Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég hef lært að gefast ekki upp“

Ólafur H. Jónsson greind­ist með MS-sjúk­dóm­inn árið 1991, en stundar fjall­göngur af kappi til að bæta sál­ar­lífið.

Ólafur H. Jónsson er frá­skil­inn, þriggja barna faðir og býr einn í fal­legri íbúð. Tveir rauðir stólar úr Þjóð­leik­hús­inu standa í stof­unni. Andlitin á áklæð­inu sýna ann­ars vegar gleði og hins vegar sorg.

„Ég held að líf mitt sé frekar bros­andi heldur en hitt. Ég vil hafa það þannig. En að sjálf­sögðu getur maður reiðst,“ segir hann. 

Ólafur greind­ist með MS-sjúk­dóm­inn fyrir tæpum þrjá­tíu árum, þá 23 ára gam­all. Hann heldur á bók sem hann hefur skrifað í lýs­ingar á köst­unum sem hann hefur fengið frá upp­hafi. Hann les. 

„3. mars 1991. Um kl. 12. Byrjaði að sjá tvö­falt og það jókst næstu þrjá til fjóra tím­ana. Flök­ur­leiki og óstöð­ug­leiki kom um kvöldið. Fór í vinnu dag­inn eftir en varð fljót­lega að fara. Fór til augn­læknis í Hafn­ar­firði. Hann skoð­aði mig og sagði mér að ef mér versn­aði eða flök­ur­leik­inn myndi aukast þá ætti ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár