98. spurningaþraut: Hverjum var lýst sem „ekki mjög aðlaðandi eintaki“ af verðandi eiginkonu sinni?

98. spurningaþraut: Hverjum var lýst sem „ekki mjög aðlaðandi eintaki“ af verðandi eiginkonu sinni?

Hér á þessum link má finna spurn­inga­þraut­ina frá í gær. Spreytið yður endi­lega á henni!

En hér eru auka­spurn­ing­arnar:

Hvaða fal­legi fáni er á mynd­inni hér að ofan?

Á mynd­inni að neðan má sjá Ragn­heiði Gyðu Jóns­dóttur færa gesti einum blóm­vönd við komu hans til Íslands, og er myndin tekin fyrir nokkrum árum. Hver er gest­ur­inn? 

En þá eru það aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Rokk­stjörnur koma úr marg­vís­legu umhverfi. Ein af fræg­ustu - og skamm­líf­ustu - rokk­stjörnum hippa­tím­ans átti föður sem var skip­stjóri á banda­rísku flug­véla­móð­ur­skipi í Víetnam-stríð­inu og síðar flota­for­ingi í banda­ríska flot­anum. Honum og rokk­stjörn­unni kom reyndar ekki mjög vel saman þegar svo var komið, en vannst ekki tími til að lappa upp á sam­bandið. Hver var rokk­stjarnan?

2.   Hver er höf­uð­borgin í Búlgaríu?

3.   Hraði skipa á sjónum hefur löngum verið mældur í sjó­mílum á klukku­stundum, en þessi mæli­ein­ing hefur lengst af borið sér­stakt nafn. Talað er um að hrað­skreitt skip nái t.d. þrjá­tíu [xxx] hraða. Fyrir hvað stendur [xxx]?

4.   Formaður Vinstri grænna er Katrín Jak­obs­dóttir. Hver var for­maður flokks­ins á undan henni?

5.   Hann fædd­ist árið 1915 á Bret­landi og fór ungur að starfa við fyr­ir­tæki föður hans sem fram­leiddi og seldi máln­ingu, lakk og við­ar­vörn alls konar. Síðari heims­styrj­öldin setti strik í reikn­ing hans, en þá gekk hann í breska her­inn og þótti standa sig mæta vel við ýmis skipu­lags­störf að baki víg­lín­unnar. Á stríðs­ár­unum gekk hann í hjóna­band en vegna starfa hans fyrir her­inn bjuggu hann og kona hans aldrei saman og eftir stríðið skildi konan við hann, þar eð hún hafði hitt annan karl og væn­legri. Þettta var okkar manni mikið áfall, en hann hófst nú handa við að stýra fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu með ágætum árangri. Á ráð­stefnu um máln­ing­ar­mál árið 1949 hitti hann ungan efna­fræð­ing af kven­kyni, sem sagði um hann að hann væri „ekki mjög aðlað­andi ein­tak“ en gift­ist honum samt tveim árum síðar. Þetta hjóna­band varð heldur far­sælt þótt fram­tíð­ar­at­vinna eig­in­kon­unnar ylli nokkrum vanda er fram í sótti og hann fékk til dæmis tauga­á­fall 1964. En allt jafn­aði það sig og yfir­leitt fór vel á með hjón­unum. Þau áttu tvö börn. Karl dó svo árið 2003, tæp­lega níræður. Hvað hét hann?

6.   Þjórsá er lengsta á á Íslandi. En hve löng telst hún vera? Hér má muna 20 kíló­metrum til eða frá.

7.   Hvað þýðir ann­ars orðið „þjór“ í nafni Þjórsár?

8.   Hvað er Tian­an­men-torg yfir­leitt kallað á íslensku?

9.   Högna Sig­urð­ar­dóttir fædd­ist árið 1929 og var fyrsta konan á Íslandi sem bar nafnið Högna. En hún varð þó kunn­ari fyrir annað en nafnið eitt, og hasl­aði sér góðan völl á ákveðnu sviði - þar sem hún var í fremstu röð í ára­tugi. Hvaða svið var það?

10.   Hver orti: „Tunglið, tunglið, taktu mig / og berðu mig upp til skýja. / Hugurinn ber mig hálfa leið / í heim­ana nýja.“

(Eins og sjá má á vatns­merk­inu er myndin eign Morg­un­blaðs­ins, enda birt­ist hún þar á sínum tíma. Ljós­mynd­ari var snill­ing­ur­inn Ólafur K. Magn­ús­son. Ég vona að for­ráða­menn Morg­un­blaðs­ins leyfi mér að birta hana svona í þetta eina sinn!)

Svörin við aðal­spurn­ing­unum tíu:

1.   Jim Morrison, söngv­ari The Doors.

2.   Sofía.

3.   Hnúta.

4.   Stein­grímur J. Sig­fús­son.

5.   Denis Thatcher.

6.   230 kíló­metrar, svo rétt dæm­ist vera allt frá 210 til 250.

7.   Naut.

8.   Torg hins himneska friðar.

9.  Arkitekt.

10.   Theódóra Thorodd­sen.

Auka­spurn­ingar:

Fáninn er fáni Afganist­ans.

Gest­ur­inn brosmildi er jazzistinn Louis Arm­strong.

Hér er svo aftur linkur á þraut­ina frá í gær.

   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár