103. spurningaþraut: „Engin kona hefur hingað til getað orðið tónskáld. Því skyldi ég búast við að verða sú fyrsta?“

103. spurningaþraut: „Engin kona hefur hingað til getað orðið tónskáld. Því skyldi ég búast við að verða sú fyrsta?“

Hér er þrautin „10 af öllu tagi“ frá því í gær!

Auka­spurn­ingar í dag eru þessar:

Hvaða orr­ustu er lýst á þeirri útsaum­uðu mynd, sem sést hér að ofan?

Hver er konan á neðri mynd­inni?

Hér eru svo 10 af öllu tagi:

1.   Hvaða pest er talin hafa borist til Íslands árið 1402?

2.   Banda­rískur hers­höfð­ingi lét að sér kveða í síð­ari heims­styrj­öld og stýrði herjum í Norður-Afríku, á Sikiley og síðan í Frakk­landi og Þýska­landi. Rúmu hálfu ári eftir stríðið dó hann eftir bílslys í Þýska­landi. Hvað hét dáti sá?

3.   Hvað heitir söng­leik­ur­inn um líf Bubba Morthens sem frum­sýndur var í Borg­ar­leik­hús­inu á útmán­uðum 2020?

4.   Hvað heitir hinn þýski mark­vörður karla­liðs Barcelona í fót­bolta?

5.   Í fyrra var ráð­inn nýr for­stjóri að Póstinum og þurfti hann að hefja mjög sárs­auka­fullar aðhalds­að­gerðir vegna langvar­andi tap­rekstrar. For­stjór­inn heitir Birgir Jónsson en hann hafði fram að því verið kunnur fyrir önnur störf sín, allt ann­ars eðlis. Hver voru þau?

6.   Kona nokkur á 19. öld var mjög fær píanó­leik­ari og afar efni­legt tón­skáld. Hún samdi til dæmis píanó­konsert aðeins 14 ára gömul. Þegar hún var hálf­þrí­tug hætti hún hins vegar að mestu að semja tón­list. „Ég hélt einu sinni að ég hefði sköp­un­ar­gáfu,“ skrif­aði hún, „en ég er búin að gefa þá hug­mynd upp á bát­inn. Kona má ekki þrá að semja tón­list. Engin kona hefur hingað til getað orðið tón­skáld. Því skyldi ég búast við að verða sú fyrsta?“ Upp frá því lét konan sér nægja að sinna píanó­leiknum og hlúa að eig­in­manni sínum, sem var reyndar frægt og vel metið tón­skáld, en átti við erf­iðan geð­sjúk­dóm og fleiri kvilla að stríða. Hvað hét þessi kona?

7.   „Eitt sinn skaut hinn ofur­litli Amor / ör með seg­ul­stál ...“ Þannig hefst lagið Önnur sjón­ar­mið eftir Hilmar Oddsson sem kom út á plötu árið 1986. Vinsæl leik­kona söng lagið. Hvað hét hún?

8.   Hver var ann­ars Amor?

9.   Hvað heitir höf­uð­borg Fil­ipps­eyja?

10.   Kona ein var kunnur blaða­maður og rit­stjóri á sínum yngri árum og rit­stýrði þá tíma­rit­unum Mannlíf og síðan Heims­mynd. Hún varð síðar doktor í lögum og hefur sinnt marg­vís­legum störfum á alþjóða­vett­vangi á því sviði. Árið 2014 var hún í for­seta­fram­boði. Hvað heitir hún?

Svör:

1.   Svarti dauði.

2.   Patton.

3.   Níu líf.

4.   Ter Stegen.

5.   Hann var trommu­leik­ari í þung­arokks­hljóm­sveit­inni Dimmu.

6.   Clara Schumann.

7.   Edda Heiðrún Backman. Hér má heyra lagið.

8.   Lítið ást­ar­kvik­indi, róm­verskt.

9.   Manila.

10.   Herdís Þor­geirs­dóttir.

Og svörin við auka­spurn­ing­unum:

Bayeux-ref­ill­inn svo­kall­aði lýsir orr­ust­unni við Hastings 1066 þegar inn­rás­ar­her Normanna sigr­aði Eng­land­s­kóng.

Konan á neðri mynd­inni er söng­konan Adele.

  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár