99. spurningaþraut: Hver datt af hjólinu sínu á Mallorca og dó?

99. spurningaþraut: Hver datt af hjólinu sínu á Mallorca og dó?

Hér er þrautin frá gær­deg­inum. Prófið hana!

Auka­spurn­ingar:

Hvaða box­ari er það sem mundar hanska hér á efri mynd­inni?

Og hvað heitir stað­ur­inn, sem sjá má á neðri mynd­inni?

En þá koma hér aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Árið 2018 tók Ísland í fyrsta sinn þátt í heims­meist­ara­móti karla í fót­bolta. Mótið var háð í Rúss­landi. Fyrsti leikur Íslands var við Argent­ínu og óvænt náð­ist 1-1 jafn­tefli. Hver skor­aði mark Íslands?

2.   Síðasta ára­tug­inn hafa Bretar vart ráðið sér af fögn­uði yfir þrem bókum konu einnar sem fjalla allar í skáld­sögu­formi um ævi og störf Thomas Cromwell, ráð­gjafa Hinriks kóngs átt­unda. Nú þegar hefur verið gerð vin­sæl sjón­varps­s­ería eftir tveimur fyrstu bók­unum og kall­ast Wolf Hall. Konan hefur fengið öll verð­laun sem í boði eru á Bret­landi og útnefnd „dama breska heims­veld­is­ins“. Hvað heitir hún?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Sviss?

4.   Kona ein hét Christa Päffgen, hún fædd­ist í Þýska­landi 1938, sló í gegn sem fyr­ir­sæta ung að árum og fór svo að fást við músík í New York þar sem hún söng með Velvet Underground, hljóm­sveit sem mjög tengd­ist nafni lista­manns­ins Andy Warhols en raunar var Lou Reed aðal­sprauta hljóm­sveit­ar­innar. Hún Christa okkar fékkst síðan við tón­list til ævi­loka en hún dó aðeins fimm­tug þegar hún datt af reiði­hjól­inu sínu á Mallorca. Alltaf var hún kunn­ust undir gælu­nafni sem ljós­mynd­ari einn gaf henni snemma á fyr­ir­sætu­ferl­inum. Hvað kall­að­ist hún?

5.   Ragn­heiður Run­ólfs­dóttir var aðeins önnur konan frá 1958 sem var útnefnd íþrótta­maður árs­ins 1991 en hver var hennar íþrótta­grein?

6.   Medea er kona ein kunn úr grískum þjóð­sögum og goð­sögum. Ekki er minn­ing hennar þó sveipuð gleði og ham­ingju, því hún er kunn fyrir einn hræði­leg­asta verknað í sam­an­lögðum goð­sög­unum - þótt hún sé raunar ekki ein um þennan glæp í fornum sögnum. Hvað gerði Medea af sér?

7.   Árið 1997 kom út bókin Elsku besta Binna mín eftir nýjan barna­bóka­höf­und sem hefur síðan gefið út bók á ári, því sem næst, og flestallar náð miklum vin­sældum. Einna kunnastar eru lík­lega bækur þar sem sögu­hetjan Fíasól leikur lausum hala. Hvað heitir höf­und­ur­inn?

8.   Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir heitir ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. En hún heitir ekki bara löngu nafni, heldur ber hún líka lengsta ráð­herra­tit­il­inn. Hver er hann - orð­réttur?

9.   Við hvaða fjörð stendur Akureyri?

10.   Hvaða gyðja nor­rænna manna ferð­að­ist um í vagni sem tveir dug­miklir kettir drógu?

Svörin eru þessi:

1.   Alfreð Finn­boga­son.

2.   Hilary Mantel.

3.   Bern.

4.   Nico. Hér má heyra hana flytja lagið eft­ir­minni­lega, All Tomorrow's Parties, með Velvet Underground.

5.   Sund.

6.   Hún myrti börn sín til að hefna sín á föður þeirra.

7.   Kristín Helga Gunn­ars­dóttir.

8.   Hún er ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

9.   Eyja­fjörð.

10.   Freyja.

Auka­spurn­ing­arnar:

Á mynd­inni er að sjálf­sögðu Pálmi Gestsson, sem er vissu­lega ekki box­ari að meg­in­starfi en hefur hins vegar á leik­ara­ferli sínum brugð­ist sér í flestra kvik­inda líki.

Þar á meðal lék hann þann box­ara sem á mynd­inni sést.

Á neðri mynd­inni er aftur á móti Inka­borgin Machu Picchu í And­es­fjöllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár