Spurningaþraut 25: Drekaflug, Frankar og Jónar

Spurningaþraut 25: Drekaflug, Frankar og Jónar

Hér er komin spurn­inga­þrautin „10 af öllu tagi“ númer 25.

Auka­spurn­ingar eru þessar:

  • Úr hvaða kvik­mynd er efri myndin?
  • Hver er ungi mað­ur­inn sem situr að tafli á neðri mynd­inni?

En hér er svo spurt:

1.   Hvað heitir stærsta Fil­ipps­eyjan?

2. June Osborne heitir kven­per­sóna ein, sem þó er kunn­ari undir öðru nafni. Hvaða nafn er það?

3.   Frankar voru forn germ­anskur þjóð­flokkur.  Í hvaða nútíma­ríki var stærstur hluti af upp­runa­legu búsvæði þeirra?

4.   Pútin heitir for­seti Rúss­lands. Hvað hét for­veri hans?

5.   Í lok maí 1941 var háð sjóorr­usta djúpt út af Reykja­nesi. Tvö bresk fall­byssu­skip réð­ust þá á þýskt orr­ustu­skip, en fóru hrak­farir miklar. Annað breska skipið sprakk í loft upp á skammri stundu en hitt laskað­ist veru­lega. Hvað hét þetta öfl­uga þýska orr­ustu­skip?

6.   Í grennd við hvaða eyjar er dýpsta haf­svæði á jörð­inni?

7.  Spiro og Fantasio heita sögu­hetj­urnar í belgískum teikni­mynda­sögum sem hófu að koma út 1938, en reyndar kom seinni per­sónan Fantasio ekki til sög­unnar fyrr en nokkrum árum seinna. Hvað kall­ast Spiro og Fantasio á íslensku?

8.   Hvað heitir eina mör­gæsa­teg­undin sem lifir villt við Norð­ur­pól­inn?

9.   Hvað heitir James Bond-kvik­myndin sem frum­sýna á í haust - ef kór­óna­veiran leyfir?

10.   Árið 1703 var í fyrsta sinn tekið mann­tal á Íslandi. Þá kom í ljós að karl­manns­nafnið Jón var algeng­asta nafn á land­inu. Hve stór pró­senta karl­manna hét Jón sam­kvæmt þessu mann­tali?

Hér eru svörin:

1.   Luzon.

2.   Offred. Hún er aðal­per­sónan í sög­unni og sjón­varps­þátt­unum „Saga þern­unnar“ eða „The Handmaid’s Tale“.

3.   Belgíu.

4.   Dmitri Medvedév. Hann var for­seti 2008-2012.

5.   Bismarck.

6.   Maríana-eyjar í vest­an­verðu Kyrra­hafi. Ég gef líka rétt fyrir Gvam.

7.   Svalur og Valur.

8.   Engin mör­gæsa­teg­und lifir villt við norð­ur­pól­inn.

9.   „No Time to Die“ heitir myndin á ensku. Sjálf­sagt verður hún kölluð „Eigi skal höggva“ þegar hún verður sýnd hér á landi.

10.   25 pró­sent. Einn af hverjum fjórum íslenskum karl­mönnum hét sem sé Jón.

Svörin við auka­spurn­ing­unum:

  • Myndin er Avatar.
  • Maðurinn er Boris Spassky, síðar heims­meist­ari í skák.

En hér er svo „10 af öllu tagi“ frá því í gær.

En hérna leyn­ist sú næsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár