Fjórar brottfarir Icelandair frá Keflavík í dag

Á vegum Icelandair voru 23 brott­farir fyrir­hugaðar, öllum hefur verið aflýst nema fjórum.

Aflýst!
Aflýst! 37 brott­farir voru á áætlun frá Kefla­vík­ur­flug­velli í dag, en 31 hefur verið aflýst. Mynd: Skjáskot af airport.is

FI532 Munchen: Aflýst. FI520 Frankfurt: Aflýst. FI 342 Helsinki: Aflýst. FI542 París: Aflýst.

Svona heldur listinn á vefsíðu Kefla­víkur­flugvallar áfram yfir brott­farir í dag áfram. 37 brott­farir voru á áætlun í dag, en  75% þeirra, öllum nema níu, hefur verið aflýst.

Fjórar flugferðir Icelandair 

Á vegum Icelandair voru 23 brott­farir fyrir­hugaðar, öllum hefur verið aflýst nema fjórum. Þrjár voru til Evrópu­landa í morgun og ein til Boston síðdegis.

SAS flýgur til Ósló í hádeginu, sömuleiðis mun British Airways fljúga til London og þangað mun Wizz Air fljúga í kvöld.  Þá eru tvær ferðir Easy Jet til Bretlands á áætlun. 

Icelandair tilkynnti í morgun um að segja þyrfti upp 240 starfs­mönnum og að 92% starfs­manna þar myndu taka á sig skert starfs­hlutfall. Hluti starfs­manna njóta úrræða ríkis­stjórnarinnar um mótframlag vegna skerðingar á starfsfhlutfalli. Bogi Nils Bogason, formaður félagsins, sagði í tilkynningu sem hann sendi starfs­mönnum að þessar aðgerðir væru nauðsynlegar til að tryggja framtíðar­rekstur félagsins. 

Í dag voru áætlaðar komur 36 flugvéla. Öllum nema átta hefur verið aflýst. 23 vélar Icelandair áttu að koma í dag, öllum hefur verið aflýst nema þremur. 

Stundin ræddi við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, rétt í þessu. Þar kom fram að flug­framboð í sumar yrði minna en ráðgert var vegna kóróna­veirunnar. „Við tilkynntum um það núna fyrir skemmstu að við værum að gera ráð fyrir því að flug­framboð okkar í sumar yrði að minnsta kosti 25 prósent minna en við vorum áður búnir að gera ráð fyrir. Við erum samt að búa okkur undir að það geti orðið enn minna. Við erum í raun að búa okkur undir það versta en erum að reyna að tryggja ákveðinn sveigjanleika svo við getum farið af stað þegar eftir­spurn fer aftur af stað og bókunar­gluggar opnast.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár