93. spurningaþraut: Maud drottning átti kórónu og allt, en hvaða land var við hana kennt?

93. spurningaþraut: Maud drottning átti kórónu og allt, en hvaða land var við hana kennt?

Hérna haf­iði þraut­ina frá í gær.

Auka­spurn­ingar:

Hver er  á mynd­inni hér að ofan?

Hver er sá rit­höf­undur, hel­stil skamm­lífur, sem prýðir mynd­ina hér að neðan?

En aðal­spurn­ingar dags­ins eru þessar:

1.   Hvað hét sá for­seti Venes­ú­ela, sem dó í emb­ætti árið 2013?

2.   París er fjöl­menn­asta borg Frakk­lands. En hver er sú næst fjöl­menn­asta?

3.   Árið 1869 fædd­ist krón­prins Breta dóttir sem fékk nafnið Maud. Hún gekk síðar að eiga frænda sinn, sem flestum að óvörum náði því að verða kóngur í landi einu, og hún varð þess vegna drottn­ing og átti kór­ónu og allt. Við Maud drottn­ingu er kennt gríð­ar­legt land­flæmi sem er t.d. 27 sinnum stærra en Íslandi. Hvar er það?

4.   Hver var utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Geirs Haarde 2007-2009?

5.   Skjald­borg nefn­ist kvik­mynda­há­tíð sem árlega er haldin á Íslandi og er helguð heim­ild­ar­myndum. Hvar á land­inu eru hátíða­höldin?

6.   Hver hefur lengst allra gegnt emb­ætti kansl­ara í Þýska­landi?

7.   Bíson-uxar eða buffalóar eru yfir­leitt taldir hafa búið ein­göngu í Norður-Ameríku en raunin er sú að þeir bjuggu líka í Evrópu - og búa reyndar enn. Á einu svæði í Evrópu lifa þeir villtir og menn leit­ast nú mjög við að styrkja stofn­inn. Hvar er það svæði nokkurn veg­inn?

8.   Í hvaða sögu Halldórs Laxness kemur við sögu per­sónan Ásta Sóllilja?

9.   Hvaða svolitli þétt­býl­is­staður er á milli Hellisands og Ólafs­víkur á norð­an­verðu Snæ­fells­nesi?

10.   Hvað heitir þjálf­ari karla­liðs KR í fót­bolta nú um stundir?

Svörin:

1.   Hugo Chavez.

2.   Marseille.

3.   Á Suð­ur­skauts­land­inu.

4.   Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

5.   Pat­reks­firði.

6.   Bismarck.

7.   Á landa­mærum Póllands, Litháens og Hvíta-Rúss­lands. Þeir sem segja aðeins Pólland fá ekki rétt, nema ég sé í góðu skapi þá stund­ina. Hins vegar er nóg að nefna Pólland og Litháen, eða þá Pólland og Hvíta-Rússland. Ekki þarf sem­sagt að nefna öll þrjú löndin, en Pólland verður að vera - og a.m.k. annað af hinum tveim.

8.   Í Sjálf­stæðu fólki.

9.   Rif.

10.   Rúnar Krist­ins­son.

Fyrri auka­spurn­ing: Þetta er Hollywood-leik­konan Tilda Swinton.

Seinni auka­spurn­ing: Þetta er aftur á móti Marcel Proust, sá er skrif­aði stór­virkið Í leit að týndri tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár