94. spurningaþraut: Hvað er empetrum nigrum og hvar er Gullbringa?

94. spurningaþraut: Hvað er empetrum nigrum og hvar er Gullbringa?

Hér er þrautin frá í gær.

En auka­spurn­ingar eru þessar tvær:

Hvaða grísku goð­sögu er lýst á því mál­verki sem sést hér að ofan og er senni­lega eftir Bruegel eldri?

Og hver er á neðri mynd­inni?

Aðal­spurn­ingar:

1.   Jurt ein heitir á lat­ínu empetrum nigrum og vex um allt Ísland. Latneska orðið  „nigrum“ í nafn­inu hennar þýðir „svart“ eins og ljóst má vera. Jurtin, sem er mjög lágreist, er þeirrar nátt­úru að hún kann betur við sig á ber­angri en í skjóli. Á vissum hluta árs­ins eru jafn­vel fluttar fréttir í fjöl­miðlum af við­gangi hennar það árið. Hver er þessi jurt?

2.   Jóhanna frá Örk var frönsk tán­ings­stúlka sem lét að sér kveða í lang­vinnri styrj­öld, sem ber hvaða nafn í mann­kyns­sög­unni?

3.   Hverjir töp­uðu orr­ust­unni við Dien Bien Phu?

4.   Gull­bringu­sýsla hét sýsla ein fyrrum á tíð. Ekki er alveg full­kom­lega á hreinu við hvað sýslan var kennd, en flestir telja þó að um sé að ræða svo­lítið fjall eða fell við stöðu­vatn eitt. Hvaða stöðu­vatn?

5.   Hvað hét leik­ar­inn sem lék Tony Soprano í víð­frægum sjón­varps­þáttum um mafíu­fjöl­skyldu eina í Ameríku?

6.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Kingston?

7.   Bræður tveir voru í hljóm­sveit­inni Utan­garðs­mönnum með Bubba Morthens. Hvaða eft­ir­nafn báru þeir og bera enn?

8.   Hver var fyrsti íslenski söngv­ar­inn sem söng við Metropolitan óper­una í New York?

9.   Kolbeinn Sig­þórs­son fót­bolta­maður lék á árunum 2011-2015 með hol­lensku fót­boltaliði og skor­aði 35 mörk í 105 leikjum. Hvað heitir þetta hol­lenska lið?

10.   Hver leikur Joyce Byers, aðal­kven­hlut­verkið í sjón­varps­s­er­í­unni Stranger Things?

Svörin:

1.   Kræki­berja­lyng.

2.   Hundrað ára stríðið.

3.   Frakkar.

4.   Kleif­ar­vatn.

5.   James Gand­olfini.

6.   Jamaica.

7.   Pollock.

8.   María Markan.

9.   Ajax.

10.   Winona Ryder.

Svarið við fyrri auka­spurn­ing­unni er goð­sögnin um Íkarus sem flaug of nærri sól­inni með vængi sem hann hafði límt á sig með vaxi (eða rétt­ara sagt Dedalus faðir hans), svo vaxið bráðn­aði og hann féll í sjó­inn og drukkn­aði.

Þetta má sjá á þeim hluta mál­verks­ins, sem hér er til hliðar.

Á neðri mynd­inni má sjá skóla­pilt­inn David Jones sem síðar kall­aði sig David Bowie.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár