101. spurningaþraut: „Þegar hann vaknaði var [hver?] enn á staðnum.“

101. spurningaþraut: „Þegar hann vaknaði var [hver?] enn á staðnum.“

Hérna er 100. spurn­inga­þrautin, sem birt­ist í gær.

Auka­spurn­ingar eru þessar:

Efri myndin sýnir brot af frægri ljós­mynd. Hvað sýnir myndin í heild?

En hver er á neðri mynd­inni?

1.   Við hvaða fjörð stendur þorpið Suð­ur­eyri?

2.   Árið 1940 varð Winston for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hvað hét for­veri hans í emb­ætti?

3.   Hvað heitir fyr­ir­tækið sem á álverið í Straums­vík?

4.   Kona ein að nafni Melanie Janine Brown eign­að­ist árið 2007 dóttur með banda­ríska grín­leik­ar­anum Eddie Murphy, þótt reyndar þyrfti hún að hóta máls­sókn og láta gera DNA-próf til að hann við­ur­kenndi fað­erni dótt­ur­innar. Brown á reyndar alls þrjár dætur á aldr­inum 9 til 21s árs. En undir hvaða nafni er Brown þekkt­ust?

5.   Alexei Sanchez heitir fót­bolta­karl einn og er meðal þeirra hæst­laun­uðu í heimi, þótt hann hafi raunar ekki getað rass­gat síð­ustu miss­eri. Undir fána hvaða þjóðar spilar Sanchez?

6.   John Tyler hét stjórn­mála­maður frá Virginíu í Banda­ríkjum Norður-Ameríku. Í apríl 1841 tók hann við emb­ætti for­seta þar í landi og flutti inn í Hvíta húsið. Hvað þykir sér­stak­lega merki­legt við þessa valda­töku Tylers?

7.   Þóra Guð­munds­dóttir er lög­fræð­ingur. Hvar er hana helst að finna?

8.   Ein allra stysta smá­saga í heimi er eftir Augusto Monter­roso frá Hondúras. Hún er svona: „Þegar hann vakn­aði var [xxx] enn á staðnum.“ En hver var það, sem var enn á staðnum í þess­ari sögu?

9.   Hver varð fyrstur eða fyrst til að vera bæði leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Reykja­víkur og síðan Þjóð­leik­hús­stjóri?

10.   Hver samdi tón­listin við ball­ett­inn Svana­vatnið?

Og þá eru hér svörin:

1.   Súg­anda­fjörð.

2.   Chamberlain.

3.   Rio Tinto.

4.   Mel B., söng­kona í Spice Girls.

5.   Tjíle.

6.   Fyrsti vara­for­set­inn sem tók við þegar for­seti dó í emb­ætti.

7.   Í bókum Yrsu Sig­urð­ar­dóttur.

8.   Risa­eðlan.

9.   Sveinn Ein­ars­son.

10.   Tjækov­skí.

Auka­spurn­ingar:

Efri myndin er hluti af víð­frægri ljós­mynd sem tekin var í tengslum við mót­mæli á Torgi hins himneska friðar árið 1989, þegar hug­rakkur veg­far­andi stöðv­aði röð skrið­dreka sem var á leið að ógna mót­mæl­endum.

Hann var seinna hand­tek­inn og hefur ekki sést síðan.

Myndin er hér til hægri.

Á neðri mynd­inni er aftur á móti æsku­mynd af Kamölu Harris, banda­rískum stórn­mála­manni, sem hugs­an­lega verður vara­for­seta­efni Joe Bidens for­seta­fram­bjóð­enda Demókrata fyrir vestan sjó.

Hér til hægri má sjá nýlegri mynd af Harris, sem und­an­farið hefur verið öld­unga­deild­ar­þing­maður í Kali­forníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár