92. spurningaþraut: Hvar var ríkið Pontus? og sitthvað fleira

92. spurningaþraut: Hvar var ríkið Pontus? og sitthvað fleira

Hérna er fyrst þrautin frá í gær.

En svo koma hér tvær auka­spurn­ingar:

Í fyrsta lagi, hver er mað­ur­inn með kúlu­hatt­inn fína hér á efri mynd­inni?

Og í öðru lagi, hvaða hljóm­sveit gaf út plötu þá sem neðri myndin er hluti af?

En vindum oss þá í aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Róm­verjar fornir áttu í eitt sinn í höggi við kóng einn sem reynd­ist þeim þungur ljár í þúfu, en þeir báru þó sig­ur­orð af honum á end­anum. Míþri­dates hét hann og ríki hans Pontus. En hvar var ríkið Pontus?

2.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Beirút?

3.   „Sigga litla systir mín / situr út'í götu ...“ Hvernig er fram­hald vís­unnar?

4.   Einn af hinum frægu körlum forn­aldar átti eig­in­konu þá sem hét Xantippa eða Xanþippa. Úr flestum heim­ildum má lesa að hún hafi verið góð eig­in­kona og móðir en í einni heim­ild kemur þó fram að hún hafi verið skap­vargur heil­mik­ill. Í sömu heim­ild kemur fram að eig­in­mann­inum hafi í raun alls ekki þótt það verra. Eig­in­lega þvert á móti, því hann hafði ein­stak­lega gaman af því að rök­ræða alla hluti við annað fólk og fannst það því mjög til bóta að eig­in­konan væri alls ekki alltaf sam­mála sér, heldur tal­aði sínu máli af krafti. Hver var þessi eig­in­maður?

5.   Erdogan hefur verið for­seti Tyrk­lands síðan 2014. Hvað hét for­veri hans?

6.   Hvaða ár urðu miklar óeirðir stúd­enta í París sem áttu sinn þátt í að Charles de Gaulle for­seti sagði af sér árið eftir?

7.   Hver var það sem helst beitti sér fyrir setn­ingu nýrrar stjórn­ar­skrár í Dýrunum í Hálsa­skógi?

8.   Chester Nimitz hét maður. Hvað gerði hann sér til frægðar?

9.   Michelle Obama er kunn fyrir störf sín sem for­seta­frú í Banda­ríkj­unum og svo rit­störf eftir að hún flutti úr Hvíta hús­inu. En hvað var eft­ir­nafn hennar áður en hún gekk að eiga Barack Obama?

10.   Hversu er vega­lengdin milli Lækj­ar­torgs og Hlemm­torgs í Reyjavík? Hér má muna 100 metrum til eða frá. 

Hér eru svörin:

1.   Við Svarta­haf eða í Litlu-Asíu (Tyrk­landi) er hvorttveggja rétt.

2.   Líbanon.

3.   „Hún er að mjólka ána sín' í ofur­litla fötu.“

4.   Heim­spek­ing­ur­inn Sókrates.

5.   Gül.

6.   1968.

7.   Marteinn skóg­ar­mús.

8.   Yfir­flota­for­ingi Banda­ríkja­manna í Kyrra­haf­inu í síð­ari heims­styrj­öld.

9.   Robinson.

10.   1,2 kíló­metrar - svo allt frá 1,1 til 1,3 telst vera rétt.

Svörin við auka­spurn­ing­unum eru þessi:

Á efri mynd­inni er Harry S. Truman for­seti Banda­ríkj­anna eins og hann leit út í spari­föt­unum á sínum yngri árum.

Það var löngu áður en hvarfl­aði að Truman að hann ætti eftir að varpa kjarn­orku­sprengjum á tvær jap­anskar borgir.

En það var jú einmitt það sem hann gerði eftir að hann var orð­inn for­seti við lok síð­ari heims­styrj­aldar.

Á neðri mynd­inni er aftur á móti plata Spil­verks þjóð­anna, sem ýmist er kölluð CD eða Nærlífi. Þetta var næst­fyrsta plata hljóm­sveit­ar­innar.

Umslagið mál­aði Guðrún Gísla­dóttir leik­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár