Guðmundur Franklín vill afhjúpa nafnlausa elítu

Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi vill ekki nafn­greina með­limi rúm­lega þrjú þús­und manna „elítu“ á Íslandi sem fari illa með þjóð­ina. Hann segir að for­seti hefði átt að stöðva skipun dóm­ara við Lands­rétt, vill minnka fjár­magn RÚV og koma að mótun stefnu rík­is­stjórnar.

Guðmundur Franklín vill afhjúpa nafnlausa elítu
Guð­mundur Franklín Jónsson Fram­bjóð­and­inn segir að synja hefði átt skipan dóm­ara við Lands­rétt stað­fest­ingar.

Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi vill að öll kosn­inga­lof­orð þeirra flokka sem mynda rík­is­stjórn fari í stjórn­ar­sátt­mála svo staðið verði við þau. Hann telur að for­set­inn þurfi að upp­lýsa þjóð­ina til að gæta hags­muna hennar.

Í við­tali við Stundina leggur hann mikla áherslu á að for­seti sé þjóð­kjör­inn og þannig full­trúi þjóð­ar­innar sem eigi að hlusta á vilja hennar. Hann vill opna sam­ráðs­gátt á vefnum þar sem fólk getur kosið um mál­efni eða gert athuga­semdir við þau og einnig leggja fram eitt eða fleiri laga­frum­vörp í sam­ráði við þjóð­ina, sem lög­spek­ingar telja þó ekki vera í verka­hring for­seta.

Þá ræðir hann skoð­anir sínar á leið­toga­hæfni Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta og fyrri ummæli um að múslimar séu frá „öðrum heimi“ og að þeir heimar eigi að „fá að vera í friði hvor fyrir öðrum“.

Taka ber fram að Guð­mundur Franklín hafn­aði við­tali í síma eða eigin per­sónu og kaus frekar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2020

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár