102. spurningaþraut: Hvaða hluta vantar í meltingarveginn?

102. spurningaþraut: Hvaða hluta vantar í meltingarveginn?

Hér er þrautin frá í gær.

Auka­spurn­ingar:

Myndin hér að ofan var máluð árið 1972 og hún er dýrasta mynd sem selst hefur eftir núlif­andi lista­mann. Myndin heitir Mynd af lista­manni (Sundlaug og tvær mann­eskjur) en hver er lista­mað­ur­inn?

Og hvað heitir mað­ur­inn á neðri mynd­inni?

Hér eru aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Litháen?

2.   Hvað heitir hið banda­rískra móð­ur­fé­lag Íslenskrar erfða­grein­ingar?

3.   Fyrir hvaða flokk situr Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir á þingi?

4.   Gyðjan Ísis var dýrkuð um öll Mið­aust­ur­lönd og víða um Evrópu í fornöld. En í hvaða landi var hún upp­runnin?

5.   Malena Ernman heitir tæp­lega fimm­tug sænsk söng­kona. Hún hefur sungið flestar gerðir tón­listar um dag­ana, allt frá óperum til popps. Árið 2009 varð ver­ald­legur frami hennar lík­lega einna mestur þegar hún var full­trúi Sví­þjóðar í Eurovision. Ekki gerði hún þó garð­inn frægan þar því hún end­aði í 21. sæti sem er ein­hver versti árangur Sví­þjóðar í þess­ari keppni í ára­tugi. Þetta var keppnin þegar hinn norski Alex­ander Rybak vann stór­sigur en Jóhanna Guðrún varð í öðru sæti. Nú um stundir er Malena Ernman þó enn þekkt­ari í Svíþjóð fyrir annað en þessa þátt­töku sína í Eurovision. Hvað er það?

6.   Árið 1908 sendi Ford bíla­verk­smiðjan í Banda­ríkj­unum frá sér nýja gerð af bíl sem er almennt tal­inn hafa verið fyrsti fólks­bíll­inn sem almenn­ingur hafði efni og var enda fram­leiddur í gríð­ar­legu magni næstu 19 árin. Hvað kall­að­ist þessi bíla­teg­und?

7.   Árið 2010 frum­sýndi Friðrik Þór Frið­riks­son kvik­mynd um roskna konu sem þjá­ist af Alzheimer-sjúk­dómnum. Hann fór ekki í felur með að myndin væri byggð á ævi móður hans. Krist­björg Kjeld lék kon­una, en hvað hét myndin?

8.   Munnur, vél­inda, magi, smá­þarmar og rist­ill. Þetta er sjálfur melt­ing­ar­veg­ur­inn. En það vantar einn hluta eða líf­færi inn á list­ann. Hvaða hluti er það?

9.   Hvaða hljóm­sveit atti mjög kappi við Stuðmenn í kvik­mynd­inni Með allt á hreinu?

10.   Af hvaða teg­und var hákarl­inn sem lék lausum hala í kvik­mynd­inni Jaws eftir Steven Spi­el­berg árið 1975? Tegundin hefur íslenskt nafn en í þetta sinn er einnig heim­ilt að nefna það enska.

Hér eru svörin:

1.   Vilníus.

2.   Amgen.

3.   Sam­fylk­ing­una.

4.   Egifta­landi.

5.   Hún er móðir umhverf­isaktíf­ist­ans Gretu Thunberg.

6.   Ford T.

7.   Mamma Gógó.

8.   Munnur, KOK, vél­inda, magi, smá­þarmar og rist­ill. 

9.   Gærurnar er hljóm­sveitin kölluð í mynd­inni. Sú hljóm­sveit er leikin af hljóm­sveit­inni Grýlunum, og af ein­skærri léttúð ætla ég að gefa rétt fyrir hvorttveggja.

10.   Hvít­háfur, á ensku great white shark.

Svör við auka­spurn­ingum:

David Hockney heitir málar­inn, en karl­inn á neðri mynd­inni er Alexis Tsipras fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Grikkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár