Spurningaþraut 13: Netflix-sería Baltasars og umsátrið um Leníngrad

Spurningaþraut 13: Netflix-sería Baltasars og umsátrið um Leníngrad

Þrett­ánda spurn­inga­þrautin er eins og hinar tólf: tíu spurn­ingar og svörin má finna hér fyrir neðan ljós­mynd af valda­konu einni.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær að venju:

Hver er sá tví­liti fáni sem blaktir hér að ofan?

Og hver er konan með klút­inn lit­ríka?

En hér eru spurn­ing­arnar tíu:

1.  Baltasar Kormákur hefur vakið athygli fyrir að halda áfram af fullum krafti - en þó með til­hlýði­legri varúð - að taka upp sjón­varps­s­eríu fyrir Netflix. Hvað heitir sú sería?

2.   Milli hvaða landa liggur Brenner-skarð?

3.  Listgáfa leggst stundum í ættir, virð­ist vera. Heims­þekkt tón­skáld eign­að­ist fjölda barna og þar á meðal voru fjórir synir sem urðu líka tón­skáld, og bara ansi góð. Hvað hét tón­skáldið sem gat af sér hin fjögur?

4.  Hvert er nafn keis­ar­ans vonda í Star Wars kvik­mynd­unum?

5.   Hvað þýðir skamm­stöf­unin BSRB?

6.  Hver skrif­aði ævi­sögu Stein­gríms Her­manns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í þremur bindum?

7.   Hvað eiga íslensku rit­höf­und­arnir Ólafur Jóhann Sig­urðs­son, Snorri Hjart­ar­son, Thor Vil­hjálms­son, Fríða Á. Sig­urð­ar­dóttir, Einar Már Guð­munds­son, Sjón, Gyrðir Elíasson og nú síð­ast Auður Ava Ólafs­dóttir sam­eig­in­legt? (Auðvitað er það sitt af hverju. En ef þið vitið þetta, þá vit­iði þetta.)

8. Í síð­ari heims­styrj­öld­inni sett­ust Þjóð­verjar um borg­ina Lenín­grad í Rúss­landi 8. sept­em­ber 1941. Hversu lengi stóð umsátrið í dögum talið? Skekkju­mörk eru 50 dagar til eða frá.

9.   Í hvaða heims­álfu er dýra­teg­undin alpaca upp­runnin?

10.  Far­þega­skipið Titanic var alls ekki ein­stakt í sinni röð. Það átti tvö syst­ur­skip, jafn stór og glæsi­leg. Nefnið að minnsta kosti annað þeirra.

Þá eru þau hér þau hin tíu svör:

1.   Katla.

2.  Aust­ur­ríki og Ítalíu.

3.  Johann Sebast­ian Bach.

4.   Palpatine.

5.  Bandalag starfs­manna ríkis og bæja.

6.  Dagur B. Egg­erts­son.

7.  Þau hafa, ein íslenskra höf­unda, unnið bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs.

8.  Í 872 daga. Rétt telst því allt frá 822 til 922.

9.  Suður-Ameríku. Alpaca er náskylt llama­dýr­inu.

10.  Britannic og Olympic.

Auka­spurn­ing­arnar:

Fáninn er að sjálf­sögðu sá pólski.

Og konan er Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur 2011-2015.

Næsta spurn­inga­þraut á undan, sú tólfta, hún er svo hérna.

En hér birt­ist svo sú næsta á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár