Stundin sýnir í dag beint streymi á vegum Hugarafls þar sem Auður Axelsdóttir, iðjuþjálfi og framkvæmdastjóri Hugarafls, mun svara spurningum áhorfenda. Útsendingin hefst klukkan 11 og verður birt í þessari frétt og á Facebook-síðum Hugarafls og Stundarinnar. Þá verður upptaka tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið.
Eftirfarandi er tilkynning frá Hugarafli um viðburðinn:
Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, tilfinningar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.
Við í Hugarafli höfum boðið íslensku samfélagi upp á afslappað samtal um geðheilsu, tilfinningar og önnur tengd málefni á föstudögum kl. 11 fimm vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þessari viku.
Við munum senda beint út hér á facebook, föstudaginn 1. maí kl. 11, þar sem Auður Axelsdóttir mun leitast við að svara spurningum ykkar. Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.
Athugasemdir