97. spurningaþraut: Hver er til dæmis eina konan sem hefur tvívegis verið valin í frægðarsal rokksins?

97. spurningaþraut: Hver er til dæmis eina konan sem hefur tvívegis verið valin í frægðarsal rokksins?

Hér er þrautin frá í gær.

Fyrri auka­spurn­ing:

Frægur banda­rískur arki­tekt teikn­aði á fjórða ára­tug 20. aldar þann sum­ar­bú­stað, sem sést á efri mynd­inni, fyrir fjöl­skyldu búða­kóngs. Bústað­ur­inn er kall­aður Fallingwater og er tal­inn eitt af meist­ara­verkum arki­tekt­úrs á öld­inni. Hvað hét arki­tekt­inn?

Sú síð­ari:

Hver er þessi gretti tón­list­ar­maður á neðri mynd­inni?

En aðal­spurn­ingar eru þessar:

1.   Rock and Roll Hall of Fame, eða Frægð­ar­salur rokks­ins, er safn í Ohio í Banda­ríkj­unum sem heldur úti lista yfir rokktón­list­ar­menn (í víðum skiln­ingi) sem þykja hafa afrekað eitt­hvað sér­stakt á sínu sviði. Mjög er eft­ir­sótt að kom­ast á þennan lista. Aðeins ein kona hefur kom­ist tví­vegis á list­ann, fyrst sem félagi í vin­sælli hljóm­sveit en síðan sem sólólista­maður. Hver er þessi kona?

2.   Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á dætur tvær. Sú eldri verður fer­tug á næsta ári og er upp­á­halds­barn Trumps þessa. Hún hefur und­an­farið verið í hlut­verki sér­staks ráð­gjafa föður síns. Hvað heitir konan?

3.   Yngri dóttir Trumps er aftur á móti 26 ára og hefur fátt feng­ist við í líf­inu nema birta myndir af sér á Instagram ásamt öðru ríku fólki. Hvað heitir hún?

4.   Seint í júní síð­ast­liðnum gaf mjög vin­sæl söng­kona nán­ast fyr­ir­vara­laust út hljóm­plötu á net­miðlum, sem fékk afar góða dóma og þótti marka nýja braut á ferli söng­kon­unnar. Hún hafði fram að þessu verið kunn fyrir létt og skemmti­legt popp en syngur nú afslapp­aðar rokk­ball­öður í stíl indírokks. Platan heitir Folklore en hver er söng­konan? 

5.   Sænskur vík­ingur á að hafa verið einn þeirra fyrstu sem til Íslands komu á mið­öldum, hann er sagður hafa siglt umhverfis landið og síðan nefnt það eftir sjálfum sér. Hvað hét þessi hóg­væri Svíi, að sögn?

6.   Hvaða ríki til­heyra hinar merki­legu Galapa­gos-eyjar?

7.   Hver er bjart­asti lit­ur­inn sem sólin gefur frá sér: rauður - órans - gul­grænn - græn­blár - eða fjólu­blár?

8.   Hvað heitir hæsti tindur Íslands?

9.   Hvað heitir kon­ungur Spánar?

10.   Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir var yfir­maður sér­stakrar Covid-19 deildar á Land­spít­al­anum á útmán­uðum og fram á vor, þegar deildin var lögð niður af því hennar þótti ekki lengur vera þörf. Ragnar Freyr er líka kunnur fyrir sér­stakt áhuga­mál sitt þar sem hann er kall­aður ... hvað?

Svörin við aðal­spurn­ingum eru þessi:

1.   Stevie Nicks söng­kona Fleetwood Mac.

2.   Ivanka. 

3.   Tiffany.

4.   Taylor Swift.

5.   Garðar Svav­ars­son.

6.   Ekvador.

7.   Gulgrænn.

8.   Hvanna­dals­hnjúkur.

9.   Filippus eða Felipe. Ekki er þörf að vita að af Fil­ippusum á Spáni er hann númer sex.

10.   Lækn­ir­inn í eld­hús­inu.

Auka­spurn­ingar:

Arki­tekt­inn hét Frank Lloyd Wright.

Mús­í­k­ant­inn er Ómar Ragn­ars­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár