96. spurningaþraut: Dvergur sem breyttist í ... hvað?

96. spurningaþraut: Dvergur sem breyttist í ... hvað?

Hér er spurn­inga­þraut gær­dags­ins.

Og hér eru auka­spurn­ingar dags­ins:

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hvað er það sem þar sést, næstum því allt?

Og sú seinni, hér að neðan: Hver er mað­ur­inn?

En hér eru aðal­spurn­ing­arnar, sem eru 10 að þessu sinni:

1.   Hvað hét stúlkan sem heimt­aði höfuð Jóhann­esar skír­ara að launum fyrir dans?

2.   Hver orti ljóða­bálk­inn Tímann og vatnið?

3.   En hver gaf í fyrra út bók um umhverf­is­mál í víðum skiln­ingi sem heitir Um tím­ann og vatnið?

4.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Túnis?

5.   Hver lék aðal­kven­hlut­verkið í kvik­mynd­inni gömlu, Casablanca?

6.   Fáfnir hét dvergur einn úr nor­rænum goð­sögum sem varð fyrir bölvun og breytt­ist þá í ... hvað?

7.   Hvað heitir hin stærsta af Vest­manna­eyjum?

8.   Hvað hét fyrsta konan sem vann Nóbels­verð­launin í bók­menntum? Það má fylgja sög­unni að hún var sænsk.

9.   Algeng­asta nafnið sem páfar taka sér þegar þeir eru kjörnir til emb­ættis er Jóhannes. En hvað er næst algeng­asta páfa­nafnið? Hér má það og fylgja sög­unni að eng­inn páfi hefur tekið sér þetta nafn í tæp 200 ár.

10.   Hvaða lög­reglu­stjóri hefur verið sak­aður um að prenta klám á prent­ara emb­ætt­is­ins og hátta sig í við­ur­vist und­ir­manna?

Svörin eru þessi:

1.   Salóme.

2.   Steinn Steinarr.

3.   Andri Snær Magnason.

4.   Túnis.

5.   Ingrid Bergman.

6.   Dreka eða orm, hvort tveggja telst vera rétt.

7.   Heimaey.

8.   Selma Lagerlöf.

9.   Gregor­íus.

10.   Ólafur Helgi Kjart­ans­son.

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni sést stærstur hluti af umslag­inu utan um hina geysi­vin­sæl­ustu plötu Mugisons, Haglél.

Hér til hliðar má sjá plötu­umslagið í heilu lagi.

Svarið við hinni spurn­ing­unni er að á neðri mynd­inni má sjá rit­höf­und­inn George R.R. Martin, en hann hefur unnið sér til frægðar að skrifa múr­steina þá sem sem sjón­varps­s­er­í­urnar Game of Thrones eru gerðar eftir.

Aldrei þessu vant, þá dugar að vita að þetta sé höf­undur Game of Thrones, nafnið á karli er ekki alveg nauð­syn­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár