda­verk því hann byggði á eldri útgáfum. Sú elsta prýddi að lík­indum tjí­leska mynd þegar árið 1895. En hvaða verk Kams­olk­ins er hér átt við?

9.   Hvað heitir stærsta eyjan í Eyja­firði?

10.   Fyrsta konan sem segja má að hafi ríkt í eigin nafni sem drottn­ing yfir Englandi var uppi á 12. öld, dóttir Hinriks 1. kon­ungs og son­ar­dóttir Vil­hjálms sig­ur­veg­ara eða Vil­hjálms bastarðs. Konan var reyndar ekki óum­deild í hásæt­inu og átti í borg­ara­stríði við náfrænda sinn, Stefán kon­ung. Hún fær nú samt pláss í þjóð­höfð­ingja­tali Englands, og sonur hennar varð kon­ungur undir nafn­inu Hinrik 2. og gat af sér kóng­ana Ríkharð ljóns­hjarta og Jóhann land­lausa. En hvað hét þessi drottn­ing Englands sem hér um ræðir?

Hér eru svörin:

1.   Glasgow Rangers.

2.   Malí.

3.   Malí.

4.   Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og Jón Trausti Reyn­is­son.

5.   Halldóra K. Thorodd­sen.

6.   Matthías Jochumsson.

Hamar og sigð Kams­olk­ins

7.   Loft­leiðir.

Hamar og sigð á tjí­leskum pesóa

8.   Hamar og sigð, tákn Sov­ét­ríkj­anna og Komm­ún­ista­flokks­ins þeirra. Táknið átti að merkja órofa sam­stöðu bænda (með sigð­ina að vopni) og verka­manna (með verk­smiðju­hamar). Síðan varð myndin að tákni komm­ún­ista um víða ver­öld.

9.   Hrísey.

10.   Matt­hildur.

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin er tekin við aðal­járn­braut­ar­stöð­ina í Stalín­grad seint á árinu 1942.

Og sú neðri: Meryl Streep (lengst til hægri) varð óneit­an­lega tölu­vert heims­fræg­ari en hinir ungu félagar hennar í leik­list­inni.

Og hér er loks aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár